Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Svört labradortík féll í Seljadalsá og hvarf undir ísinn á Hafravatni: „Óskum eftir aðstoð“

Svört labradortík féll í Seljadalsá og hvarf undir ísinn á Hafravatni: „Óskum eftir aðstoð“
Svartur labrador. Ath: Ekki er um að ræða mynd af tík­inni sem leitað er að.

Samtökin Dýrfinna, sem hjálpa til við leit að týndum gælu­dýrum, óska eftir sjálf­boða­liðum við leit að svartri labrador­tík í nágrenni við Hafra­vatn. Tekið er fram að leitin sé alls ekki fyrir við­kvæma eða börn, aðstæður séu erf­iðar og mik­il­vægt að vera vel búinn.

Í gær­kvöldi féll labrador­tíkin sem um ræðir í straum­harða Selja­dalsá. Selja­dalsá rennur í Hafra­vatn og er tíkin sögð hafa horfið undir ísinn á Hafra­vatni og ekki sést síðan. Ekki er vitað hvort hún hafi kom­ist upp ann­ars­staðar eða ekki. Á síðu Dýrfinnu segir að leit sé í gangi á vegum eig­enda en aðstæður séu hættu­legar og fólki sagt að fara ekki eitt út að leita.

Svæðið sem um ræðir.

Óska eftir aðstoð

Sandra Ósk Jóhanns­dóttir, sjálf­boða­liði og ráð­gjafi við leit að týndum dýrum hjá Dýrfinnu, segir í sam­tali við blaða­mann Mannlífs að Hjálp­ar­sveit skáta sé að leggja leit­inni lið. „Erum bara eig­endur og tvær úr hunda­sveit­inni eins og er, held að það sé ein­hver á leið­inni. Tveir úr Hjálp­ar­sveit Skáta í Kópavogi voru að fara. Svo er fólk búið að labba hér í kring og hefur augun opin.“

Sérstakt leit­ar­spjall hefur verið stofnað en fólk er beðið um að sækja ein­ungis um að kom­ast inn í það ef það er að fara út að leita, svo létta megi álagið á spjallið. Ef fólk ætlar sér út að leita er hægt að skrifa athuga­semd undir færslu Dýrfinnu á Facebook.

„Við óskum eftir allri aðstoð sem hægt er t.d. dróna og aðstoð frá vönu fólki eins og hjálp­ar­sveit skáta eða björg­un­ar­fólk,“ segir í færsl­unni.

Þeim til­mælum er beint til fólks að fara alls ekki út á ísinn, leita ávallt í pörum og vera með full­hlað­inn síma. Fólki er einnig bent á að vera vel klætt og í vatns­heldum skóm, þar sem mikið er um mýri á svæð­inu.

Enn skal áréttað að ekki er um að ræða verk­efni fyrir börn eða við­kvæma, þar sem ekk­ert er vitað um stöð­una á hund­inum að svo stöddu.

Ef les­endur hafa hug á að hjálpa til við leit­ina er hægt að fá nán­ari upp­lýs­ingar, ef þörf er á, með því að hringja í eig­and­ann. Númerið hans er að finna í færsl­unni á Facebook-síðu Dýrfinnu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina