Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Fentanyl faraldur á Íslandi segir sprautufíkill: „Fentanyl er svakalegasti morðinginn á götunni“

Kristján Hafberg Einarsson
Kristján Hafberg Ein­ars­son Mynd: Aðsend

Sprautu­fíkill sem Mannlíf ræddi við segir að fentanyl faraldur sé í gangi meðal fíkla á Íslandi í dag. Á síðasta ári hafi þrír ungir menn sem hann þekkti, dáið af völdum ofneyslu á fentanyli en hann útilokar ekki að fleiri hafi dáið af sömu völdum. Fentanyl er lyfseðils­skyld lyf.

Kristján Hafberg Einarsson, 51 árs gamall, er að eigin sögn amfetamín­sprautu­fíkill. Hann er að reyna að ná tökum á fíkninni með hjálp lækna enda fasta­gestur á bráða­móttökunni vegna sykursýki sem hann greindist með 2008 en amfetamínneyslan hefur skiljanlega gert illt verra. Hann segir að á Íslandi ríki nú fentanyl faraldur. „Ég þekki þrjá unga menn sem fóru með stuttu millibili síðasta sumar og þetta sló mig mjög, ég er nú ekki sjálfur Morfín fíkill en Fentanyl er svakalegasti morðinginn á götunni í dag. Ég þekki nú bara brot af Morfín­fíklunum en ég kynntist þessum strákum á Gistiskýlinu og á áfanga­heimilum.“

En hvað er fentanyl? Samkvæmt Lyfja.is er um að ræða verkja­stillandi lyf sem skylt er Morfíni. Hér er lýsingin í heild sinni:

Fentanyl Acatavis er verkja­stillandi lyf. Lyfið er skylt morfíni og hefur sterka verkja­stillandi verkun auk slævandi áhrifa. Það er notað við lang­vinnum verkjum sem eru næmir fyrir morfín­lyfjum, svo sem sársauka vegna krabba­meins. Lyfið á hins vegar ekki að nota gegn skyndi­legum verkjum eða verkjum eftir skurð­aðgerðir. Þol getur myndast gegn lyfinu og sífellt stærri skammtar geta orðið nauðsyn­legir. Það er þó mjög einstaklings­bundið hversu hratt þolið myndast. Notkun lyfsins fylgir einnig ávana­hætta. Í Fentanyl Actavis er virka efnið fentanýl bundið í svokölluðum forða­plástri sem gefur lyfið frá sér jafnt og þétt í gegnum húðina og inn á blóð­rásina. Á þann hátt fæst jöfn verkja­stilling í þann tíma sem lyfið er notað. Athugið að ef sjúklingur fær sótthita getur meira af lyfinu borist úr plástrinum inn í blóð­rásina og þá þarf að fylgjast vel með viðkomandi og jafnvel að minnka lyfja­skammtinn. Plásturs­svæðið má helst ekki hitna.

Samkvæmt fyrr­verandi yfirlækni Lyfja­stofnunar, Kolbeini Guðmunds­syni sem var í viðtali við Vísi árið 2016 er fentanyl eitt sterkasta verkja­lyfið á Íslandi. „Þetta er eitt sterkasta verkjalyf sem er til á markaðnum. Fentanýl er um það bil hundrað sinnum sterkara en morfín, ef við tökum milli­gramm fyrir milli­gramm af lyfi, og sirka fimmtíu sinnum sterkara en heróín meira að segja. Það segir sig sjálf að þetta er mjög öflugt og þar af leiðandi hættulegt lyf,“ sagði hann í viðtalinu.

Kristján Hafberg segir að miðað við það sem hann sér á Telegram, sem er spjall­forrit sem mikið er notað af svarta markaðnum en þar er hægt að vera nafnlaus, sé mjög mikið framboð á fentanyli. „Ég veit að það er flutt mikið af oxicontin frá Spáni því læknar þar eru duglegir að skrifa það út og það gæti verið að þetta sé að koma þaðan en ef þessi lyf eru að koma mikið frá íslenskum læknum á dópmarkaðinn er það auðvitað svakalegt hneyksli!“ Segir Kristján að hægt sé að græða heilmikið á að selja morfín­skyld lyf á svarta markaðnum „Ég gæti auðveldlega selt lyfin sem ég er á fyrir nokkur hundruð þúsund, þetta er big money.“

Árið 2018 var Svandís Svavars­dóttir, þáverandi heilbrigðis­ráðherra spurð út í það á Rúv hvort „tilmæli til lækna að vera ekki að ofávísa lyfjum ekki gengið og hvort fylgst væri með því hvaða læknar það séu sem séu að ávísa í of miklum mæli þessum sterku morfín­skyldu lyfjum?“ Svandís svaraði: „Þetta er meðal annars verið að skoða og það er alveg ljóst að alveg sama þótt við reynum að halda því fram að við séum að eiga við sambærileg viðfangs­efni og í löndunum í kringum okkur, þá er verið að ávísa of miklu af geð-og verkja­lyfjum á Íslandi. Við erum kannski hátt í tvöföld á við Norður­löndin og það er alveg sama hvernig við gruflum í ástæðum þess að verið er að ávísa þeim lyfjum, það getur ekki verið staða sem við viljum vera á, þannig að það þarf að skoða það líka, já.“ Bætti hún því við að dæmi séu til þar sem læknar á Íslandi hafi misst starfs­leyfi sitt vegna þess að þeir hafi verið að ávísa lyfjum í óeðlilega miklu magni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Minning

Aðstand­endur minnast Aðalsteins og Eggerts

Þrír skipverjar létust þegar Jökull ÞH 299 sökk.
Innlent

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Úrskurðarnefnd staðfesti synjun ráðuneytisins þar sem afhending tölvupósts um lokaðan fund gæti grafið undan trausti milli ríkja.

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi