Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Vorboðinn í Ármúla er mættur: „Svo hafa þeir stöðvað umferð“

Vorboðinn í Ármúla er mættur: „Svo hafa þeir stöðvað umferð“
Tjald­ur­inn Tryggvi er ófeim­inn við mynda­vél­arnar. Mynd: Björgvin Gunnarsson

Heiðlóan hefur lengi verið kölluð vor­boð­inn ljúfi en þeir eru fleiri, vor­boð­arnir. Í Ármúl­anum í Reykja­vík mætir tjaldapar ár eftir ár og verpir á þaki Ísólar ehf. Tjald­ur­inn hefur ekki farið fram­hjá starfs­fólki fyr­ir­tækja á svæð­inu en starfs­fólk Hita­stýr­ingar hf. er með veð­mál ár hvert um það hvenær hann lætur sjá sig.

Árum saman hefur tjald­ur­inn komið og lent á glugga­syllu bygg­ing­ar­innar sem hýsir meðal ann­ars Mannlíf, til að spóka sig en ofan á þaki fyr­ir­tækis við hlið Mannlífs, Ísól ehf. hefur hann komið upp hreiðri.

Þakið er þakið grjóti og því tjalda tjald­arnir öllu til og er ljóst að þeir tjaldi ekki til einnar nætur því þar hafa þeir verpt og komið ungum sínum á legg frá árinu 1990.

„Þetta er svo gaman. Hann er vor­boð­inn okkar,“ sagði Helga Gabríela Guð­munds­dóttir, starfs­maður Hita­stýr­ingar hf í sam­tali við Mannlíf en starfs­menn hafa tekið þátt í veð­máli um nákvæma dag­setn­ingu á komu tjalds­ins en í ár vann Jónas nokkur sem giskaði á dag­inn í dag en þá mætti einmitt tjald­ur­inn.

Vel gert Jónas!

„Það er svo gaman að fylgj­ast með þeim, stundum spíg­spora þeir yfir bíla og svo hafa þeir stöðvað umferð einu sinni,“ sagði Helga sem þykir greini­lega vænt um tjald­inn.

Eins og kom fram hér fyrir ofan verpir tjald­ur­inn alltaf á þaki Ísólar ehf. og hefur gert það síðan 1990.

„Ég hef það eftir sam­starfs­mönnum mínum að tjald­ur­inn hafi byrjað að verpa hérna fljót­lega eftir að húsið var byggt, þannig að það hefur verið í kringum 1990,“ sagði Jón Sveins­son, starfs­maður Ísólar ehf. í sam­tali við Mannlíf. „Þegar ung­arnir eru orðnir fleygir hendir hann þeim fram af þak­inu og smalar þeim svo upp að veg hér í Ármúl­anum og fer með þá upp á tún hjá Fjöl­brauta­skól­anum. Það er heil­mikið ævin­týri þegar þeir fara að reka þá upp brekk­una og yfir gatna­mótin.“

Pétur, Jón og Brynjar eru ánægðir með vor­boð­ann

Mannlíf heyrði í líf­fræð­ingnum og tjald­sér­fræð­ingnum Sölva Rúnari Vign­is­syni og spurði hann út í lífaldur tjalda.

„Það er erfitt að reikna út með­al­aldur fugla en við erum með metin sko. Eina leiðin til að vita aldur fugla er að setja á þá merki og sem betur fer hafa merki verið sett á fugla í Bret­landi frá næstum því 1800. Elsti breski tjald­ur­inn var að minnsta kosti 45 ára gam­all.“

Sölvi sagði einnig að um 30% tjalds­ins á Íslandi væri stað­fugl, dvelja hér allt árið um kring en 70% fer yfir á Bret­landseyjar yfir vetr­ar­tím­ann.

En af hverju kemur tjald­ur­inn alltaf á sama stað ár eftir ár?

„Lífslíkur fugla eru mjög litlar til að byrja með, eggin falla mjög oft frá, ung­arnir eru oft étnir eða drepnir snemma. Og svo þegar þeir eru byrj­aðir að fljúga og flögra, vita þeir oft ekk­ert hvað þeir eru að gera og fljúga bara eitt­hvað og eru bara ótta­legir hálf­vitar. Þá eru lífslík­urnar minni líka. Og svo ef þeir ná full­orð­ins­ár­unum, þá eru þeir komnir með reynslu og vita hvað þeir eiga að gera. Yfir­leitt gera þeir þá nákvæm­lega sama hlut­inn ár eftir ár, vegna þess að þeir vita að það virkar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina