Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ópíóíða-óða þjóð – Er fentanyl-faraldur hafinn á Íslandi?

Ópíóíða-óða þjóð – Er fentanyl-faraldur hafinn á Íslandi?
Hin ýmsu form fent­anyls Mynd: biotage.com

Ákveðnar vís­bend­ingar eru um að fent­anyl-far­aldur sé haf­inn á Íslandi eftir nokkra rénun í þeim málum síð­ustu ár. Mannlíf hefur skoðað mögu­lega mis­notkun á þessu ópíóíða-lyfi, sem er 100 sinnum sterkara en mor­fín og 50 sinnum öfl­ugra en heróín. Lög­reglan segir of snemmt að tala um far­aldur en seg­ist þó hafa tekið eftir aukn­ingu und­an­farið.

Kristján Hafberg Ein­ars­son, sem er 51 árs amfetamín­sprautu­fík­ill að eigin sögn, seg­ist viss um að sífellt fleiri ánetj­ist fent­anyli og nefndi í sam­tali við Mannlíf að hann vissi um þrjá unga menn sem hefðu verið háðir þessu rót­sterka verkja­lyfi, en þeir létu allir lífið með stuttu milli­bili fyrir ára­mót.

En hvað er fent­anyl? Samkvæmt lýs­ingu Lyfju er:

Fentanyl Acatavis verkja­still­andi lyf. Lyfið er skylt mor­fíni og hefur sterka verkja­still­andi verkun auk slævandi áhrifa. Það er notað við lang­vinnum verkjum sem eru næmir fyrir mor­fín­lyfjum, svo sem sárs­auka vegna krabba­meins. Lyfið á hins vegar ekki að nota gegn skyndi­legum verkjum eða verkjum eftir skurð­að­gerðir. Þol getur mynd­ast gegn lyf­inu og sífellt stærri skammtar geta orðið nauð­syn­legir. Það er þó mjög ein­stak­lings­bundið hversu hratt þolið mynd­ast. Notkun lyfs­ins fylgir einnig ávana­hætta. Í Fentanyl Actavis er virka efnið fentanýl bundið í svoköll­uðum forða­plástri sem gefur lyfið frá sér jafnt og þétt í gegnum húð­ina og inn á blóð­rás­ina. Á þann hátt fæst jöfn verkja­still­ing í þann tíma sem lyfið er notað. Athugið að ef sjúk­lingur fær sótt­hita getur meira af lyf­inu borist úr plástr­inum inn í blóð­rás­ina og þá þarf að fylgj­ast vel með við­kom­andi og jafn­vel að minnka lyfja­skammt­inn. Plást­urs­svæðið má helst ekki hitna.

Ópíóíðum-óða þjóð

Segir Kristján að miðað við það sem hann sjái á sam­skipta­for­rit­inu Telegram sé fram­boðið eftir fent­anyli gríð­ar­legt. „Ég veit að það er flutt mikið af oxicontin frá Spáni því læknar þar eru dug­legir að skrifa það út og það gæti verið að þetta sé að koma þaðan, en ef þessi lyf eru að koma mikið frá íslenskum læknum á dóp­mark­að­inn er það auð­vitað svaka­legt hneyksli!“ Kristján segir að hægt sé að græða heil­mikið á að selja mor­fín­skyld lyf á svarta mark­aðnum: „Ég gæti auð­veld­lega selt lyfin sem ég er á, fyrir nokkur hund­ruð þús­und, þetta er „big money“.“

Árið 2018 var Svandís Svav­ars­dóttir, þáver­andi heil­brigð­is­ráð­herra, spurð út í það á RÚV hvort „til­mæli til lækna að vera ekki að ofá­vísa lyfjum hafi ekki gengið og hvort fylgst væri með því hvaða læknar það séu sem séu að ávísa í of miklum mæli þessum sterku mor­fín­skyldu lyfjum?“ Svandís svar­aði: „Þetta er meðal ann­ars verið að skoða og það er alveg ljóst að alveg sama þótt við reynum að halda því fram að við séum að eiga við sam­bæri­leg við­fangs­efni og í lönd­unum í kringum okkur, þá er verið að ávísa of miklu af geð- og verkja­lyfjum á Íslandi. Við erum kannski hátt í tvö­föld á við Norð­ur­löndin og það er alveg sama hvernig við gruflum í ástæðum þess að verið er að ávísa þeim lyfjum, það getur ekki verið staða sem við viljum vera í, þannig að það þarf að skoða það líka, já.“ Bætti hún því við að dæmi væru um að læknar á Íslandi hefðu misst starfs­leyfi vegna þess að þeir hefðu verið að ávísa lyfjum í óeðli­lega miklu magni.

Hjá engri Norð­ur­landa­þjóð er keypt jafn mikið af ópíóíðum og á Íslandi. En hvaða áhrif hefur mis­notkun á slíkum lyfjum? Í Talna­brunni, frétta­bréfi Land­lækn­is­emb­ætt­is­ins um heil­brigð­is­upp­lýs­ingar, sem út kom í mars á þessu ári, er eft­ir­far­andi texti:

Ópíóíðar falla í flokk ávana- og fíkni­lyfja en lang­tíma notkun þeirra getur valdið því að not­and­inn verður háður lyfj­unum vegna vana­bind­ingar eða lík­am­legrar fíknar. Auk þess að vera mjög ávana­bind­andi, geta of stórir skammtar ópíóíða verið lífs­hættu­legir vegna bælandi áhrifa sem þeir hafa á þann hluta heil­ans sem stýrir öndun. Of stórir skammtar geta því valdið önd­un­ar­stoppi og dauða. 

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Lyfja­stofnun, sem Mannlíf fékk í hend­urnar, er árleg sala fent­anyl-lyfja minni árin 2017-2021 en árið 2016, þegar salan náði hámarki, en nú má þó merkja tals­verða aukn­ingu í söl­unni eins og sjá má á með­fylgj­andi mynd:

Grafið sýnir fjölda skil­greindra dag­skammta sem seldir eru frá lyfja­heild­sölum á dag fyrir hverja 1.000 íbúa. Graf: Lyfja­stofnun.

Eins og sést á graf­inu er salan orðin álíka mikil nú og hún var árið 2013, en hún hefur auk­ist um rúm 10% milli áranna 2020 og 2021.

Ef bornar eru saman sölu­tölur á almennum ópíóíðum á Íslandi, við sölu­tölur á hinum Norð­ur­lönd­unum, sést að Ísland gnæfir yfir frændur sína og frænkur. Þó að kaup á almennum ópíóíðum hafi dreg­ist tölu­vert saman á und­an­förnum árum á Ísland enn langt í land með að ná öðrum Norð­ur­löndum.

Ísland ber af í ópíóíða-notkun á Norð­ur­lönd­unum. Graf: Lyfja­stofnun

Eins og sést á graf­inu hefur salan minnk­aði milli áranna 2019 og 2020, en ef litið er á nýlegri tölur má sjá að aukn­ing hefur orðið aftur á sölu ópíóíðum á Íslandi.

Talsverð aukn­ing hefur orðið á sölu ópíóíða-lyfja á Íslandi sam­kvæmt nýj­ustu tölum.

Líkt og sést á mynd­inni hér fyrir ofan má sjá að kven­kyns kaup­endur lyfj­anna eru fleiri en karl­kyns kaup­endur. Í frétta­blaði Land­lækn­is­emb­ætt­is­ins sem minnst er á að framan segir að eftir sam­drátt síð­ustu ára hafi nú orðið lít­ils háttar fjölgun ein­stak­linga sem leystu út ópíóíða-lyf eða frá 157/1.000 íbúa 2020 í 166/1.000 íbúa 2021. Þetta sam­svarar því að ríf­lega 61 þús­und ein­stak­lingar hafi leyst út að minnsta kosti eina ávísun á ópíóíða á árinu 2021 sam­an­borið við ríf­lega 57 þús­und árið áður.

Þetta er brot úr frétta­skýr­ingu sem finna má í nýjasta Mann­lífs­blað­inu sem lesa má í heild sinni hér. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina