Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Uppbygging lífsgæðakjarna í Reykjavík: „Stuðlar að meiri lífsgæðum fremur en hver í sínu horni“

Uppbygging lífsgæðakjarna í Reykjavík: „Stuðlar að meiri lífsgæðum fremur en hver í sínu horni“
Fyrsta skóflustungan af leigu­í­búðum fyrir aldr­aða við Skólaveg. Mynd: Róbert Reynisson

„Afar ánægju­legt er að geta með sam­hentu átaki Sjó­manna­dags­ráðs, Reykja­vík­ur­borgar og rík­is­ins, stuðlað að jafn­víð­tækri upp­bygg­ingu leigu­í­búða fyrir aldr­aða. Fram­kvæmdin end­ur­speglar hvernig slíkt sam­starf stuðlar að meiri lífs­gæðum og hrað­ari upp­bygg­ingu, fremur en að hver vinni í sínu horni,“ segir Sigurður Garð­ars­son, fram­kvæmda­stjóri Sjó­manna­dags­ráðs og Nausta­varar.

Við Skóg­ar­veg rísa stvö ný fjöl­býl­is­hús með 87 íbúðum sem eru hluti af lífs­gæða­kjörnum Sjó­manna­dags­ráðs, Nausta­varar og Hrafn­istu. Leigu­í­búð­irnar eru fyrir 60 ára og eldri sem tengj­ast þjón­ustu­mið­stöð­inni Slétt­unni við Sléttu­veg í Reykja­vík.

Hug­mynda­fræði lífs­gæða­kjarn­ans er fædd hjá Sjó­manna­dags­ráði og hefur þar verið í þróun í ára­tugi. Hún gengur út á að reka sam­hliða hjúkr­un­ar­heim­ili, leigu­í­búðir og þjón­ustu­mið­stöðvar þar sem eldra fólki eru búnar aðstæður til að hámarka lífs­gæði sín.

Sérhannaðar með þarfir eldra fólks

Upp­bygg­ing lífs­gæða­kjarn­ans er sam­starfs­verk­efni Sjó­manna­dags­ráðs, Reykja­vík­ur­borgar og rík­is­ins. Fram­kvæmdir ann­ast Þarfa­þing hf. sem skilar íbúð­unum full­búnum til Nausta­varar og er ætlað að því verði lokið seinni hluta árs­ins 2024. Aríel Pét­urs­son, for­maður Sjó­manna­dags­ráðs og Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri í Reykja­vík voru við­staddir þegar að Guðbjörn Guð­jóns­son gröfu­maður hjá und­ir­verk­taka Þarfa­þings tók fyrstu skóflustung­una vegna fram­kvæmd­anna sl. föstu­dag að við­stöddum aðstand­endum fram­kvæmd­anna.

Sjó­manna­dags­ráð hefur þegar til útleigu í gegnum dótt­ur­fyr­ir­tæki sitt, Nausta­vör, 60 íbúðir við Sléttu­veg 27. Verða því alls 147 íbúðir fyrir þennan ald­urs­hóp til útleigu í lífs­gæða­kjarn­anum að fram­kvæmdum loknum. Gæði og bún­aður íbúð­anna verður sam­bæri­legur og í núver­andi íbúðum við Sléttu­veg. Inn­an­gengt er úr öllum hús­unum í þjón­ustu­mið­stöð á Sléttu­vegi. Auk þess ann­ast dótt­ur­fé­lagið Hrafn­ista rekstur hjúkr­un­ar­heim­ilis með 99 íbúðum auk þjón­ustu­mið­stöðv­ar­innar Slétt­unnar sem er sam­starfs­verk­efni með öðrum félags­mið­stöðvum eldri borg­ara í Reykja­vík.

Nýjar íbúðir Nausta­varar verða í tveimur sam­tengdum húsum við Skóg­ar­veg 4 og 10. Íbúð­irnar eru ýmist tveggja eða þriggja her­bergja á bil­inu 54 til 90 fer­metrar, en þrjár íbúðir verða um 120 fer­metrar að stærð. Í íbúð­unum er allt aðgengi gott og þær sér­hann­aðar með þarfir eldra fólks í huga. Hurðaop og gangar eru breið­ari en gengur og ger­ist, einnig eru bað­her­bergi og eld­hús sér­hönnuð svo auð­velt sé að nota ýmiss konar stuðn­ings­tæki. Reiknað er með að fyrstu íbúð­irnar verði til­búnar til afhend­ingar um mitt árið 2024.

Undir báðum húsum verður ein stór bíla­geymsla þar sem stæði verða leigð út sér­stak­lega. Einnig verða úti­stæði við húsin og þar verða föst stæði einnig leigð út til íbúa með sama fyr­ir­komu­lagi og í leigu­í­búð­unum sem eru við Sléttu­veg.

Með­fylgj­andi eru tölvu­gerðar myndir af nýju hús­unum, auk mynda frá athöfn sl. föstu­dag þegar tekin var skóflustunga við upp­haf fram­kvæmd­anna.

Um Nausta­vör og Sjó­manna­dags­ráð:

Nausta­vör er óhagn­að­ar­drifið leigu­fé­lag sem var stofnað árið 2001 í þeim til­gangi að byggja og bjóða upp á sér­út­búið hús­næði, með aðgengi að þjón­ustu og afþr­ey­ingu sem hentar sér­stak­lega vel fólki frá 60 ára aldri. Myndi félagið hagnað er honum varið í frek­ari upp­bygg­ingu á aðstöðu og þjón­ustu en arður er ekki greiddur til eig­enda. Nausta­vör er í eigu Sjó­manna­dags­ráðs og er eitt af helstu hlut­verkum Sjó­manna­dags­ráðs að vera leið­andi í öldr­un­ar­þjón­ustu á land­inu. Hjúkr­un­ar­heim­ili Hrafn­istu eru einnig í eigu Sjó­manna­dags­ráðs og er gott sam­starf á milli Nausta­varar og Hrafn­istu, enda eru allar leigu­í­búð­irnar í næsta nágrenni við Hrafn­istu­heim­ilin. Gott aðgengi er inn­an­húss á milli íbúð­anna og hjúkr­un­ar­heim­il­anna.

Fyrsta skóflustungan af leigu­í­búðum fyrir aldr­aða við Skólaveg.

Sjá einnig: www.naustavor.is og www.slettan.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Segir Net­anyahu þrýsta á Trump um kjarn­orku­árás

„Eftir fyrstu kjarnorkuárásina er þriðja heimsstyrjöldin óhjákvæmileg“
Pólitík

Reykja­vík ætlar að snúa millj­arða­halla í afgang á aðeins einu ári

Heimur

Úkraínsk dróna­árás olli miklum eldi í rúss­neskri olíu­hreinsi­stöð

Landið

Sváfu undir berum himni og heill­uð­ust af íslenska hálend­inu

Pólitík

Rússar undr­andi á Þorgerði Katrínu

Innlent

Innlent

Getur munað rúmum 22 þús­und krónum á umfelgun fólks­bíls

ASÍ ráðleggur fólki að óska eftir staðfestu heildarverði.
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Kona á fimm­tugs­aldri ákærð fyrir að aug­lýsa vændi á Akureyri

Innlent

Fór í búð í Graf­ar­vogi en end­aði í fanga­geymslu

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu