Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Hildigunnur, fulltrúi Íslands á Feneyjartvíæringnum: „Það er ruglað að vera myndlistarmaður

Hildigunnur, fulltrúi Íslands á Feneyjartvíæringnum: „Það er ruglað að vera myndlistarmaður
(Mynd: Eyþór Árna­son.)

„Ég er hrærð og stolt yfir að hafa verið valin og hlakka raunar ótrú­lega til þessa ferða­lags,“ segir Hildigunnur Birg­is­dóttir mynd­list­ar­maður sem á næsta ári verður full­trúi Íslands á Fen­eyj­artví­ær­ingnum.

Á hvað ætlar hún að leggja áherslu varð­andi verkin sem verða sett þar upp?

„Ég mun halda áfram að vinna að verkum mínum sem hafa í gegnum feril minn hverfst um hið mann­lega ástand og sam­band mann­kyns við umheim­inn, þau mann­legu kerfi sem hafa yfir­tekið jörð­ina.“

Hildigunnur segir að með verkum sínum reyni hún að miðla upp­götv­unum sínum sem geta birst í verk­unum sem þekk­ing, stað­reyndir eða feg­urð.

„Ætli það sé ekki nálgun mín á mann­gerða hluti sem tengir flest verka minna; ein­hver hugsun og fag­ur­fræði frekar en efni eða aðferðir.“

Hún er spurð hvað listin sé í huga hennar.

„Listin fyrir mér er lífs­nauð­syn­leg heil­brigðu sam­fé­lagi manna. Listin er ein­hvers konar speg­ill, ein­hvers kostar ristil­speglun sam­fé­lags­ins, og þar býr mikil sjálf­skoðun og feg­urð.“

Hvað gefur list­sköp­unin vænt­an­legum full­trúa Íslands á Fen­eyj­artví­ær­ingnum?

„Ég reyni með mynd­list­inni að átta mig á til­ver­unni. Þegar verk verður til hef ég náð þeim stað að mér finnst tíma­bært að miðla upp­götv­unum mínum til ann­arra.“

Frá sýning­unni Friður / Peace í i8 gallerí, 2022. Með leyfi lista­manns­ins og i8 gallerí, Reykjavík.

Utan við sig

Hildigunnur talar um barnið Hildig­unni.

„Ég hef held ég alltaf verið álitin pínu skrýtin. Ég var kannski ekki alveg normal barn þannig séð. Ég var mjög utan við mig alveg frá því ég fædd­ist. Ég bý svo vel af því að ég held að for­eldrum mínum hafi fund­ist þetta skemmti­legt. Þau voru ekk­ert með miklar áhyggjur af mér þótt ég væri svona utan við mig og fögn­uðu því bara. Ég þakka þeim það að ég fékk að sil­ast áfram í mínu skrýtna hug­ar­á­standi.“

Hún seg­ist alltaf hafa verið utan við sig og sem barn týnt öllu steini létt­ara og gleymt öllu. „Ég er örugg­lega með öðru­vísi teng­ingar sums staðar í heil­anum. Ég fór ekki í neina grein­ingu. Mér gekk alltaf vel í skóla. Ég held þetta hafi verið mis­skiln­ingur; ég hefði alveg átt heima í grein­ingu. Þetta redd­að­ist allt á end­anum. For­eldrar mínir voru þol­in­móðir og fannst þetta eitt­hvað skondið.“

Hildigunnur er spurð hvenær barnið Hildigunnur hafi fengið áhuga á mynd­list.

„Ég fór oft á lista­söfn með for­eldrum mínum og var dregin hingað og þangað. Ég átt­aði mig fljót­lega á því að þarna væri heimur sem kannski tjáði sig svipað og ég hugs­aði að þetta væri kannski ein­hver staður fyrir mig. Ég á minn­ingu þar sem ég horfði á verk eftir Kristján Guð­munds­son; ég var bara pínu­lítil á Kjar­vals­stöðum og virti fyrir mér verk sem heitir Einu sinni umhverfis sólu. Það er bók­verk sem sýnir punkta­línur og hver punktur er ein sek­únda. Þetta er sem sé ferða­lag jarðar í kringum sól­ina í einni bók. Og ég ég bara átti svona móment þar sem ég stóð þarna og var föst á jörð­inni sem var á ferða­lagi í kringum sól­ina. Þetta eina bók­verk fór með mig í þetta ferða­lag.“

Barnið Hildigunnur hugs­aði ekki með sér að hún yrði mynd­list­ar­maður en þessu man hún sér­stak­lega eftir. Hún hafði áhuga á eðl­is­fræði sem barn.

„Ég hélt ég yrði ekk­ert endi­lega full­orðin; ég sá ekki fyrir mér að ég gæti orðið full­orðin. Ég sá ekki fyrir mér full­orðna Hildig­unni að skrifa upp á víxil ein­hvers staðar í banka. En svo sá ég að það var ekki hægt að verða alltaf barn; ég sá engin full­orðin börn í kringum mig og ég vissi ekki hvernig þetta myndi enda. En þarna sá ég sam­hljóm. Ég sá að það var ein­hver sem var að hugsa eins og ég.“

Frá inn­setn­ing­unni GDP (verg lands­fram­leiðsla), sem hluti samsýning­ar­innar To Moscow! To Moscow! To Moscow!, GES-2 House of Culture, unnið fyrir V-A-C Foundation, Moskva, 2021. Með leyfi lista­manns­ins og i8 gallerí, Reykjavík.

Komið víða við

Hildigunnur var ekki lengur barn og eftir grunn­skóla­nám stund­aði hún nám bæði á eðl­is­fræði­braut og mynd­list­ar­braut við Fjöl­brauta­skól­ann í Breið­holti. Eftir útskrift hóf hún nám við Lista­há­skóla Íslands og útskrif­að­ist árið 2003.

„Ég hef komið víða við eftir útskrift. Ég hef starfað sem kenn­ari á öllum skóla­stigum, verið sýn­ing­ar­stjóri, menn­ing­ar­stofn­un­ar­stýra og setið í nefndum. Ég hef stofnað útgáfu­fé­lag og sýn­ing­ar­rými, rekið bók­verka­búð, skúrað og unnið á leik­skóla. En með­fram öllum þessum störfum hefur listin átt hug minn allan og ég hef alltaf unnið að henni í fal­legum sam­hljómi við mitt per­sónu­lega líf.“

Í dag kennir Hildigunnur bæði við Lista­há­skóla Íslands og Mynd­lista­skól­ann í Reykja­vík. „Ég hef verið að kenna inn­gangskúr­s­inn við mynd­lista­deild lista­há­skól­ans og svo minn príma aldur í Mynd­lista­skóla Reykja­víkur eru nem­endur á aldr­inum fjög­urra ára til fimm ára. Það er svo­lítið skemmti­legur aldur af því að börn á þessum aldri hafa ekki ennþá alveg farið í gegnum þessa hörð­ustu félags­mótun og hafa ekki heldur skól­ast mikið til og eru ennþá með mjög opinn huga; kerfin okkar eru ekki búin að kló­festa þau.“

Minni skúlptúrar

Hildigunnur seg­ist eiga ynd­is­legan maka og tvö börn:

„Ég er ekk­ert rosa­lega góð í að vera praktísk mann­eskja í praktísku lífi þannig að ég fer í gegnum dag­inn með allt skrifað í dag­bók til að muna hitt og þetta og ef það væri engin dag­bók þá myndi ekk­ert ger­ast.“

En hvað með áhuga­mál?

„Það er ruglað að vera mynd­list­ar­maður af því að það er líka áhuga­málið. Ég spila bad­minton með mömmu minni á mið­viku­dögum og ég sýsla við að spila við börnin og reyni að njóta lífs­ins og lista með fjöl­skyldu og vinum.“

Hún er spurð um lífs­reynslu sem hefur mótað hana:

„Ég var ein­stæð móðir um tíma af því að faðir eldri dóttur minnar flutti til útlanda. Fram að því hafði hún skipst á að vera hjá okkur. Mér fannst erfitt að vera mynd­list­ar­maður eftir að ég var ein með hana og ég skildi ekki hvernig ég ætti að sam­þætta þetta tvennt. Þetta var snemma á ferl­inum. Svo fór ég að búa til minni skúlp­t­úra og fór að gera hluti sem ég gat tekið með heim af vinnu­stof­unni og allt í einu var það að ég væri ein­stæð móðir orðið hluti af því hvernig ég gerði mynd­list og hvernig mynd­listin leit út. Og mér fannst mynd­listin vera betri fyrir vikið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina