Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Trausti með tvö skemmtileg jólaspil í verslunum: „Ótrúlega gaman að standa í þessu“

Trausti með tvö skemmtileg jólaspil í verslunum: „Ótrúlega gaman að standa í þessu“

„Hvað er ég eig­in­lega búinn að koma mér út í?“ spyr Trausti Haf­steins­son spila­út­gef­andi sig reglu­lega þessa dag­ana en hann gefur ekki bara út eitt heldur tvö íslensk borð­spil fyrir þessi jól. Spilin tvö eru Gettu betur spurn­inga­spilið og skemmtispiliið Hræri­grautur.

Gettu betur og Hræri­grautur eru komin í versl­anir í tak­mörk­uðu upp­lagi.

Íslensk spil hafa einmitt verið valin jóla­gjöf árs­ins af Rann­sókn­ar­setri versl­un­ar­innar ásamt íslenskum bókum. Dagarnir hjá Trausta hafa því verið langir í des­em­ber og and­vökunæt­urnar nokkrar. Því nær sem dregur jólum eykst álagið en brosið hverfur ekki af and­liti útgef­and­ans. „Það er ekk­ert stórt úgáfu­fyr­ir­tæki á bak við spilin, við fjöl­skyldan stöndum bara saman í þessu. Okkur finnst þetta skemmti­legt og ég vona inni­lega að þjóðin taki spil­unum opnum örmum um jólin,“ segir Trausti og bætir við:

„Það er ótrú­lega gaman að standa í þessu. Það er líka strembið og í ansi mörg horn að líta núna á aðvent­urnni“

„Litli spilamaðurinn“

Spilin tvö eru Gettu betur spurn­inga­spilið og skemmtispiliið Hræri­grautur. Það fyrra byggir á hinni geysi­vin­sælu spurn­inga­keppni Sjón­varps­ins. Kepp­endur berj­ast um bjöll­una og í spil­inu má finna hraða-, bjöllu-, vís­bend­inga- og stað­reynda­villu­spurn­ingar ásamt þrí­þraut­inni. Illugi Jök­uls­son rit­höf­undur bjó til spurn­ingar þar sem allir lands­menn geta látið ljós sitt skína.

Rit­höf­und­ur­inn Illugi Jökuls bjó til spurn­ingar og þrautir í bæði spilin.

Hræri­grautur er aftur á móti leikur að orðum fyrir alla þá sem hafa gaman af íslenskri tungu en raunar líka þá sem hafa jafn­vel ekk­ert gaman af íslensk­unni en elska skemmti­lega og fjöruga keppni. Kepp­endur glíma m.a. við nýorða­smíði, stafarugl, hengi­mann og tabú. Spilið er í raun hræri­grautur af öllum skemmti­leg­ustu orða­leikj­unum sem við þekkjum og bjó Illugi til þraut­irnar í spilið.

„Allir þeir sem hafa gaman af t.d. Alias, Fimb­ul­fambi og Kapps­máli munu elska Hræri­graut. Þetta er spil sem fær fólk til að tala, bulla og hlæja,“ segir Trausti sem er óhræddur við að fram­kvæma hlut­ina. „Ég elska að spila og fólkið í kringum mig kallar mig stundum „litla spila­mann­inn“. Þar sem ég elska spil er ég stoltur spila­út­gef­andi sem finnst gaman að vita til þess að spilin okkar fara inn á mörg heim­ili lands­manna til skemmt­unar og ánægju. Spilin eru íslenskt hug­vit og eiga heima á sem flestum heim­ilum enda sam­eina þau fjöl­skyldur og vina­hópa“

Fjölskyldan stendur saman

Trausti stendur í spila­út­gáf­unni með eig­in­kon­unni, Rún Kor­máks­dóttur, og hér eru þau saman með nýj­ustu spilin.

Trausti hvetur alla þá sem ganga með þann draum að búa til spil að kýla á verk­efnið. Þó þurfa allir að vera með­vit­aðir um að þetta er langt ferli. „Það þarf að byrja snemma á árinu að und­ir­búa spilið og svo eru þetta nokkrar rispur sem taka þarf yfir árið. Og svo er mesta klikk­unin núna á aðvent­unni þegar langstærstur hluti spila­sölu árs­ins fer fram,“ segir Trausti.

„Gettu betur spilið er full­komið fyrir fjöl­skyld­una, feiki­skemmti­legt fyrir vina­hóp­inn og alla þá sem hafa gaman af æsispenn­andi spurn­inga­keppni þar sem skiptir máli að vera fyrstur á bjöll­una. Illugi bjó til 2100 nýjar spurn­ingar þar sem áherslan var að gera þær létt­ari en í sjón­varps­þátt­unum,“ segir Trausti og heldur áfram:

„Illugi er okkar maður og hann bjó líka til skemmti­legar þrautir í Hræri­graut. Spilið er til dæmis fyrir alla þá sem hafa gaman af íslenskri tungu og líka alla þá sem hafa kannski ekk­ert gaman af íslensk­unni en elska fjöruga og skemmti­lega keppni. Hræri­grautur er frá­bært spil fyrir fjöl­skyldur og vina­hópa. Núna getur íslenska þjóðin gripið bæði spilin í jóla­pakk­ana og möndlu­gjaf­irnar en þau fást í öllum helstu versl­unum lands­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina