Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Samúel er að gera frábæra hluti í tónlistinni: „Tónlist með mikinn persónuleika höfðar til mín“

Samúel er að gera frábæra hluti í tónlistinni: „Tónlist með mikinn persónuleika höfðar til mín“

Samúel Reyn­is­son er ungur og efni­legur tón­list­ar­maður frá Hafn­ar­firði, mennt­aður píanó­leik­ari sem spilar einnig á fjölda ann­arra hljóð­færa. Mannlíf sett­ist niður með Samúel og frædd­ist um líf hans og list, en hann seg­ist njóta matar- og kok­teil­gerðar í botn og er alveg að ná tökum á inn­an­húss garð­yrkju.

Samúel, segðu mér aðeins frá því hvaðan þú kemur, frá æsk­unni, námi og fjöl­skyld­unni þinni.

„Ég er frá Hafn­ar­firði og hef búið þar síðan ég fædd­ist fyrir utan þann tíma sem ég bjó í Danmörku frá þriggja til fjög­urra ára ald­urs. Ég hef jafn­vel verið svo stað­fastur í Hafn­ar­firð­inum að ég bæði útskrif­að­ist úr Víði­staða­skóla og því næst Flens­borg­ar­skól­anum. Meira að segja hafa allir í minni náinni fjöl­skyldu verið í Flens­borg á ein­hverjum tíma­punkti, en bróðir minn og systir útskrif­uð­ust þaðan, löngu á undan mér.

Eftir stúd­ent­inn fór ég í hljóð­tækni­nám Tækni­skól­ans sem fór fram í Stúdíó Sýrlandi og útskrif­að­ist þaðan eftir 1 árs mara­þon-nám.“

Hvenær kvikn­aði áhug­inn á tón­list, og hvað varstu að hlusta á þegar þú varst krakki og ung­lingur?

„Tón­list­arsmekk­ur­inn minn var og er mjög sjaldan genre-mið­aður, en sem krakki man ég eftir að hafa til dæmis fengið æði fyrir Eminem og Ramm­stein á mis­mun­andi tímum. Áhuginn minn á tón­list hefur mikið komið frá fjöl­skyld­unni minni. Þegar ég hlust­aði af áhuga á það sem t.d. pabbi spil­aði á græj­unum sínum, það sem mamma var með í gangi í bílnum og það sem bróðir minn og systir mín áttu á geisla­diskum. Auk þess sem bróðir minn var í hljóm­sveit­inni Pan sem tók meðal ann­ars þátt í Mús­íktil­raunum árið 2002. Ég man vel eftir að hafa fengið að sjá stúd­íóið þeirra á einum tíma­punkti.“

Hvernig tón­list höfðar mest til þín svona þegar á heild­ina er litið?

Tónlist sem er skrítin höfðar mjög mikið til mín, það er ein­faldasta leiðin til að lýsa því. Tónlist með mik­inn per­sónu­leika og er sitt eigið „thing.“ Það er hægt að gera tón­list sem er af mainstr­eam stíl en hafa hana samt fulla af júník eig­in­leikum og þess vegna fylgist ég alveg með popp-tón­list eins og ég get, þó það sé ekki það sem ég er að gera sjálfur. Það er „good shit“ alls staðar í tón­list.“

Hverjir eru í mestu upp­á­haldi – hljóm­sveitir og sól­ó­artistar? Á hvað ertu til dæmis að hlusta á mest í dag?

„Dream rotation í tón­list eru að minnsta kosti King Gizzard and the Lizard Wizard, Tame Impala, Rush og Genesis, bara til að nefna fáeina sem hafa veitt mik­inn inn­blástur. En ann­ars er ég alltaf að upp­götva nýtt stöff og end­ur­upp­götva það gamla.“

Þú ert mennt­aður á píanó – var það eitt­hvað sem þú varst alltaf spenntur fyrir?

„Eins og margt annað fólk í tón­list­ar­námi, byrj­aði ég á blokk­flautu í for­skóla og ég gerði það í Tón­list­ar­skóla Hafn­ar­fjarðar. Eftir að ég kláraði tón­list­ar­skól­ann gat ég valið á milli þriggja hljóð­færa í topp 3 sem mig lang­aði að læra á. Ég setti hljóm­borð í fyrsta sæti, píanó í annað sæti og trommur í þriðja. Það er mjög lík­legt að ég hafi skrifað þessi topp 2 vegna þess að amma og afi áttu skemmt­ara sem ég lék mér á og lærði til dæmis Gamla Nóa og fleiri sígild stef í sama dúr. Aftur á móti hefði ég seint mátt kaupa mér trommu­sett til að spila á í íbúða­blokk­inni heima svo það var örlítið lang­sótt, en mig lang­aði mikið til að læra á þær.“

Hafðirðu hugsað þér að gera píanó­leik að þínu starfi?

Í fyrstu, já algjör­lega. En það er stundum erfitt að greina á milli hvað manni finnst skemmti­legt sem áhuga­mál og hvað maður myndi vilja starfa við. Það að semja tón­list og spila á hljóð­færin sjálfur inni­heldur píanó­leik en ein­ungis að hluta. Ég hef kom­ist að því að ég vil helst eyða tíma mínum í að læra á eins mörg hljóð­færi og hægt er og læra að spila á þau nokkuð vel, frekar en að mastera eitt hljóð­færi og gera það að mínu starfi. Sú hæfni sem ég þjálfa mest er að semja eitt­hvað með því sem ég hef og kann á þess­ari stundu.“

Hvað með önnur hljóð­færi – á hversu mörg hljóð­færi spilarðu?

„Það væri hægt að gera lista, en ég hef ekki tölu á því eins og er. Í Samosa sé ég um kjarna­hljóð­færi rokktón­listar, svo sem gítar, bassa og hljóm­borð. Tölvan sér um tromm­urnar á þessum fyrstu plötum, vegna skorts á trommu­setti, upp­töku­búnað og aðstöðu sem er ekki íbúða­blokk, en ég hef þó nýlega verið að æfa mig á trommur fyrir fram­tíð­ina. Auka­hljóð­færi sem ég hef eða hyggst nota í lögum eru svo munn­harpa, írsk flauta, ukul­ele, dulcimer og meló­dika.“

Hvenær ákvaðstu að kýla á dæmið og stofna hljóm­sveit, eða að byrja í hljóm­sveit, og hver var fyrsta hljóm­sveitin þín?

Það eru tvö moment sem ég veit að ollu því að ég vildi semja tón­list. Fyrst byrj­aði ég að gera synthwave tón­list þegar ég var 15 ára, eftir að hafa heill­ast af soundtrackinu í fyrstu seríu af Stranger Things. Þá var ég mikið að leika mér með syntha í FL Studio, án þess að kunna neitt mikið á hljóð­blöndun eða hvernig hljóð­gervlar virka. En ég hafði tón­fræði kunn­átt­una til þess að semja lög og birta þau á YouTube. Tveimur árum eftir það kynnt­ist ég prog rokki, eftir að hafa verið ráð­lagt að hlusta á King Crimson og þá átti ég langa opin­berun framundan. Að vinna á bóka­safni með hell­ing af vín­yl­plötum og geisla­diskum gerði það auð­velt fyrir mig að fara í gegnum lista á net­inu með yfir­lit yfir bestu prog rokk plöt­unum og taka vínyl með mér heim að láni. ‘Close To The Edge’ eftir Yes og ‘2112’ eftir Rush er það næsta sem ég hef kom­ist að því sem kall­ast ‘transcendence’. Þá fékk ég brenn­andi áhuga á “odd” takt­teg­undum og alls konar hljóð­færum sem mig lang­aði að nota í minni eigin tón­list. Að mestu leyti hefur það passion farið fram í mínu eigin svefn­her­bergi en ég hef líka spilað í hljóm­sveitum af og til yfir árin með vinum.“

Ertu með fleiri járn í eld­inum – project?

„Til hliðar við Samosa, er ég mikið að prófa mig áfram í hljóð­hönnun og “scoring”, en ég hef gert hljóð fyrir ýmis verk­efni vina minna, 3d-teikni­myndir og stutt­myndir og fleira. Auk þess að ég gerði end­ur­hönnun á hljóði fyrir trailer­inn á Elden Ring tölvu­leiknum. Þá samdi ég tón­list­ina fyrir hann og setti upp allt hljóðið upp á nýtt. Það er mjög gef­andi ferli sem ég hef mik­inn áhuga á að halda áfram að gera.“

Jæja Samúel, tölum um Samosa. Segðu mér frá upp­haf­inu og fram til dags­ins í dag um Samosa, hvenær þú fórst af stað og hvernig tón­list erum við að tala um?

„Samosa er hug­mynd sem ég byrj­aði að móta þegar ég var í hljóð­tækni­nám­inu 2021 og hef á þessu ári náð að koma af stað. Það sem er í gangi núna er fjór­leikur af smá­skífum eða ‘EP’-plötum sem eru allar nefndar eftir fjórum land­vættum Íslands. Hver plata er öðru­vísi tón­list­ar­stefna og tekur á mis­mun­andi mál­efnum sem hrjá okkur í veru­leik­anum. Ég hef meira að segja skrifað – á ensku – sög­una á bak­við hvert lag á heima­síð­unni minni.

Sögurnar tengj­ast allar saman í gegnum eina heila sögu sem fjalla um að ef land­vættir Íslands væru lif­andi í nútíma­legri fantasíu-útgáfu af Íslandi; hverju myndu þau vera ósam­mála um? Það er búið að vera sér­stak­lega skemmti­legt að þróa þennan heim og þessa karakt­era. Dreka­bún­ing­ur­inn fyrir Dragons At Home var keyptur á net­inu en fugla­bún­ing­ur­inn fyrir Birds Of A Figment Sky var aftur á móti saum­aður heima, svo hann er einn sinnar fugla­teg­undar í heim­inum. Mér finnst ég vera að skapa fínt safn af karakt­erum, með miklum inn­blástri frá Peter Gabriel þegar hann var á sviði með Genesis. Eða eins og Laddi, þar sem drek­inn er minn Eiríkur Fjalar og fugl­inn er minn Saxi læknir.

Tón­list­inni fylgir síðan mikil mynd­list sem ég nota til að aug­lýsa á net­inu bæði á heima­síð­unni og á sam­fé­lags­miðlum. Allt aug­lýs­ing­ar­efnið er galdrað fram af félaga frá Tyrk­landi. Fyrir hvern land­vætt er gerð ein mynd sem tengj­ast allar í eina for­síðu fyrir Double LP-útgáfu á Land­vætta-smá­skíf­unum. Það mun vera á streym­isveitum sem ein heil plata ásamt aðskildu smá­skíf­unum. Ef ég næ í nægi­legt fjár­magn þá von­andi verða ein­hverjar áþreif­an­legar vín­yl­plötur skreyttar þess­ari mynd­list.“

Hver sá um upp­töku­stjórn og útsetn­ingar og spilar þú á öll hljóð­færi á plöt­unni?

„Ég sá sjálfur um upp­töku­stjórn, útsetn­ingar og hljóð­blöndun en hljóð­jöfnun er gerð af öðrum aðila sem ég sendi tón­list­ina mína til. Mér líður best með það að fá ein­hvern annan til að gera loka yfir­ferð á öllu, svo það sé aldrei bara eitt sett af eyrum sem stjórnar öllu ferl­inu. Ég spila á flest sjálfur en finnst alltaf jafn skemmti­legt að fá hljóð­færa­leik­ara til mín í upp­tökur. Guðrún Lilja Páls­dóttir spil­aði á þver­flautu í lög­unum Let It Pass og Figment Sky og svo í loka­lag­inu á næstu og síð­ustu land­vætta-plötu „Big Faulty Giant“, um berg­ris­ann. Sömu­leiðis var hann Óli Þór Fortune með mér í að semja loka­lagið og hann spilar þar á píanó. Það er síðan gaman að nefna að fyrsta og síð­asta lagið á berg­risa-plöt­unni eru bæði á íslensku, sem er eitt­hvað sem ég er að gera í fyrsta skipti. Þau heita „Bergmál“ og „Sverð­bjarmi“, en platan kemur út núna á jóla­dag, 25.des 2022.“

Af hverju Land­vætt­irnir?

„Dálæti mitt á sögu­drifnum prog-rokk plötum, sem og fantasíu-bók­menntum, leiddi til þess að ég hefði alltaf skapað ein­hvers konar heim með ævin­týra­legum karakt­erum á minni fyrstu plötu. Valið á land­vætt­unum kom út frá því að ég vildi líka gera ein­hvers konar heil­stætt verk sem myndi snerta á ólíkum tón­list­ar­stílum, á hátt sem myndi meika sens – eða eins mik­inn og hægt er. Það var ekki lengra að sækja en í íslenskar þjóð­sögur til þess að byggja sög­una á, en upp­færa aðstæður og reyna að fjalla um ýmis vanda­mál sem snerta okkar nútíma, á Íslandi og í heim­inum. Sum þeirra ef til vill ekki eins yfir­vof­andi þegar Heimskringla var skrifuð, en önnur sem hafa kannski ekk­ert bæst síðan þá.“

Hefurðu gert mynd­band eða mynd­bönd?

Það er búið að taka upp eitt mynd­band, fyrir lagið ‘Dragons At Home’ sem er einnig fyrsta lagið í Land­vætta-fjór­leiknum. Mynd­bandið var tekið upp í júní og sept­em­ber ’22 og verður í klipp­ingu í vetur þar til það er til­búið og þá gefið út sem fyrst á nýju ári. Mynd­bandið fjallar sum sé um drek­ann sem er í felum í sínu athvarfi og lifir sínu lífi, burt frá stöðl­uðum og ein­ræð­is­legum heimi sér­trú­ar­söfn­uðs sem hefur tekið yfir land­inu og leitar til þess að allir fari eftir þeirra reglum. Þrír cultistar úr þeim söfn­uði eru ráðnir til þess að leita drek­ann uppi og gera út af við hann. Drekinn ætlar sér þó að opna huga þeirra og hvetja þá til sjálf­stæðrar hugs­unar.“

Samosa er á Spotify og ýmsar pæl­ingar í gangi.

„Útgáfa á tón­list frá Samosa mun von­andi aldrei enda, en tón­leikar er góður mögu­leiki í fram­tíð­inni svo fremur sem ég safna saman liði í það. Það er ágæt­lega mikið í gangi í hverju lagi sem ég væri til í að gera rétt á sviði með nóg af hljóð­færa­leik­urum, en það verður bara að koma í ljós.“

Hver eru þín helstu áhuga­mál utan tón­listar?

„Fyrir utan tón­list hef ég sjálf­sagðan áhuga á allri menn­ingu og list­formum. Fantasíu-bók­menntir spila mik­inn þátt í því ama­teur world-build­ing sem er í gangi í Land­vætt­unum, þar á meðal er mik­ill inn­blástur frá Discworld.

Auk þess, nýt ég matar- og kok­teil­gerðar í botn og er alveg að ná tökum á inn­an­húss garð­yrkju.“

Hvað kemur næst?

„Ég er með konsept fyrir næstu plötu eftir land­vætt­ina, en hún er mikið per­sónu­legri og þar er ég nú þegar byrj­aður á einu lagi. Fyrir utan það, er ég ein­ungis með grunn­hug­myndir um hvað ég vil gera og mun það halda áfram þem­anu að prófa alls konar tón­list­ar­stíla. Ég vona því að fólk sem mun rekast á plöt­urnar mínar í fram­tíð­inni séu opin fyrir því að prófa og kanna mis­mun­andi stíla og stefnur með mér.“

Að lokum, hvernig sérðu fyrir þér Samúel Reyn­is­son eftir tíu ár?

„Hann verður von­andi kom­inn með hátt í tug af útgefnum plötum, byrj­aður að láta reyna á kvik­mynda­heim­inn og nær að halda flestum plöntum á lífi sem eru ekki ein­göngu þykk­blöð­ungar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur