Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Móðir heimilislauss manns stígur fram og krefst breytinga: „Við höfum verið með lögregluvernd“

Móðir heimilislauss manns stígur fram og krefst breytinga: „Við höfum verið með lögregluvernd“
Young bru­nette in warm pink sweater isolated on blue background hold­ing hands folded on chest, heart copy space Mynd: Anastasiya Kargapolova

Á Íslandi er tals­verður fjöldi heim­il­is­lausra og lítið um úrræði fyrir þennan hóp. Fólk á öllum aldri leita í athvörf og gisti­skýli sem ætluð eru heim­il­is­lausum. Mannlíf ræddi við móður 25 ára manns sem neyð­ist til að leita í gisti­skýlið á Lind­ar­götu en þar er aðstaða fyrir 25 karl­menn.

„Ég hef ekk­ert sam­band við hann nema ein­staka sinnum þegar hann hringir. Ég er oft búin að skipta um síma, hann hefur bara kom­ist að því hvaða númer ég er með. Ég vil samt vita hvar hann er, ég held alltaf að hann sé að deyja“ segir móðir manns­ins en hún kýs að njóta nafn­leyndar. Sonur hennar glímir við fíkni­sjúk­dóm og ein­hverfu ásamt alvar­legri kvíða­röskun. Ein­hverfan kom þó ekki ljós fyrr en hann var orð­inn tví­tugur.

Móðirin segir son sinn leita til vett­vangs- og ráð­gjafateymis Reyja­vík­ur­borgar en þar er veitt ráð­gjöf til þeirra sem eru heim­il­is­lausir og glíma við vímu­efna- eða geð­vanda. Hún segir teymið þó lítið geta gert, þar er skortur á fjár­magni. Sonur hennar hringir þangað þegar hann er útskrif­aður af fíknig­eð­deild Lands­spít­al­ans en þar hefur hann legið inni oft. Hjá ráð­gjafateym­inu er rætt við hann í um hálf­tíma á dag, fleiri eru úrræðin ekki.

„Hann hringir í þau þegar hann er að losna af fíknig­eð­deild, hann er alltaf útskrif­aður snemma þaðan, er orð­inn svona krónískur þar. Það er kom­inn stimp­ill á hann, hann er búinn að fara í svo margar inn­lagnir og er tal­inn ómeð­ferð­ar­hald­inn.“

Dreng­ur­inn fékk ekki grein­ingu upp á ein­hverfu fyrr en á full­orð­ins­árum en hann er einnig greindur með mik­inn kvíða, „Hann er með dæmi­gerða ein­hverfu og sjúk­legan kvíða, er með grein­ingu upp á það en hann flokk­ast hvergi, hvorki sem geð­veikur eða fatl­aður. Hann passar hvergi inn í neitt kerfi,“ segir móð­irin. Hún hefur reynt allar leiðir til að hjálpa syni sínum, leitað til margra lækna og félags­ráð­gjafa en aldrei fær hann næga aðstoð. Hann er settur á ávana­bind­andi lyf í flokki benzódíazepíns en þau eru gjarnan notuð í neyð. Mörg svefn­lyf til­heyra þessum flokki, ásamt kvíða­still­andi og róandi lyfja. Ávana­hætta lyfj­ana eykst því lengur sem þau eru notuð og eru þau því ekki hugsuð sem lang­tíma­lausn. Þekkst hefur þó á Íslandi að læknar fari ekki alltaf eftir þessum til­mælum. Sonur móð­ur­innar fær þessi umdeildu lyf við ofsa­kvíða.

„Þegar hann er um 18 ára upp­götvar hann að hann sé kom­inn með svo mik­inn kvíða, hann fer til læknis sem setur hann á bensó lyf. Þá er hann aldeilis kom­inn á græna grein, bensó er töfra­lausnin. Honum líður svo vel á þessu en það er þannig með bensó lyfin að þú verður háður þeim, færð gríð­ar­leg frá­hvörf og þarft alltaf meira.“

Fljótt er hann orð­inn fangi lyfj­anna, eins og ger­ist oft við mis­notkun þeirra. „Hann gengur á milli lækna og not­aði mig sem aðgangs­eyri að lækn­unum og ég segi alltaf að honum líði svo illa og að það þurfi eitt­hvað að gera. Hann varð eins og lyfja­fræð­ingur, kunni utan af hvaða lyf gerðu hvað. Mér fannst svo erfitt að horfa upp á barnið mitt líða illa og ég sá að þetta hjálp­aði honum en ég átt­aði mig ekki á því í hvaða hyl­dýpi hann var að fara,“ segir móð­irin.  Sonur hennar flosnar upp úr skóla og neyslan versnar. Hann er heima allan dag­inn, sefur og tekir lyf. Heim­il­is­lífið varð sífellt erf­ið­ara, son­ur­inn fer að sýna ofbeld­is­hegðun og allt fór að snú­ast um að halda honum góðum. „Allir voru markeraðir af þessu, mað­ur­inn minn var hættur að vilja koma heim eftir vinnu. “

Það kvikn­aði von í hjarta móð­ur­innar þegar sonur hennar byrj­aði í sam­bandi. Um ein­hvern tíma gekk vel, hann var fljótt kom­inn með bíl og hús­næði en náði þó aldrei að halda sér í vinnu. „Fljót­lega eftir að þau flytja inn er hann far­inn að sofa sóla­hring­unum saman. Hann kynn­ist svo manni sem er mikið á djammi, mikið í kóka­íni og neyslu og hann fer á fullt í það. Á nokkrum mán­uðum er kærastan flutt út, hann far­inn að beita ofbeldi og orð­inn mjög agressívur. Ég er þarna orðin mjög hrædd við hann. Hann fer að koma heim til okkar í ann­ar­legu ástandi, ógnar okkur, berj­andi allt að utan og er alltaf öskr­andi á hjálp. Þetta er þarna orðið mjög óeðli­legt og mikið ofbeld­is­sam­band. Ég fer alltaf að reyna að róa málin með hina í fjöl­skyld­unni og er alltaf í fram­lín­unni með hann.“

Engin úrræði eru fyrir fólk með geð- og fíkni­sjúk­dóma sem getur ekki búið sjálf­stætt. Sonurinn er ekki fær um að  búa einn og segir móðir hans vera nær ómögu­legt að finna fyrir hann hús­næði.

„Hann er með félags­ráð­gjafa í þjón­ustu­mið­stöð sem er að sækja um hús­næði fyrir hann hjá borg­inni. Við höfum heyrt að það taki mörg ár að fá hús­næði. Við fjöl­skyldan vitum að það þýðir ekk­ert að skaffa honum bara hús­næði, það þarf að vera ein­hverss­konar for­stöðu­maður allan sóla­hring­inn þar sem hann er. Honum er ekki sjálfrátt, hann hefur aldrei getað unnið. Hann er með eðli­lega greind og klárar grunn­skóla en hann er með svo sjúk­legan kvíða gegn öllum kröfum sem gerðar eru til hans í líf­inu, alveg sama hvað það er, hann forð­ast allt. Hann getur ekki tekið ábyrgð á sjálfum sér. Þau hús­næði sem hann hefur fengið, hefur hann náð að rústa á bara nokkrum dögum eða vikum. Hann kann ekki að ganga um. Hann hefur alist upp við mjög góð kjör og aðstæður, ekk­ert ofbeldi, ekk­ert í upp­eld­inu sem skýrir neitt.“

Hann varð fyrir miklu ein­elti í grunn­skóla

Móðirin segir fjöl­skyld­una ekki hafa fengið hjálp þegar sonur hennar var á grunn­skóla­aldri, hann er sendur í grein­ingu en ekk­ert kemur úr henni annað en kvíði. „Við fáum þarna enga hjálp, hann passar ekki í neinar grein­ingar, hann fer í ein­hverfu­grein­ingu en það kemur ekki fram, ekki fyrr en seinna þegar það er gerð grein­ing á geð­deild­inni. Þegar við horfum til baka sjáum við hvað hann hefur þurft gríð­ar­legan stuðn­ing í grunn­skóla. Hann var lát­inn kvelj­ast í raun og veru.“

„Hann varð fyrir miklu ein­elti í grunn­skóla. Ég var alltaf að reyna að passa hann, hjálpa honum en hann var alveg félags­lega van­hæfur. Hann var stilltur í skól­anum en heima hélt hann fjöl­skyld­unni í gísl­ingu. Honum leið alltaf illa, var með læti. Bróðir hans flúði bara inn í her­bergi. Við gátum aldrei beðið hann um að gera neitt, við héldum að hann væri latur. Hann var fyrsta barnið okkar og við skyldum aldrei hvað væri að honum. Yngri sonur okkar er fjórum árum yngri og hann þroskað­ist eðli­lega, þá fött­uðum við hvað þetta var sjúk­legt. Þegar hann er tólf ára kom í ljós að hann væri búinn að þola ein­elti. Þegar skól­inn byrj­aði um haustið árið sem hann átti að ferm­ast, sagð­ist hann ekki geta farið í skól­ann, hann vildi frekar deyja. Hann hefur ekki viljað segja mér allt, þetta var svo ógeðs­legt og hann skamm­að­ist sín fyrir það.“

Eineltið skánar þegar móð­irin tekur málin í sínar eigin hendur. Sonurinn á þó enn erfitt með námið og kemur fljótt í ljós að eitt­hvað sé ekki eins og það á að vera. Hjálpina er þó ekki auð­velt að fá. „Ég fer í það að skipta um skóla fyrir hann, það er aldrei hlustað á okkur. Þá fer honum að líða aðeins betur. Það fer að koma meira í ljós eftir því sem hann verður eldri, þegar hann á að gera verk­efni sem eru meira krefj­andi, þá stendur hann eins og ráða­villtur og veit ekk­ert hvað sé að ger­ast. Skólinn lætur vita af þessu og sagði hann aldrei taka neinum fyr­ir­mælum, þau eru bara að gagn­rýna hann. Það er ekk­ert talað um að hjálpa honum.“

Móðirin segir son sinn ekki hafa leitað í áfengi eða önnur hug­breyt­andi efni til að deyfa sig, sem vill oft verða í svona málum. Hann áttar sig ekki á því að vímu­efni geti verið ein­hverss­konar lausn fyrir hans líðan.

„Hann klárar grunn­skól­ann og er ekki einu sinni far­inn að drekka. Þegar hann fer í fram­halds­skóla fer hann að smakka vín. Það eru engir alkó­hólistar í fjöl­skyld­unni. Hann hefur ekki verið að sækj­ast í að deyfa sig, á þessum tíma fattar ekki að það sé eitt­hvað. Hann klárar fyrsta árið í fram­halds­skóla en fer svo að verða stress­aður, hann fer hund­rað sinnum á kló­settið og getur ekki lært heima. Ég neyð­ist til að lesa fyrir hann allar bækur. Allt fer í taug­arnar á honum, meira að segja upp­lest­ur­inn hjá ein­hverjum á hljóð­bókum. Ég er þarna komin í fulla vinnu við að sinna þessu barni.“

Ástandið fer áfram versn­andi, móð­irin er orðin úrræða­laus. „Ég held lengi að þetta myndi bara lag­ast. Ég reyni að fá hann til sál­fræð­ings en hann vili það aldrei, ofboðs­leg forðun er hans grein­ing. Hann getur ekki horfst í augu við vanda­málin, hann flýr.“

Eftir eitt ár í fram­halds­skóla hættir son­ur­inn í skóla. Líðan og hegðun tekur stórum breyt­ingum til hins verra. „Hann flosnar upp úr skól­anum, hann fer að vera bara heima, sefur allan dag­inn, tekur pillur og fer svo út á kvöldin. Tekur ekki þátt í neinu á heim­il­inu og heldur öllum í hel­greipum þegar hann kemur úr her­berg­inu sínu.“

Móðirin hefur þurft á mik­illi sjálfs­vinnu að halda og segir sjúk­dóma og ástand son­ar­ins hafa tekið mikið á hennar líðan og gert hana nán­ast óvinnu­færa. Hún er sjálf orðin veik. “Maður er svo van­mátt­ugur, grát­gjarn. Reyna að standa sig í vinnu. Þú hefur engan bar­daga­mátt. Ég verð rosa­lega með­virk með honum.“ Hún seg­ist hafa gert ýmis­legt sem hún er ekki stolt af, en oft­ast fylgja fíkl­inum með­virkir aðstendendur. „Hann hringir og segir mér að koma með ýmis­legt. Ég er þá farin að ljúga að mann­inum mínum, eyði oft helm­ingnum af laun­unum mínum í hann og það hefur örugg­lega mikið til farið í dóp.“

Hún segir son sinn hrein­lega vera hættu­legan sjálfum sér og öðrum. Fjöl­skyldan hefur þurft á vernd að halda. „Hann hefur ekki komið heim til okkar í um tvö ár. Við höfum verið með lög­reglu­vernd og nálg­un­ar­bann á tíma­bili. Alltaf þegar hann reynir að koma heim, hringjum við á lög­regl­una því við vitum ekki í hvaða ástandi hann er.“ Hún hefur þó unnið mikið í sínum málum og náð góðum árangri gegn með­virk­inni. Hún er alltaf hrædd um son sinn, ótt­ast það að missa hann. Að eigin sögn er langt síðan fjöl­skyldan byrj­aði að syrgja lif­andi mann­inn, hann er ekki sá sami og hann var.

„Ég er alltaf hrædd um að það sé að koma prestur heim. Ef ég heyri eitt­hvað í fréttum er ég viss um að það hafi eitt­hvað komið fyrir hann. Mér líður best ef ég veit ekk­ert af honum. Það eru margar mæður í svip­aðri stöðu sem verða öryrkjar af álagi. Ég ætla ekki að verða þannig, en ég er rosa­lega ráð­þrota.“

Þetta er búið að vera algjör martröð

Sonurinn er nú heim­il­is­laus, hann fær skjól í gisti­skýl­inu á Lind­ar­götu en þar er þó bara opið yfir nótt­ina. Á dag­inn ráfar hann um og finnur leiðir til að fjár­magna neysl­una „Sið­ferð­is­kenndin í honum er orðin mjög skökk. Hann hefur verið rétt­sýnn og eðli­lega sið­ferð­is­lega hugs­andi en hann er orð­inn hálf­grill­aður núna.“

Hann hefur þó reynt að koma lífi sínu á rétta braut en það hefur ekki skilað árangri nema í skamman tíma. Hann getur þó ekki hugsað sér að vera án allra ávana­bind­andi lyfja. „Það koma tíma­bil þar sem hann er í lagi en hann verður alltaf að vera á ein­hverjum lyfjum. Hann getur ekki hugsað sér lífið án lyfja. Hann hefur farið á áfanga­heim­ili og orðið eðli­legur aftur, húsum hæfur og sam­ræðu­góður en svo koma alltaf þessi kvíða­köst. Hann nær aldrei að kom­ast út úr þeim og fer þá í lyfin.

Móðirin segir erfitt að horfa upp á son sinn hverfa, hún vilji sjá úrræði fyrir fólk eins og hann. „Þetta er búið að vera algjör martröð en ég reyni að lifa einn dag í einu. Ég vil helst ekki eiga sam­skipti við hann, hann er kom­inn svo langt út fyrir þennan heil­brigða heim en mér finnst samt sárt að sjá að hann fái ekki aðstoð. Ég veit að ef hann fengi að vera ein­hvers­staðar þar sem er aðili allan sóla­hring­inn, þar sem hann gæti leitað til ein­hvers, það væri það sem hann þyrfti til að ná sér á strik.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una