Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Konum leiðbeint: „Leiðréttið aldrei karlmann að öðrum viðstöddum“

Karl­manninum er engin launung á því, að kona vill geðjast honum og honum geðjast meira að segja að því. Hitt gremst honum, að við vanmetum hann, er við reynum að veiða hann í net okkar með kænsku­brögðum, sem ekki byggjast á tryggri undir­stöðu.

Svo mælist Joan Bennet í bók sem á íslensku var nefnd Aðlaðandi er konan ánægð. 

Baksýnis­spegill kvöldsins er húslestur úr þessari grát­broslegu bók sem sýnir hvað skýrast, svart á hvítu, hvernig afstaða til kynjanna hefur breyst gríðar­lega frá eftir­stríðs­árunum.

Leiðréttið aldrei karlmann

Í kaflanum Að geðjast karl­mönnum er margan gull­molann að finna. Grípum niður í þau ráð sem konum er þar gefin.

Leið­réttið aldrei karlmann að öðrum viðstöddum, málfæri hans, skoðanir, né setjið út á hegðun hans og siði.

Guð forði nokkurri konu frá að særa stolt karlmanns!

Svíkið ekki gefið loforð um stefnumót, þó að yður bjóðist annað skemmtilegra.

Hans skemmtun hlýtur jú að ganga fyrir.

Segið engum manni ósatt. Neitið að svara eða sneiðið hjá því, en ljúgi ekki upp í opið geðið á honum. Það kemst upp.

Þarna getur vart annað verið en verið sé að vísa til yfirgrips­meiri meiri greindar karla en kvenna.

Setjið móður­tilfinninguna á hilluna og leyfið manninum að ráða þá stuttu stund sem hann býður yður út. Þér verður sjálfsagt undrandi yfir, hve gaman það er að láta dekra þannig við sig.

Þetta segir sig jú sjálft.

Biðjið, skrifið ekki og forðizt kaldhæðni. Karlmenn hata og hafa alltaf hatað hæðni allt frá því, er þeir voru á skóla­bekknum; þeir hötuðu hæðni kennarans, hæðni konunnar geta þeir aldrei fyrir­gefið. 

Uh……Er eitthvað hægt að segja við þessari full­yrðingu?

Er fráfælandi fyrir karlmenn

Annar partur bókarinnar fjallar um hvernig útliti konu skuli háttað vilji hún vekja athygli karlmanna og er þess vandlega gætt að minna konur á að særa aldrei stolt karl­peningsins.

Þeir kæra sig ekki um að fara halloka eða verða vísað á bug. Þeir forðast því meyjuna, sem virðist þeim svo miklu framar í útliti, að þeir gera sér engar vonir um að ná hylli hennar. Vertu ekki þannig að enginn þori að nálgast þig. Allt of skrautleg greiðsla, of farðað andlit, of áberandi kjóll – allt er þetta fráfælandi fyrir karlmenn.

Veittu fylginaut þínum þann heiður að gefa honum óskipta athygli þína, er hann talar við þig. Sýndu ánægju þína yfir þeirri skemmtun sem hann kann að veita þér. Vertu ekki að látast vera nein heimskona í háttum þínum.

Þeir kunna vel við fallega fótleggi

Höfundur er augljós­lega sérfræðingur í smekk karlmanna eins og sjá má af eftir­farandi alhæfingum:

Karlmenn hrífast frekar af glaðlegu andliti en mjög fríðu. Ánægjan, sem karlmenn hafa af því að horfa á ólundarlegt andlit, er aðeins fólgin í vitneskjunni um að þeir þurfi ekki að hafa þau fyrir augum alla daga.

Karlmenn kjósa heldur konu sem er kvenleg, en hina sem er áberandi fegruð og nýtízkuleg. Þeim geðjast að hári, sem er mjúkt á að líta, hreint og gljáandi. Þeim líkar vel varalitur, en mislíkar að hann sé eins og klessu­verk. Þeir kunna vel við venjulega liti, blátt, ljósrautt, marínu­blátt, rautt, en þeir kunna illa við áberandi lita­samsetningar. Þeir kunna vel við fallega hatta, helst frekar stóra, en þeir kunna illa við einkenni­lega lagað filt eða strá, sem þeim finnst skrýtið og fara illa. Þeir kunna vel við föt, sem fara vel og dylja ekki, að þér eru kvenvera. En þeir kunna illa við gróf og fyrirferðar­mikil föt, sem hylja allt vaxtarlag. Þeir vilja fyrir hvern mun losna við að sjá í gegn það sem innanklæða er, eins og mjaðma­belti eða lífstykki.

Þeir kunna vel við fallega fótleggi.

Drekkið ekki áfengi

Það var augljós­lega engin #metoo hreyfing komin árið 1945 eins og lesa má:

Þegar maður, sem lítur á yður, hefur virt fyrir sér andlit yðar og klæðaburð, veitir hann athygli svip­brigðum yðar. Vitandi eða óaðvitandi athugar hann hvort þér eruð „lifandi“ vera, röskleg á að líta.

Þau áhrif, sem hann verður fyrir, nærst allra fyrstu sýn, eru undir fjöri yðar og röskleika komin. Með fjöri á ég ekki við ungmeyjarleg látalæti og fliss, heldur lífsfjör, blátt áfram, frjáls­lega framkomu, sem ber vott um lífsþrótt, lifandi áhuga og greind.

Drekkið ekki áfengi svo þér verðið ekki kennd eða ástleitin og sýnið ekki manninum nein blíðu­atlot, þó sakleysisleg séu. Það kann að misskiljast og er rangt gagnvart manninum.

Svo mörg voru þau orð. Bókin var íslenskuð árið 1945.

Þessi spegill birtist áður 26 júní 2021.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim