Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Hann var eðlilega ekkert spenntur fyrir að fara á fjörurnar við konu af því að mamma hans vildi það

Hann var eðlilega ekkert spenntur fyrir að fara á fjörurnar við konu af því að mamma hans vildi það

Ég vann í verslun í nokkur ár og kynnt­ist í gegnum starf mitt afar elsku­legri konu sem ég leit smám saman á sem vin­konu þótt hún væri mun eldri en ég og gæti verið móðir mín. Ekki grun­aði mig þarna fyrst að hún ætti eftir að verða mik­ill og góður örlaga­valdur í lífi mínu.

Ömmu­systir mín, tals­vert yngri en amma, rak litla sér­verslun árum saman í mið­borg­inni og þegar hún fór að verða lat­ari við að standa í búð­inni bauð hún mér vinnu þar. Í raun dugði alveg að ég væri ein, það var alltaf eitt­hvað að gera en aldrei það mikið að það kall­aði á fleiri við afgreiðslu, nema kannski fyrir jólin en þegar ferða­mönnum fór að fjölga varð auð­vitað mun meira að gera. Á þessum tíma var það ekki byrjað fyrir alvöru svo yfir­leitt stóð ég vakt­ina ein. Ég get ekki sagt að það hafi verið gaman að hafa engan til að spjalla við þegar rólegt var, eins og á morgn­ana, en ég tók oft með mér bók til að lesa á meðan ég beið. Frænka mín átti hús­næðið sjálf sem gerði senni­lega að verkum að búðin bar sig.

Eftir að ég hafði unnið þarna í tæpt ár fór að vinna í búð­inni við hlið­ina mjög indæl kona, Hjördís. Þegar lítið var að gera buðum við hvor annarri yfir í kaffi. Það var eins og við hefðum alltaf þekkst og það sem við gátum hlegið saman. For­eldrar mínir bjuggu úti á landi og mér fannst ég hafa eign­ast auka­mömmu í Höddu, eins og hún var alltaf kölluð.

„Hadda tal­aði stundum um yngsta barn sitt, son sem var tæp­lega þrí­tugur eins og ég og sagði að við tvö myndum nú aldeilis eiga vel saman. Værum með svip­aðan smekk og skoð­anir og alveg sama húmor­inn.“

Hinn fullkomni sonur

Hadda tal­aði stundum um yngsta barn sitt, son sem var tæp­lega þrí­tugur eins og ég og sagði að við tvö myndum nú aldeilis eiga vel saman. Værum með svip­aðan smekk og skoð­anir og alveg sama húmor­inn. Smám saman átt­aði ég mig á því að henni var alvara með þessu þótt hún segði þetta í gríni. Hún minnt­ist nokkrum sinnum á að hún vildi svo gjarnan fá mig sem tengda­dóttur. „Auðvitað ættu tengda­mæður að fá að velja tengda­dæt­urnar,“ sagði hún og hló.

Ég var svo­lítið hvekkt á þessum tíma, um svipað leyti og ég hóf störf í búð­inni hafði ég hætt að vera með manni sem mér leið hreint ekki vel með. Hann hafði beitt mig miklu and­legu ofbeldi, sem ég átt­aði mig ekki almenni­lega á fyrr en eftir að við hættum saman. Hann reyndi enda­laust að breyta mér á allan hátt sem hafði haft slæm áhrif á sjálfs­traustið þótt ég vissi að hann hefði ekki rétt fyrir sér. Ég var ekki sér­lega spennt fyrir því að binda trúss mitt við annan mann í bráð.

Hadda var aldrei aðgangs­hörð og orð­aði þetta ekki oft en ég vissi alveg að henni var alvara. Einu sinni sagði hún að hún ætti hrein­lega að bjóða mér í mat og kynna okkur þannig en ég sagði að það yrði allt of vand­ræða­legt fyrst hún væri búin að tala um þetta við bæði mig og son­inn. Hadda hafði víst talað mikið um mig við son­inn en ef hún hefði ekki sagt mér það hefði ég eflaust látið vaða og mætt í mat. Fyrst hún hafði gert það hefði mér fund­ist mat­ar­boðið eins og verið væri að hleypa til, eins og sagt er í sveit­inni.

Hadda átti þrjár dætur sem allar voru fluttar að heiman en son­ur­inn eini og yngsta barn hennar, bjó enn heima, þannig séð, eða í pínu­lít­illi íbúð án eld­húss í kjall­ar­anum.

Hadda sagði mér seinna að hún hefði nagað sig í hand­ar­bökin yfir því að hafa minnst á þetta við bæði mig og son­inn, auð­vitað hefði hún átt að bjóða mér beint í mat og kynna okkur þannig, en hún var svo hvat­vís og sagði iðu­lega hvað hún var að hugsa. Hvat­vísin var eitt af því sem mér fannst svo sjar­mer­andi við hana.

Ég vissi það auð­vitað ekki þá að hún tal­aði mikið um mig við son­inn, miklu meira en um hann við mig, og reyndi að fá hann til að bjóða mér út, bara í bíó eða út að borða en hann var eitt­hvað tregur. Hann var eðli­lega ekk­ert spenntur fyrir að fara á fjör­urnar við konu bara af því að mamma hans sagði það og von­aði að hún hætti þessum afskiptum af ásta­málum hans. Hann hafði séð mig álengdar þegar hann átti erindi við hana í búð­inni og alls ekki lit­ist illa á mig en hann sagði ekki orð um það við nokkurn, hann vildi stjórna sínum málum sjálfur.

Loksins!

Á þessum tíma vann ég oft um helgar við að þjóna til borðs á veit­inga­stað sem for­eldrar vin­konu minnar ráku. Hadda vissi vel af þess­ari auka­vinnu minni og yfir­leitt hvenær ég væri að vinna. Eitt sinn fékk hún þá „frá­bæru“ hug­mynd að öll fjöl­skyldan, hún og eig­in­mað­ur­inn ásamt börnum og tengda­sonum færu út að borða og kæmu mér þannig skemmti­lega á óvart. „Þá hitt­ist þið loks­ins og fallið hvort fyrir öðru, ég veit að þið gerið það, það er skrifað í stjörn­u­rnar,“ sagði hún við son­inn. Hann skelli­hló og sagð­ist ekki vilja gera mér það að fá alla fjöl­skyld­una, eins og til að skoða hana, hann skyldi bjóða mér út.

Ég vissi auð­vitað ekk­ert af þessu. Hadda var vissu­lega bráð­lát og þegar henni fannst hún fá góða hug­mynd lét hún yfir­leitt vaða án þess endi­lega að hugsa út í afleið­ingar.

Einn dag­inn hringdi Bjarki svo í mig og bauð mér á stefnu­mót. Hann sagð­ist hafa lofað mömmu sinni þessu, væri ekki bara snið­ugt ef við hitt­umst svo hún hætti þess­ari enda­lausu hjú­skap­ar­miðlun og léti okkur í friði. Ég var til í það og hló með honum.

Við vorum svo­lítið vand­ræða­leg í byrjun stefnu­móts­ins en fljót­lega fór feimnin af okkur og í ljós kom að við áttum sér­lega vel saman, alveg eins og mamma hans hafði sagt. Hadda hefði auð­vitað getað eyði­lagt allt með því að tala stans­laust um þetta en hún gerði það alls ekki, heldur laum­aði því að annað slagið. Hún var alls ekki óþol­andi afskipta­sama týpan þótt henni væri fúlasta alvara. Okkur fannst að minnsta kosti ekki eins og við værum að gera henni til geðs með því að verða hrifin hvort af öðru sem var óhjá­kvæmi­legt eftir að við hitt­umst. Frekar að þrátt fyrir afskipti hennar höfum við náð saman. Við fórum að búa saman ekki löngu eftir að við hitt­umst.

Tengda­mamma segir öllum sem á vilja hlýða að hún hafi hand­valið mig, eða passað að ég slyppi ekki úr fjöl­skyld­unni. Hljómar kannski ekki vel en ég hrósa oft „Hjú­skap­ar­miðlun Hjör­dísar“ fyrir frá­bæran árangur. Við Bjarki hefðum eflaust ekki kynnst ef ekki hefði verið fyrir Höddu. Og þetta varð ein­hvern veg­inn aldrei vand­ræða­legt nema bara allra fyrstu mín­út­urnar á stefnu­mót­inu. Ég hefði ekki getað kosið betri tengda­fjöl­skyldu og Bjarki er alveg jafn­d­á­sam­legur og mamma hans hafði sagt.

„Og þetta varð ein­hvern veg­inn aldrei vand­ræða­legt nema bara allra fyrstu mín­út­urnar á stefnu­mót­inu. Ég hefði ekki getað kosið mér betri tengda­fjöl­skyldu og Bjarki er alveg jafn­d­á­sam­legur og mamma hans hafði sagt.“

Frábær fjölskylda

Við giftum okkur sum­arið áður en ég varð þrí­tug en Bjarki átti einnig þrí­tugs­af­mæli þetta ár. Ég varð mjög glöð þegar fjöl­skylda hans gaf okkur ferð til London í afmæl­is­gjöf, langa helgi, eða fjóra daga sem ég hlakk­aði til að verja með honum. Ég var sú eina úr vina­hópnum sem hafði aldrei til London komið svo til­hlökk­unin var mikil.

Ég garg­aði úr hlátri þegar við fórum að sjá fjöl­skyldu hans bregða fyrir víðs vegar um Leifs­stöð á brott­far­ar­dag­inn. Mamma hans að velja sér ilm­vatn í Frí­höfn­inni, pabbi hans á bar og systur og mágar á þvæl­ingi þarna, öll mjög sak­leys­is­leg á svip­inn. Lund­úna­ferðin okkar Bjarka breytt­ist í bráð­skemmti­lega fjöl­skyldu­ferð. Ég held að Bjarki hafi haft ein­hvern grun um hvað stæði til, hann þekkir sitt fólk, en hann minnt­ist þó ekki á neitt við mig. Á laug­ar­dags­kvöld­inu bauð fjöl­skyldan okkur Bjarka út að borða á geggj­aðan mat­sölu­stað. Þetta er ein skemmti­leg­asta utan­lands­ferð sem ég hef farið í og þegar vin­konur mínar spurðu mig hvort ég hefði ekki orðið fyrir von­brigðum að fá tengda­fjöl­skyld­una með í róm­an­tísku ferð­ina, harð­neit­aði ég því. Ef eitt­hvað er, gerðu þau allt svo miklu skemmti­legra.

Við Bjarki eigum tvö börn og annað þeirra heitir auð­vitað í höf­uðið á upp­á­halds­hjú­skap­ar­miðl­ar­anum mínum, annað kom ekki til greina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Fólk

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Var á reist árið 1979
Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina