Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Lífsreynslusaga Mannlífs: Litla dóttir mín fékk heilahimnubólgu og var hætt að þekkja mig

Lífsreynslusaga Mannlífs: Litla dóttir mín fékk heilahimnubólgu og var hætt að þekkja mig

Eftir að for­eldrar mínir skildu ákvað mamma að flytja með okkur systur út á land. Í kaup­staðnum bjó einnig æsku­vin­kona hennar sem átti tvær dætur. Þá eldri átti að gera að vin­konu minni og yngri að vin­konu systur minnar.

Ég skynj­aði þó fljótt að eitt­hvað illt leynd­ist í þeirri systur sem mér var ætluð og við urðum aldrei vin­konur. Mörgum árum seinna lágu leiðir okkar saman og ég átt­aði mig á að hún hafði ekk­ert breyst.

Mamma og Guðrún vin­kona hennar höfðu ekki verið í miklu sam­bandi síð­ustu árin, eðli­lega kannski, báðar að stofna fjöl­skyldu og bjuggu hvor í sínu bæj­ar­fé­lagi. Það breytt­ist eitt­hvað smá­vegis eftir að við fluttum í kaup­stað­inn, heimabæ manns­ins hennar Guðrúnar, en þær urðu samt ekki jafn­góðar vin­konur og áður.

Mamma var með góða menntun og fékk því fína vinnu. Mér og systur minni gekk ágæt­lega að aðlag­ast á nýja staðnum og við eign­uð­umst fljót­lega góðar vin­konur.

Óttaðist allar gamlar konur

Eldri dóttir Guðrúnar, Stína, var ári eldri en ég og frá því ég hitti hana fyrst lík­aði mér illa við hana. Hún sagði mér hræði­legar sögur um eldri konu sem bjó á staðnum og rændi börnum og gerði þeim eitt­hvað hræði­legt. Óttinn við þessa konu eyði­lagði fyrir mér fyrsta sum­arið. Ég var að verða sjö ára og hafði verið bless­un­ar­lega laus við að það væri logið að mér og trúði því sem hún sagði.

Til öryggis forð­að­ist ég allar gamlar konur og ég man eftir að mamma gat orðið mjög pirruð, hún hafði kannski sent mig út í búð eftir eggjum sem ég síðan braut á flótta mínum undan sára­saklausum gömlum konum … Fyndið eftir á en ég gleymi samt aldrei ótta mínum og hversu sár og reið ég varð þegar ég upp­götv­aði að hún var bara að ljúga að mér. Þegar ég byrj­aði í skól­anum og kynnt­ist öðrum krökkum sem höfðu lent í henni kom hið sanna í ljós. Ég man eftir að hafa séð Stínu brosa ill­girn­is­lega þegar henni tókst að hræða mig en skildi aldrei hvernig hægt var að hafa gaman af því að gera aðra krakka hrædda.

Gerði æsku systur sinnar að martröð

Hún reyndi ekki bara að blekkja mig og fleiri krakka með ljótum sögum, heldur var yngri systir hennar, Anna, hent­ugt fórn­ar­lamb, við­kvæm og trú­gjörn stelpa. Ég held að ég ýki ekk­ert þótt ég segi að henni hafi tek­ist að gera æsku hennar að algjörri martröð. Anna varð algjör vælu­skjóða og klag­aði allt og alla sem gerði hana að óvin­sælum krakka. Hún reyndi að segja frá ljótum lygum syst­ur­innar en Stína var svo lúmsk að aum­ingja Önnu var aldrei trúað. Hún var bara skömmuð fyrir að klaga. Stína var alltaf sak­leysið upp­málað, hún stóð sig vel í skól­anum og var í upp­á­haldi hjá kenn­ar­anum. Enginn full­orð­inn sá í gegnum hana.

Ég man að mamma og Guðrún reyndu einnig að fá systur mína og Önnu til að verða vin­konur því þær voru nálægt hvor annarri í aldri eins og við Stína, en það tókst ekki heldur, senni­lega af því að Anna fór í taug­arnar á systur minni, og flestum öðrum.

Við neydd­umst til að umgang­ast syst­urnar minnst fjórum sinnum á ári, eða í afmæl­unum okkar. Mér fannst reyndar mikið til­hlökk­un­ar­efni að fara í afmælin hjá Önnu og Stínu, ekki vegna hall­æris­legu leikj­anna, heldur voru kök­urnar sem Guðrún bak­aði ofboðs­lega góðar, þær bestu sem ég fékk. Mamma hafði pylsupartí í afmælum okkar systra sem var líka gaman en ég hefði frekar viljað tertur.

Undarleg þessi tryggð barna, aldrei sagði ég mömmu sann­leik­ann þótt hún segði oft við mig að hún vildi að ég væri eins og Stína, sem væri alltaf svo góð við Önnu systur sína, annað en ég við yngri systur mína. Vissu­lega rif­umst við systur en stóðum samt alltaf saman og erum afar nánar. Í raun hef ég aldrei sagt mömmu frá ill­girni Stínu í garð systur sinnar og held að for­eldrar systr­anna hafi heldur ekki vitað neitt.

Ég man vel eftir hvað allir full­orðnir elsk­uðu þessa fal­legu stúlku með heið­ríkju­svip­inn. Ef ein­hver hefði reynt að klaga hana hefði við­kom­andi verið tal­inn öfund­sjúkur lyg­ari. Stína laug Önnu fulla af alls kyns bulli og gerði hana meðal ann­ars mjög myrk­fælna.

Einu sinni tóku for­eldrar Önnu og Stínu systur mína á ein­tal og spurðu hana af hverju hún vildi aldrei leika við Önnu. Systir mín sagði hrein­skiln­is­lega: „Hún er svo leið­in­leg, alltaf að klaga.“

„Ég man vel eftir hvað allir full­orðnir elsk­uðu þessa fal­legu stúlku með heið­ríkju­svip­inn. Ef ein­hver hefði reynt að klaga hana hefði við­kom­andi verið tal­inn öfund­sjúkur lyg­ari.“

Á síðustu stundu

Þegar við systur vorum á ung­lings­aldri fluttum við aftur til Reykja­víkur. Mér varð ein­hvern veg­inn aldrei hugsað neitt sér­stak­lega til þeirra systra, hrein­lega gleymdi að þær væru til. Mamma gift­ist aftur frá­bærum manni og lífið breytt­ist heil­mikið.

Ég var ung þegar ég kynnt­ist mann­inum mínum og án þess að við ætl­uðum okkur það varð ég ólétt, á síð­asta ári í mennta­skóla. Maðurinn minn er nokkrum árum eldri og var kom­inn í Háskól­ann.

Dóttir okkar var tæp­lega þriggja ára þegar hún veikt­ist skyndi­lega. Vinkona mömmu hafði misst yngsta barn sitt úr heila­himnu­bólgu og mamma hafði varað mig við, kennt mér að þekkja ein­kennin. Hún og stjúpi minn voru á ferða­lagi úti á landi og engir far­símar á þessum tíma. Kærasti minn var erlendis og mér fannst liggja meira á því að fá lækn­is­hjálp fyrir barnið okkar en að reyna að ná í hann, systir mín var búsett á lands­byggð­inni með kærast­anum svo ég var alein í þessu og gat ekki treyst á neinn nema sjálfa mig.

Mér fannst dóttir mín vera hnakka­stíf áður en ég gaf henni hita­lækk­andi stíl sem hjúkr­un­ar­fræð­ingur ráð­lagði mér í gegnum síma, nei, ég þyrfti ekki að koma. Það var einmitt lýs­ing mömmu á heila­himnu­bólgu svo ég ákvað að mæta samt.

Við stíl­inn hresstist hún mikið og hljóp um allt þegar ég var mætt upp á spít­ala með hana. Það átti að snúa okkur við en ég hrein­lega neit­aði að fara nema læknir skoð­aði hana, allt vegna orða mömmu.

Með sem­ingi var kallað á barna­lækni og það var gæfa okkar að hitta lækni sem trúði áhyggju­fullum mæðrum, eins og hann orð­aði það sjálfur. Ég viðr­aði ótta minn um að þetta gæri verið heila­himnu­bólga. Lækn­ir­inn fann tvö pínu­lítil, nán­ast ósýni­leg útbrot á lík­ama hennar og lét leggja hana inn vegna þeirra. Tekin var blóðprufa og send í rann­sókn.

Dóttir mín varð fár­veik skömmu seinna, með heila­himnu­bólgu. Ég var send fram þegar hún var hætt að þekkja mig og ráð­lagt að fara heim. Lækn­ir­inn sagð­ist halda að hún myndi lifa af, ekki hefði þó mátt miklu muna. Hefði ég hlýtt og farið heim, hefði hún örugg­lega dáið. Ég var í algjöru losti þegar ég fór fram á gang.

„Þegar ég fór að jafna mig sá ég að hún horfði á mig með hálf­gerðum við­bjóði. Hún virt­ist algjör­lega ósnortin af örvænt­ingu minni, reyndi ekki á nokkurn hátt að hugga mig eða hug­hreysta …“  

Endurfundir

Fyrsta mann­eskjan sem ég sá frammi var Stína, gamla ekki-vin­kona mín. Hún heils­aði mér, sagð­ist vera hjúkr­un­ar­nemi og starfa tíma­bundið á þess­ari deild. Ég reyndi að segja henni frá veik­indum dóttur minnar en brotn­aði niður. Deild­ar­stjór­inn kom aðvíf­andi og sagði Stínu að fara með mig inn í býti­búr þar sem við sett­umst niður. Ég hágrét og var í algjöru áfalli. Þegar ég fór að jafna mig sá ég að hún horfði á mig með hálf­gerðum við­bjóði. Hún virt­ist algjör­lega ósnortin af örvænt­ingu minni, reyndi ekk­ert til að hugga mig eða hug­hreysta, hvorki með því að klappa mér á öxl­ina né segja eitt­hvað hug­hreystandi. Hún minnti mig á vél­menni og þótt dóttir mín væri mér efst í huga hugs­aði ég samt með hryll­ingi til vænt­an­legra sjúk­linga hennar. Ég píndi mig til að hætta að gráta, kvaddi og dreif mig heim, þakk­aði henni samt kær­lega fyrir hjálp­ina en hún skildi ekki kald­hæðn­ina. Það var ekki beint hvað hún gerði eða gerði ekki, heldur fékk ég afar slæma til­finn­ingu fyrir henni og ég þyki mjög góður mann­þekkj­ari.

Dóttir mín lifði af og ég þakka það fyrst og fremst ákveðni minni, frá­bærum barna­lækni og við­vör­unum mömmu.

Það eru ekk­ert voða­lega mörg ár síðan ég rakst á mynd af Önnu á Facebook og sendi henni vin­ar­beiðni sem hún sam­þykkti strax. Ég próf­aði skömmu seinna að leita að Stínu fyrir for­vitn­issakir. Hún var með lok­aða síðu.

Mér til ánægju virð­ist Anna hafa skapað sér gott líf. Hún á gæða­legan mann og þrjú börn og það er ekk­ert sem minnir á vælu­skjóð­una sem hún var. Ég vildi óska þess að ég hefði haft þá reynslu og þroska sem ég bý yfir í dag og getað hjálpað henni gegn Stínu. Þær systur eru ekki vinir á Facebook sem gæti táknað að Anna hafi vænt­an­lega öðl­ast kjark sjálf til að losa sig við systur sína.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur