Fyrirliði karlalandsliðsins í fótbolta, Aron Einar Gunnarsson, er á því að meiri líkur en minni séu á því að Gylfi Þór Sigurðsson taki fram skóna eftir tveggja ára fjarveru frá leiknum fallega.
Kom fram í viðtali við Aron Einar í hlaðvarpsþættinum, Þungavigtin.
Gylfi Þór hefur verið frá keppni í fótbolta frá því að lögreglan í Manchester hóf rannsókn á máli gegn honum; í júlí árið 2021.
Málið var fellt niður og Gylfi Þór því laus allra mála; hann hefur dvalið á Íslandi undanfarnar vikur; Aron Einar hefur talað við Gylfa um endurkomuna; vonar Aron Einar að Gylfi Þór taki skóna fram og sanni snilld sína á nýjan leik.

„Við höfum átt gott spjall, ég ætla að leyfa honum að opna umræðuna. Opna á það sem hann vill gera, án þess að setja pressu á hann, þá vil ég sjá hann úti á velli aftur. Hvað sem hann gerir eða tekur sér fyrir þá mun ég styðja hann í það. Ef hann kemur inn á völlinn þá væri það gríðarlega mikilvægt fyrir okkur sem landslið, ef hann vill.“
Kristján Óli Sigurðsson er sérfræðingur Þungavigtarinnar og hann spurði Aron Einar þá hvort líkurnar væru meiri en minni á endurkomu Gylfa Þórs.
„Ef hann hefur áhuga og gaman af því, þá finnst mér það líklegra en ekki. Það verður að koma í ljós, mér finnst það líklegra,“ segir Aron Einar.































Athugasemdir