Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Borgarfulltrúinn „Loftslags Lóa“ er hagsýn – Er með sitt eigið hringrásarhagkerfi

Borgarfulltrúinn „Loftslags Lóa“ er hagsýn – Er með sitt eigið hringrásarhagkerfi
Þórdis Lóa Þór­halls­dóttir. Mynd úr einka­safni.

Borg­ar­full­trú­inn Þórdís Lóa Þór­halls­dóttir er neyt­andi vik­unnar. Hún er af þing­eysku og sunn­lensku bergi brotin og er alltaf kölluð Lóa. Lóa er alin upp í Breið­holti og hefur búið þar og í Árbæ, en svo er hún skóg­ar­bóndi í Suður-Þing­eyj­ar­sýslu á sumrin. Lóa er gift Pétri Jónssyni rekstr­ar­hag­fræð­ing og eiga þau þrjú upp­komin börn. Þau eru ný orðin amma og afi en dóttir þeirra eign­að­ist á dög­unum ein­eggja þrí­burastelpur sem allt þeirra líf snýst um þessa dag­ana. Lóa er for­seti borg­ar­stjórnar og odd­viti Við­reisnar í Reykja­vík. Hún hefur verið borg­ar­full­trúi í 5 ár en þar á undan hefur hún víð­tæka reynslu úr atvinnu­líf­inu, af hags­muna­bar­áttu og stjórnun stærri og minni fyr­ir­tækja ásamt því að hafa í ára­tug stýrt vel­ferð­ar­þjón­ustu í Reykja­vík. Henni finnst mjög gaman að vinna með ólíku fólki og þrífst vel í póli­tík og allskyns atgangi.

Gerir þú verð­sam­an­burð á vörum og þjón­ustu?

Já, ég geri verð­sam­an­burð og finn mér síðan birgja eða þjón­ustu­að­ila sem bjóða uppá góð verð og góða þjón­ustu. Ég skoða alltaf verð og þjón­ustu í sam­hengi og ef mér líkar vel þá stend ég mig að því að vera ótrú­lega trúr við­skipta­vinur.

Hvernig sparar þú í mat­ar­inn­kaupum?

Mesti sparn­að­ur­inn hjá mér í mat­ar­inn­kaupum var þegar ég fór að versla kvöld­mat hjá Eldum rétt, við það spar­ast inn­kaup af allskyns mat­vöru sem gjarnan dag­aði uppi inní skáp hjá mér. Núna kaupi ég reglu­lega allan kvöld­mat í gegnum fyr­ir­tæki eins og Eldum rétt og þá er mun minni sóun, ég fer sjaldnar í búðir og mun minna fer til spillis.

Ég veiði mikið sil­ung, lax, gæs og hrein­dýr og á því alltaf mikið af mat í frystikist­unni. Mér finnst mjög gaman vinna með mat í sam­ræmi við Slow Food aðferða­fræði og rækta því alltaf mikið af græn­meti og krydd­jurtum. Við erum nýbúin að setja niður smá af kart­öflum því það er svo gaman á haustin að fá smá upp­skeru þrátt fyrir að kart­öflu­neysla fjöl­skyld­unnar hafi gjör­breystá und­an­förnum ára­tugum. Ég var alin upp  við það að það væri ekki kvöld­matur ef það voru ekki kart­öflur með en í dag er það algjör und­an­tekn­ing, en nýjar kart­öflur eru svo svaka­lega góðar með nýveiddum sil­ung að ég stenst ekki mátið að setja niður smá af útsæði á vorin. Nýjasta sparn­að­ar­ráðið mitt er nátengt mark­miðum mínum sem Lofts­lags-Lóa. Sem er stöðug áminn­ing um að allt sem ég geri hefur áhrif á sam­fé­lagið og á lofts­lagið. Þess vegna versla ég nú í auknum mæli allan mat á net­inu og læt senda hann heim til mín. Það spara mér skyndi­kaup og allskyns útúr­dúra af inn­kaupum sem ég gjarnan dett í ef ég fer í búð­ina en um leið er það betra fyrir lofts­lagið og umferð­ina að fá mat­ar­inn­kaupin send heim. Það er þá bara einn aðili sem keyrir heim til margra í stað þess að margir ferð­ist í búð­ina.

End­ur­nýtir þú? Ertu með ráð til ann­arra?

Já ég er upp­alin við hið svo­kall­aða hringrás­ar­hag­kerfi fjöl­skyld­unnar sem hefur verið við líði í marga ára­tugi. Föt, hús­gögn, leik­tæki, hjól og allskyns tól og tæki fær­ast á milli okkar í stór­fjöl­skyld­unni. Ég og systir mín, Hera Björk, skipt­umst á fötum þannig að ég sendi til hennar föt í fóstur og fæ frá henni föt sem ég fóstra. Svo líða margir mán­uðir og mögu­leg ár þangað til við skiptum aftur og þá er eins og maður hafi ein­g­ast nýjan fata­skáp. Auk þess þá er ég með eigið hringrás­ar­kerfi, ég kaupi föt sem ég nota í vinn­una, þegar búið er að nota fötin um langan tíma í vinn­unni þá breyt­ast fötin í hver­dags- og heima­föt eða sveita­föt og þannig næ ég að eiga fötin mín og nota í mörg ár. Lang­flest mín föt enda svo í sveit­inni þar sem ég og næstu kyn­slóðir notum þau í mörg ár í við­bót. Við tökum jafnan ást­fóstri við ótrú­leg­ustu flíkur, þannig hefur síð­erma íþrótta­bolur af mér farið marga hringi í fjöl­skyld­unni. Liverpool bolur sem keyptur var á Anfield fyrir margt löngu síðan hefir líka orðið að „icon“ sveita­bol sem stór­fjöl­skyldan notar á sumrin pabba til mik­illar gleði. Mitt ráð til ann­arra er að gefa fötum og allskyns tækjum og tólum mörg líf, og þegar búið er að nota allt lengi og vel að gefa þá á nytja­mark­aði. Svo tek ég alltaf tíma­bil sem gengur undir nafn­inu „klár­aðu kremið Lóa“ þá kaupi ég engin ný krem til dæmis dag­krem, raka­krem eftir sund og íþrótta­ferðir og nota allt sem ég á þangað til allt er búið, þá má kaupa ný krem.

Hvað hefur þú í huga þegar þú kaupir mat, fatnað og gjafir?

Ég hef alltaf í huga að gjafir að fólk geti notað það, gef líka mikið af bókum þó það væri ekki nema til að styðja við útgáfur og rit­höf­unda. Í mat­ar­inn­kaupum hugsa ég í dag að „less is more“ reyni að kaupa minna en meira, því það er svo mikil sóun í að kaupa of mikið af mat.

Hverju átt þú erf­ið­ast með að draga úr kaupum á?

Mér finnst erf­ið­ast að draga úr tækja­kaupum, ég er alveg hrika­legur tækjanörd, þarf alltaf að eiga það nýjasta en ekk­ert endi­lega það besta.

Skiptir umhverf­is­vernd þig máli?

Já lofts­lagið skiptir mig miklu og und­an­farin miss­eri er ég í þema­tengdum verk­efnum sem ég kalla „Lofts­lags Lóa“. Þetta eru verk­efni sem snúa að því að draga úr umhverfispor­inu mínu með mörgum litlum skrefum. Fyrir 10 árum byrj­uðum við fjöl­skyldan að flokka og vorum með moltu­kassa útí garði bæði hér í borg­inni og í sveit­inni, en nú er þetta eðli­legur þáttur af dag­legu lífi hjá lang­flestum. Einnig tók ég ákvörðun um að ástunda fjöl­breyta sam­göngu­máta og fara ekki alltaf allt á bílnum. Þannig fór ég að taka strætó sem var mjög auð­velt því ég er alvön almenn­ings­sam­göngum frá þeim árum sem ég hef búið erlendis og þar sem ég var alin upp í Strætó á mínum yngri árum í Breið­holt­inu þar sem við fórum allar ferðir okkar í strætó. Síðan byrj­aði ég fyrir 4 árum að hjóla í vinn­una ofan úr Árbæ ca. 2-3 svar sinnum í viku ca.5-6 mán­uði árs­ins og síðan hef ég aukið það og eftir því sem við á.

Annað sem þú vilt taka fram?

Neytenda og umhverf­is­vit­und hefur tekið miklum stakka skiptum í mínu lífi á und­an­förnum 20 árum. Slow food aðferða­fræði, veiði og ræktun, end­ur­nýt­ing á fötum sem er inn­gróin í fjöl­skyld­una, fjöl­breyttir sam­göngu mátar og flokkun er í dag bara eðli­legur þáttur af mínu dag­lega lífi. Það sem í fyrstu virt­ust vera stór og erfið skref eru í dag ósköp venju­legir og litlir hlutir. Þannig að ég hugsa alltaf skref fyrir skref, eitt stór skref í dag er lítið skref á morgun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi