Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fólk

Björk Guð­munds­dóttir er ólétt

Rekinn eftir að hafa hent útgerðarstjóranum með landganginum á bryggjuna: „Mér var í nöp við hann“

Rekinn eftir að hafa hent útgerðarstjóranum með landganginum á bryggjuna: „Mér var í nöp við hann“
Guð­mundur kallar ekki allt ömmu sína.

Guð­mundur Sigurður Guð­munds­son sjó­maður rifjar það upp er hann hætti snögg­lega á Bjarna Bene­dikts­syni.

Guð­mundur hefur upp­lifað æði margt um ævina en í við­tali Reynis Trausta­sonar í Sjó­ar­anum, rifjar hann upp atvik sem varð til þess að hann var rek­inn nán­ast á staðnum úr Spán­ar­tog­ar­anum Bjarna Bene­dikts­syni RE.

„Það er svo­lítið gömul saga á bak­við þetta,“ svar­aði Guð­mundur þegar Reynir spurði hvað hafi vakið fyrir honum er hann skar land­gang­inn undan útgerð­ar­stjór­anum. „Sagan á bak við þetta er sagan um Þorgrím Mána þegar hann lendir í jún­íó­veðr­inu á Nýfundna­landsmiðum, þegar Marteinn var skip­stjóri.“

Reynir: „Það er sagan á bak við það þegar Marteinn [Jónasson] verður seinna útgerð­ar­stjóri og þér var frekar í nöp við hann?“

„Mér var í nöp við hann, já,“ svar­aði Guð­mundur og lýsir atvik­inu. „Hann er um borð í Bjarna Ben að tala við Magga [Magnús Ing­ólfs­son skip­stjóri] eitt­hvað. Og Maggi er búinn að kalla í kerfið: „Sleppa að aftan“ og ég var fyrir aftan með tvo stráka með mér til aðstoðar. Þá var báts­maður með smá völd, eða það fannst mér alla vega. Og ég segi við hann fyrst: „Flýttu þér upp stig­ann, tröpp­urnar“. Svo þurfti hann að fara niður land­gang­inn. Og hann stoppa og horfir svona á mig. „Hvað ertu að segja maður?“,“ enda hafði þarna báts­maður skipað útgerð­ar­stjór­anum fyrir.

„„Skip­stjór­inn var búinn að segja mér að sleppa að aftan“, segi ég. „Drull­aður þér bara niður land­gang­inn.“ Og þá stoppar hann og er bara graf­kyrr og ég var svo illur að ég nennti ekki að leysa þessa hnúta sem héldu honum niðri, land­gang­inum, ég bara skar á þá og tók land­gang­inn, lyfti honum upp með karl­inum á og henti öllu á bryggj­una. Þá varð hann alveg brjál­aður karl­inn. Hann rís þarna upp en þetta var mikil nið­ur­læg­ing fyrir hann. Fullt af fólki þarna, ætt­ingjar og vinir að kveðja. Og hann hleypur mið­skips ein­hvern veg­inn í fjand­anum en það var byrjað að keyra í spreng­inn, og hoppar um borð og heimtar það að ég verði rek­inn á stund­inni. En Maggi segir þá við hann „Ef ég rek hann Guðmund núna, þá verður við að bíða í sól­ar­hring í við­bót í höfn. Því það er eng­inn til að taka við“.“

Eftir ferð­ina hringdi Magnús skip­stjóri í Guðmund og sagði honum að Markús hefði hringt í sig „trít­i­lóður“ og kraf­ist þess að Guð­mundur yrði rek­inn, ellegar yrði Magnús lát­inn fara. Hvatti skip­stjór­inn Guðmund um að biðja Markús auð­mjúk­lega fyr­ir­gefn­ingar en það kom ekki til greina í huga báts­manns­ins. Og þar við sat, hann var hættur á Bjarna Bene­dikts­syni.

Hægt er að horfa á allan þátt­inn hérna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Létu greipar sópa í Bónus, ELKO og Kids Coolshop

Annar glæpamannanna hafði sakaferil að baki en hinn hafði ekki áður gerst sekur um þjófnað
Heimur

Segir Net­anyahu þrýsta á Trump um kjarn­orku­árás

Pólitík

Reykja­vík ætlar að snúa millj­arða­halla í afgang á aðeins einu ári

Heimur

Úkraínsk dróna­árás olli miklum eldi í rúss­neskri olíu­hreinsi­stöð

Landið

Sváfu undir berum himni og heill­uð­ust af íslenska hálend­inu

Innlent

Innlent

Getur munað rúmum 22 þús­und krónum á umfelgun fólks­bíls

ASÍ ráðleggur fólki að óska eftir staðfestu heildarverði.
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Kona á fimm­tugs­aldri ákærð fyrir að aug­lýsa vændi á Akureyri

Innlent

Fór í búð í Graf­ar­vogi en end­aði í fanga­geymslu

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu