Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Rætt um að loka fréttastofu Stöðvar 2 og breyta í Sýn – Hluthafar stressaðir og verð Sýnar fellur

Rætt um að loka fréttastofu Stöðvar 2 og breyta í Sýn – Hluthafar stressaðir og verð Sýnar fellur
Óvissa er um stö 2 og upp­nám innan fjöl­miðla­veit­innar.

Gríð­ar­leg ólga er á meðal stjórn­enda innan Sýnar vegna nið­ur­skurðar og stjórn­taka for­stjór­ans Herdísar Fjeld­sted. Miklar aðhalds­að­gerðir eru í gangi á sama tíma og félagið hefur fallið í verði um allt að 30 pró­sent á einu ári og 37 pró­sent í tíð Herdísar. Miðað við þann mæli­kvarða hafa stærstu hlut­haf­arnir tapað  millj­örðum króna.

Stærsti ein­staki eig­and­inn er Gavia Invest sem er að miklu leyti í eigu Reynis Grét­ars­son, fyrr­ver­andi eig­anda Creditinfo. Sá hópur fer með 18,23 pró­sent í félag­inu og hefur verið leið­andi í félag­inu. Reyni og félögum er kennt um þá klemmu sem félagið er komið í. Líf­eyr­is­sjóðir eiga á milli 30 og 40 pró­sent í Sýn.

Enginn arður

Staða félags­ins hefur mikil áhrif á eig­endur sem eru margir með vaxta­ber­andi skuldir en fá ekki arð út úr félag­inu. Sú skoðun er uppi á meðal ein­hverra þeirra að nauð­syn­legt sé að grípa til aðgerða til fá meiri verð­mæti út úr Sýn. Bent er á að upp­lausn­ar­virði félags­ins sé gríð­ar­legt og allt að þrefalt hærra en það verð sem end­ur­spegl­ast á mark­aði. Með því að selja út ein­ingar á borð við Stöð 2, Vísi, fjöl­sóttasta vef lands­ins, útvarps­stöð­ina Bylgjuna og tengdar útvarps­stöðvar megi snúa við dæm­inu, hlut­höfum í hag. Aðeins yrði haldið eftir fjar­skipta­hluta Vodafone.

Bylgjan verði Sýn

Aðrir vilja styrkja inn­viði félags­ins með því að breyta um nöfn á miðl­unum. Herdís for­stjóri er talin vera á þeirri skoðun. Vísir tæki þá upp nafn Sýnar einnig, Sýn.is. Þá verður Stöð 2 að Sýn, Stöð 2 Sport yrði Sýn Sport. Útvarps­stöðv­arnar yrðu Sýn 989, Sýn 957, Sýn 977 og svo fram­vegis Þannig yrði farin sama leið og Síminn hefur gert með því að kenna sjón­varps­stöð sína við Símann Þessi hug­mynd er af helstu and­stæð­ingum hennar talin vera algjör firra.

Fréttastofu lokað

Aðrir sparn­að­ar­liðir sem nefndir eru til að bjarga rekstr­inum eru þeir að hætta fréttum á Stöð 2 og leggja niður frétta­hluta sjón­varps. Þarna spar­ast með því að segja upp starfs­mönnum sjón­varps­ins. Á móti kemur að Vísir og frétta­stofan eru nátengd og lok­unin myndi veikja vef­inn. Hermt er að hvaða leið sem verði farin umun leiða til þess að frétta­stof­unni verði lokað og Stöð 2 breytt í að vera fyrst og fremst afþrey­ing­ar­sjón­varp.

Engin leið er að spá fyrir um það hvað stjórn Sýnar gerir til að snúa málum sér í hag. Stærstu hlut­haf­arnir eru sam­mála um að bregð­ast við ástand­inu með því að skipta fyr­ir­tæk­inu upp og selja ákveðnar ein­ingar út. Verðmæti Vísis og útvarps­stöðv­anna nemur rúmum 7 millj­örðum sam­kvæmt til­boði sem Síminn gerði á sínum tíma. Heim­ildir Mannlífs herma að stórra tíð­inda sé að vænta.

Ég er ennþá starfs­maður

Lyk­il­menn hafa hætt störfum hjá Sýn und­an­farið vegna óánægju með fram­vind­una og starfs­hætti for­stjór­ans. Þá liggur í loft­inu að fleiri munu hætta á næst­unni. Þetta ástand mun vera á borði stjórn­ar­manna. Mannlíf ræddi við Evu Georgs­dóttur, fyrr­ver­andi sjón­varps­stjóra Stöðvar 2, sem hætti nýverið störfum. Hún vildi ekk­ert tjá sig um fram­an­greint eða sam­skiptin við for­stjór­ann sem og bar við trún­aði . „Ég er ennþá starfs­maður Sýnar,“ sagði hún og baðst undan svörum.

Ekki náð­ist í Herdísi for­stjóra sem svar­aði ekki sím­tölum Mannlífs.

Helstu eig­endur Sýnar:

Gavia Invest ehf. 45.147.128 18,23%
Gildi – líf­eyr­is­sjóður 39.490.655 15,95%
Reir ehf. 20.650.000 8,34%
Arion banki hf. 15.605.216 6,30%
Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna 13.822.485 5,58%
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina