Hinir árlegu Bíladagar standa nú yfir á Akureyri þessa helgina, lýkur í kvöld, og hefur lögreglan á Norðurlandi eystra haft í meira en nógu að snúast.
Í tilkynningu segir að lögreglan hafi þurft að hafa afskipti vegna líkamsárása og þá eru tvö kynferðisbrotamál til rannsóknar.
Mikið fjölmenni var á Akureyri í nótt og gert er ráð fyrir mikilli umferð út úr bænum, seinni part dags sem og í kvöld.































Athugasemdir