Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Sonur Isaac Hayes segir föður sinn ekki hafa hætt sjálfviljugur í South Park

„Vís­inda­kirkjan hætti fyrir hann“

Sonur Isaac Hayes segir föður sinn ekki hafa hætt sjálfviljugur í South Park
Isaac Hayes III Satt skal vera satt Mynd: NYKIERIA CHANEY/Getty Images/AFP

Isaac Hayes III, sonur tón­list­ar­manns­ins og leik­ar­ans Isaac Hayes, hefur stigið fram og varpað ljósi á ára­langar vanga­veltur um brott­hvarf föður hans úr hinum geysi­vin­sælu teikni­mynda­seríu South Park. Í færslu sem hann birti á sam­fé­lags­miðl­inum Facebook segir Hayes yngri að faðir hans hafi ekki sjálfur ákveðið að hætta sem rödd per­són­unnar Chef, heldur hafi það verið gert að und­ir­lagi ann­arra innan Vís­inda­kirkj­unnar.

„Faðir minn hætti ekki í South Park. Vís­inda­kirkjan gerði það,“ skrifar Hayes III. Hann segir að eftir að umdeildur þáttur þátt­ar­ins, “Trapped in the Closet“, fór í loftið árið 2005, þar sem meðal ann­ars var gert grín að Vís­inda­kirkj­unni og Tom Cruise, hafi faðir hans fengið heila­blóð­fall sem gerði hann ófæran um að tala eða taka ákvarð­anir á eigin spýtur.

„Hann var ekki í neinu ástandi til að segja neinu upp. Sann­leik­ur­inn er sá að ein­hver innan Vís­inda­kirkj­unnar tók þá ákvörðun og hætti í þátt­unum fyrir hann,“ segir Hayes III.

Isaac Hayes, sem lést árið 2008, hafði verið rödd per­són­unnar Chef frá upp­hafi þátt­anna árið 1997 og naut mik­illa vin­sælda hjá áhorf­endum. Samkvæmt Hayes III naut faðir hans þess mjög að vinna að þátt­unum.

South ParkChef með krökk­unum frá South Park

„Hann elskaði að vera rödd Chef. Hann elskaði per­són­una. Hann elskaði að tengj­ast aðdá­endum. Hann grín­að­ist við fólk sem kann­að­ist við rödd­ina hans og naut þess virki­lega að vera hluti af þátt­unum.“

Árið 2006 bár­ust fréttir þess efnis að Hayes hefði hætt í þátt­unum vegna þess að honum hafi fund­ist þeir „gera grín að trú­ar­brögðum ann­arra“, en sonur hans segir þá skýr­ingu vera til­bún­ing.

„Sagan um að hann hafi hætt vegna þess að hann móðg­að­ist yfir háðsá­deil­unni er ekki sönn. Það var yfir­varp sem aðrir bjuggu til. Faðir minn fékk aldrei að tala fyrir sjálfan sig, því heilsa hans svipti hann því tæki­færi.“

Hayes III segir það vera mik­il­vægt að leið­rétta þessa sögu nú, fyrir aðdá­endur föður hans og per­són­unnar Chef:

„Hann yfir­gaf South Park ekki af fúsum og frjálsum vilja. Hann var neyddur út – af veik­indum og af fólki sem hafði ekki hags­muni hans í huga. Þetta er sann­leik­ur­inn um hvað raun­veru­lega gerð­ist.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina