Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Kristrún varar við sundrungu í umræðu um innflytjendamál

„Auðvitað er það mjög nei­kvæð þróun ef ras­ismi er far­inn að grass­era í íslensku sam­fé­lagi“

Kristrún varar við sundrungu í umræðu um innflytjendamál
Kristrún Frosta­dóttir For­sæt­is­ráð­herra vill að hægt sé að taka sam­talið um inn­flytj­enda­mál Mynd: Víkingur

Kristrún Frosta­dóttir for­sæt­is­ráð­herra varar við sundr­ungu í sam­fé­lag­inu í nýju við­tali við Heim­ild­ina og segir mik­il­vægt að stjórn­mála­menn axli ábyrgð með því að ræða sam­fé­lags­breyt­ingar af hrein­skilni, áður en ótti og ein­faldar lausnir fá að festa rætur.

Popúl­ískir straumar hafa verið áber­andi í stjórn­málum síð­ustu ár og Íslend­ingar hafa kynnst slíkum flokkum allt frá fjár­mála­hrun­inu. Sé litið yfir íslenska stjórn­mála­sögu síð­ustu fimmtán ára má finna fjölda slíkra fram­boða sem hurfu jafn­hratt og þau komu. Að und­an­förnu hefur þó orðið vart við nýjan tón í umræð­unni, einkum þegar kemur að inn­flytj­enda­málum. Að mati Kristrúnar Frosta­dóttur stendur Ísland þó enn fremur hóf­samt í alþjóð­legum sam­an­burði.

„Ég er almennt á þeirri skoðun að við virð­umst þeirrar gæfu aðnjót­andi að póli­tískt lit­róf hefur verið frekar þröngt á Íslandi. Það sem ég á við er að við séum enn á ágætum stað. En ég get alveg tekið undir að það glitti í ákveðna umræðu sem end­ur­spegl­ast að ein­hverju leyti á sam­fé­lags­miðlum, og stundum í fjöl­miðlum, sem keyrir á sundr­ungu. Ég hef sagt að við eigum að keyra á sam­stöðu. Við erum lítil þjóð og okkar helsti styrk­leiki liggur í sam­stöð­unni. Það er ekk­ert svig­rúm til þess að skipta þjóð­inni upp í marga hópa hér á landi. Þannig að það er auð­vitað áhyggju­efni ef maður upp­lifir að svona ákveðin teg­und af póli­tík, sem keyrir á sundr­ungu, sé farin að rísa.“

Kristrún bendir á að umræðan hafi tekið breyt­ingum sam­hliða sam­fé­lags­þróun. Hún nefnir Mið­flokk­inn sér­stak­lega og segir sig ekki hafa heyrt sann­fær­andi efna­hags­rök frá flokknum, þó hún við­ur­kenni að mögu­legt sé að finna sam­eig­in­legan grund­völl í útlend­inga­málum.

„Hvað útlend­inga­málin varðar, þá er ýmis­legt sem við getum náð saman um í útlend­inga­málum. Ég held að það liggi alveg fyrir. Það þarf ekki annað en að skoða þau mál sem eru að fara í gegnum þingið. Það sem ég hef hins vegar gert athuga­semd við er eðli mál­flutn­ings­ins. Það er stundum verið að tengja saman þætti sem eru eðl­is­ó­líkir. Flótta­menn til dæmis eru ekki sami hópur og efna­hags­legir inn­flytj­endur. Það þarf að vera hægt að aðgreina þetta.“

Í fram­hald­inu bendir blaða­maður Heim­ild­ar­innar á að umræðan um útlend­inga hafi orðið sífellt flókn­ari og óskýr­ari, þar sem ólík mál­efni séu oft sett undir sama hatt. Í við­tal­inu er Kristrún spurð hvernig hún horfi á aukna for­dóma­fulla orð­ræðu í sam­fé­lag­inu.

„Ég held að það sé ábyrgð­ar­at­riði að ef fólk er farið að upp­lifa óör­yggi í íslensku sam­fé­lagi og tengja það beint við útlend­inga þá þurfi að vera hægt að tala um þær breyt­ingar sem hafa átt sér stað í íslensku sam­fé­lagi. Ef ábyrgir stjórn­mála­menn gera það ekki skap­ast tóma­rúm fyrir óábyrga stjórn­mála­menn til að leiða þá umræðu. Og eins og þú rétti­lega sagðir hér áðan, umræðan hefur breyst, en íslenskt sam­fé­lag hefur líka breyst.“

Hún rifjar upp að fyrir ára­tug eða tveimur hafi komu flótta­manna verið fátíð og vakið mikla athygli, enda um ein­stök til­vik að ræða fremur en heilan mála­flokk.

„Fyrir 10 til 15 árum síðan, þegar það komu flótta­menn til Íslands, þá voru þetta örfáar fjöl­skyldur á ári. Þetta þóttu slík tíð­indi að þau end­uðu í frétt­unum. Þá var talað við fjöl­skyldur sem fóru á Akranes, vestur á land og svo fram­vegis. Þetta var stór atburður í íslensku sam­fé­lagi því þetta var fjöl­skyldan með greini. Þetta var ekki mála­flokkur. Þetta voru stök til­vik. Og þá var til­finn­ingin sú að þetta væri eitt­hvað sem við gætum haldið uppi án vand­ræða. Síðan verða auð­vitað breyt­ingar á Íslandi og umheim­inum öllum, sér­stak­lega upp úr 2013, 2014 og 2015.“

Á sama tíma hafi orðið mik­ill efna­hags­upp­gangur, einkum vegna ferða­þjón­ustu, sem hafi haft áhrif á sam­setn­ingu vinnu­mark­að­ar­ins.

„Sér­stak­lega þegar kemur að streymi efna­hags­legra inn­flytj­enda til lands­ins í gegnum EES, í gegnum Evrópu. Og það hefur ekki verið vilji til að tala um það, að sú atvinnu­stefna sem hefur verið stunduð á Íslandi hafi skapað þær aðstæður að við höfum skapað störf sem Íslend­ingar ekki vilja vinna. Þau hafa verið aug­lýst á Evrópska efna­hags­svæð­inu. Því hefur fylgt mikil sókn erlendra aðila hingað til lands­ins sem hafa verið í alls konar aðstæðum.“

Kristrún segir þessa þróun hafa aukið ójöfnuð og fjar­lægð milli hópa í sam­fé­lag­inu.

„Stundum hefur fólk verið í ágætri vinnu, stundum hefur fólk ekki verið í neinni sér­stakri vinnu og það hefur í raun­inni skapað aukna stétta­skipt­ingu á Íslandi. Það býr til þessa glufu á milli fólks,“ segir hún og bætir við: „Fólk sem er að vinna þannig vinnu er oft í litlum tengslum við Íslend­inga sem eru fæddir og upp­aldir hér á landi. Þannig að það verður rosa­leg fjar­lægð á milli fólks. Og það er ekki hægt að taka þá þróun úr sam­hengi við þá umræðu sem kannski aðrir flokkar nær­ast á.“

Að lokum leggur Kristrún áherslu á ábyrgð stjórn­mála­manna í að ræða þessar breyt­ingar af hrein­skilni.

„Það sem stjórn­mála­menn hafa líka flaskað á, á und­an­förnum árum, í öllum flokkum, er að tala um sam­fé­lags­breyt­ing­arnar sem hafa átt sér stað. Hvort þær hafi verið of hraðar, hvort við höfum getað ráðið við þær, hvort við höfum getað staðið undir vel­ferð­ar­þjón­ust­unni og svona sam­fé­lags­legri þjón­ustu sem hefur skapað heil­brigt sam­fé­lag. Þannig að fyrir mér eru við­brögð við þessu ekki að segja að það sé eitt­hvað að fólki sem hugsar svona, heldur velti ég fyrir mér hvernig þessar aðstæður sköp­uð­ust.“

Hún veltir einnig upp spurn­ingum um upp­lifun fólks og hvernig megi bregð­ast við henni.

„Er fólk að upp­lifa óör­yggi þessu tengdu? Og hvernig er hægt að vinna í því með praktískum hætti? Af því auð­vitað er það mjög nei­kvæð þróun ef ras­ismi er far­inn að grass­era í íslensku sam­fé­lagi. Það þurfa allir að vera að mínu mati sam­mála um að það er ekki sam­fé­lag sem við viljum búa í. Það þýðir ekki að það séu ekki und­ir­liggj­andi áskor­anir sem ábyrgir stjórn­mála­menn þurfa að takast á við, því ef við tökum ekki á þeim og horf­umst í augu við vand­ann, mun bara ein­hver annar hlaupa inn á sviðið með ein­fald­ari sýn á heims­mynd­ina og fá atkvæði á þeim for­sendum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum