Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Dóninn á barnum varð síðar formaður verkalýðsfélags

Flosi Þor­geirs­son rifjar upp leið­in­legt atvik sem hann varð vitni að í mið­borg Reykja­víkur

Dóninn á barnum varð síðar formaður verkalýðsfélags
Flosi Þor­geirs­son Flosi er maður sem kann að segja sögur Mynd: Facebook

Flosi Þor­geirs­son, gít­ar­leik­ari rokk­hljóm­sveit­ar­innar HAM og annar tveggja þátta­stjórn­enda hlað­varps­ins Draugar for­tíðar, rifjar upp per­sónu­lega reynslu sína af því að hætta að drekka áfengi og upp­lifun sem hann segir hafa fest í minni hans. Í Facebook-færslu lýsir hann því hvernig edrú­mennska hans breytti sýn hans á djam­mið, mann­lega hegðun, og síðar á opin­bera per­sónu sem hann segir hafa hitt á djamm­inu.

Flosi seg­ist hafa hætt að drekka í nóv­em­ber 2009, en ákveðið að fylgj­ast áfram með næt­ur­líf­inu edrú:

„Ég hætti að drekka í nóv­em­ber 2009. Mér fannst áhuga­vert samt að kíkja á djam­mið edrú. Að sjá hvernig fólk varð sífellt leið­in­legra og barna­legra. Ég hélst yfir­leitt ekki við lengur en til eitt eftir mið­nætti. Þá var þetta yfir­leitt orðið eins og versta geð­veikra­hæli. Ég hef reyndar bæði unnið á og legið á geð­deild og djam­mið var langtum verra!“

Hann segir þessa reynslu hafa styrkt ákvörðun sína um að vera edrú og horfast í augu við lífið án áfengis:

„Ég vissi auð­vitað að ég hafði um langt skeið tekið fullan þátt í þessu brjál­æði. Þetta gerði mig bara ákveðn­ari í að halda mínu striki. Raun­veru­leik­ann á maður að tækla edrú.“

Í færsl­unni segir Flosi frá því að hann hafi oft heim­sótt bar í miðbæ Reykja­víkur, þar sem vin­konur hans störf­uðu og þar sem hann sjálfur hafi stundum komið fram. Þar varð hann vitni að hegðun sem hann segir hafa farið langt yfir mörk:

„Eitt sinn tók ég eftir manni sem var afar frekur, dóna­legur og sífellt öskr­andi á stúlk­urnar að þjón­usta sig. Það kom að því að ég og kunn­ingi minn gerðum athuga­semdir við þessa hegðun manns­ins. Hann brást væg­ast sagt illa við. Sagði að þessar ‘druslur’ væru alltaf með stæla við sig.“

Maðurinn lét ekki þar við sitja að sögn Flosa, heldur beindi spjótum sínum einnig að þeim sem bentu á hegðun hans:

„Síðan fór hann að heimta að vita hvað við værum með mikið í laun!? Sagðist sann­færður um að hann væri með vel yfir okkar sam­an­lögð laun. Kallaði okkur aum­ingja því við værum „lág­launa­lúserar.“ Þrátt fyrir að hann þekkti okkur ekk­ert!?“

Flosi segir að kunn­ingi hans hafi verið ölv­aður og reiður, en edrú­mennska hans sjálfs hafi lík­lega komið í veg fyrir átök:

„Ég dró okkur því frá þessum vit­leys­ingi. Ég þakka fyrir að hafa ekki verið drukk­inn því þessi furðu­legi maður var með svo­kallað „kýli­fés“. Semsagt svo óþol­andi að öllu leyti að ég nán­ast heyrði hnefa minn reyna að sann­færa mig um að reka honum gott högg. Ef alkó­hól hefði verið til staðar í mér hefði það eflaust tekið afstöðu með hnef­anum.“

Síðar fengu vin­konur hans sem störf­uðu á barnum stað­fest að mað­ur­inn væri vel þekktur meðal starfs­fólks:

„Seinna sögðu vin­konur mínar mér að mað­ur­inn væri alræmdur þarna meðal starfs­manna og þætti yfir­máta dóna­legur og hroka­fullur.“

Árin liðu, en atvikið gleymd­ist ekki. Flosi lýsir því að hann hafi síðar orðið hissa þegar hann sá mann­inn aftur, nú í allt öðru sam­hengi:

„Ímyndið ykkur furðu mína er ég var nokkru seinna að horfa á sjón­varpið. Þá var maður í frétta­við­tali. Ég þekkti strax dón­ann af barnum sem var með þessa miklu þrá­hyggju gagn­vart launa­seðlum ann­ars fólks. Þarna stóð hann og tal­aði fjálg­lega eins og sá sem allt veit.“

Og að lokum kemur sú stað­reynd sem Flosi segir hafa slegið sig hvað mest:

„Hann var þá nýorð­inn for­maður eins stærsta verka­lýðs­fé­lags lands­ins.“

Flosi nefnir mann­inn ekki á nafn í færslu sinni, en frá­sögnin hefur vakið tölu­verða athygli á Facebook en fjöl­margir hafa bæði líkað við færsl­una og skrifað athuga­semdir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur