Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ofbeldi foreldra gegn börnum eykst á landinu

Veruleg aukn­ing í end­ur­teknu og alvar­legu ofbeldi

Ofbeldi foreldra gegn börnum eykst á landinu
Sviðsett mynd Ofbeldi gegn börnum hefur auk­ist Mynd: Shutterstock

Til­kynn­ingum til lög­reglu um heim­il­is­of­beldi fjölg­aði á lands­vísu árið 2025, sam­kvæmt nýrri skýrslu Rík­is­lög­reglu­stjóri. Alls bár­ust lög­reglu 2.485 til­kynn­ingar um heim­il­is­of­beldi á árinu, sem jafn­gildir rúm­lega tveggja pró­senta aukn­ingu miðað við með­al­tal síð­ustu þriggja ára. Sé ein­ungis miðað við árið 2024 nemur fjölg­unin tæpum þremur pró­sentum.

Að með­al­tali bár­ust tæp­lega sjö til­kynn­ingar á dag, eða um 207 á mán­uði. Flestar til­kynn­ingar voru skráðar í des­em­ber, alls 138 tals­ins.

Skýrslan, sem hefur verið birt á vef­svæði lög­regl­unnar, fjallar um heim­il­is­of­beldi og ágrein­ing milli skyldra og tengdra aðila á árinu 2025.

Veruleg aukning í endurteknu og alvarlegu ofbeldi

Í skýrsl­unni kemur fram að sér­stak­lega sé áber­andi aukn­ing í til­vikum sem flokk­ast sem end­ur­teknar eða alvar­legar hót­anir gegn lífi og heilsu sam­kvæmt 218. gr. b almennra hegn­ing­ar­laga. Slík mál voru 156 árið 2025, sam­an­borið við 116 árið 2024, sem nemur tæp­lega 35 pró­senta aukn­ingu milli ára.

Beiðnir um nálg­un­ar­bann voru alls 95 á árinu og fjölg­aði þeim um 16 pró­sent miðað við árið á undan. Sé hins vegar horft til með­al­tals síð­ustu þriggja ára á undan hefur beiðnum fækkað um fimm pró­sent.

Ofbeldi foreldra meira

Þegar tengsl árás­ar­að­ila og þol­anda eru skoðuð kemur fram að heim­il­is­of­beldi milli para, núver­andi eða fyrr­ver­andi, var algeng­ast. Slík mál voru 791 tals­ins og námu 63 pró­sentum allra heim­il­is­of­beld­is­mála. Þar varð tæp­lega 4 pró­senta fjölgun miðað við síð­ustu ár.

Til­kynn­ingum um ofbeldi for­eldris í garð barns fjölg­aði einnig. Þau juk­ust úr 142 til­vikum árið 2024 í 160 árið 2025, sem jafn­gildir um 13 pró­senta aukn­ingu. Í heild­ina voru karlar grun­aðir um að vera árás­ar­að­ilar í tæp­lega 74 pró­sentum allra heim­il­is­of­beld­is­mála, en konur voru 65 pró­sent þolenda.

Með­al­aldur árás­ar­að­ila var 36,6 ár og með­al­aldur þolenda 33,5 ár. Þá voru 26 pró­sent þolenda yngri en 26 ára, en 19 pró­sent árás­ar­að­ila voru í þeim ald­urs­hópi.

Hlutfallslega fleiri mál á höfuðborgarsvæðinu

Af þeim heim­il­is­of­beld­is­málum sem til­kynnt voru til lög­reglu á árinu áttu 74 pró­sent sér stað á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, en 26 pró­sent á lands­byggð­inni. Þegar litið er til ágrein­ings­mála voru 67 pró­sent þeirra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og 33 pró­sent á lands­byggð­inni.

Samkvæmt mann­fjölda­tölum 1. jan­úar 2025 bjuggu um 64 pró­sent lands­manna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og 36 pró­sent á lands­byggð­inni.

Fáir tilkynna ofbeldi til lögreglu

Í árlegri þolenda­könnun lög­regl­unnar fyrir árið 2025 sögð­ust 1,3 pró­sent svar­enda hafa orðið fyrir heim­il­is­of­beldi af hendi maka eða fyrr­ver­andi maka. Af þeim höfðu ein­ungis 29 pró­sent til­kynnt atvikið til lög­reglu.

Í Íslenska æsku­lýðs­rann­sóknin árið 2025 sögð­ust 7 pró­sent nem­enda í 9. bekk og 9 pró­sent nem­enda í 10. bekk hafa orðið vitni að ofbeldi gegn for­eldri.

Ætíð er hægt að til­kynna brot með því að hringja í 112. Á ofbeld­is­gátt­inni 112.is má einnig finna upp­lýs­ingar um þau úrræði sem standa til boða fyrir þolendur, aðstand­endur og ger­endur sem vilja láta af ofbeld­is­hegðun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi