Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þóra í Bakkakoti skellti á fósturbörnin

„Ég alla vega upp­lifði enga iðrun. En ég upp­lifði ótta“

Þóra í Bakkakoti skellti á fósturbörnin
Þóra Elísabet Bern­ód­us­dóttir Þóra sýndi litla iðrun í sím­tal­inu Mynd: Facebook

Umfjöllun Kveiks um það ofbeldi sem drengir sem vistaðir voru í Bakka­koti í æsku, sem sýnd var á RÚV í gær, hefur vakið mik­inn óhug meðal Íslend­inga.

Í þætt­inum stigu fram nokkrir af þeim sem voru sendir í fóstur á bónda­bæ­inn Bakkakot á Suð­ur­land­inu og lýstu hrylli­legu ofbeldi sem þeir voru beittir þar, and­legu, lík­am­legu og kyn­ferð­is­legu.

Hjónin Jón Ársæls­son og Þóra Elísabet Bern­ód­us­dóttir voru hús­ráð­endur í Bakka­koti þegar drengirnir dvöldu þar en drengirnir sögðu Jón ekki hafa beitt þá ofbeld­inu, heldur Þóra Elísabet. Hún er nú tæp­lega átt­ræð og heilsu­tæp en Jón lést árið 2003.

Fram kemur í þætt­inum að Þóra hafi oft verið sótölvuð í kringum dreng­ina, sem voru 10-12 ára þegar á dvöl þeirra stóð.

Tveir drengj­anna, þeir Svavar Þór Georgs­son og Sig­varður Hans Ísleifs­son ákváðu í jan­úar að hringja saman í Þóru, sem liður í því að takast á við for­tíð­ina. Greini­legt er að sím­talið reyn­ist þeim báðum mjög erfitt, en þrátt fyrir það ganga þeir ákveðnir til verks og vilja sjá hvernig sím­talið fer.

Þegar Þóra svarar sím­anum spyr Svavar hana hvort eitt­hvað hafi átt sér stað í Bakka­koti sem hún iðrist í dag. Hún neitar því, en við­ur­kennir þó að hugs­an­lega hefði eitt­hvað getað farið betur. Þegar hann spyr hana sér­stak­lega um nuddið hafnar hún alfarið að hafa látið dreng­ina nudda sig. Þegar Svavar nefnir lík­am­legt ofbeldi svarar hún hins vegar ekki með beinum hætti. Að lokum spyr hann hana almennt um þann tíma sem hann sjálfur dvaldi í Bakka­koti, en þá seg­ist Þóra ekki ætla að fara yfir það og slítur sím­tal­inu skömmu síðar.

Eftir sím­talið sitja Svavar og Sig­varður eftir greini­lega slegnir og segja ekk­ert um stund.

„Hún er...já... sko...,“ segir Svavar, greini­lega orð­laus.

„Hún er hrædd. Og játar ekki með nuddið,“ segir Sig­varður.

„Það var ekki mikil iðrun í henni,“ segir Svavar.

„Nei og líka bara, um leið og þú nefndir mig vildi hún leggja á,“ segir Sig­varður.

„Þetta er nátt­úr­lega svo­lít­ill tími og þetta er nátt­úr­lega „pró­sess“ líka fyrir hana að rifja upp. Og hún var nátt­úr­lega undir áhrifum,“ segir Svavar.

„En tókstu ekki eftir því, að þegar þú spurðir um áfengið, að hún spurði þig strax á móti; „Varstu ekki að því sjálfur?“ segir Sig­varður við Svavar. „Þannig að hún ját­aði,“ bætir Sig­varður við.

„Upp­lifunin er að það er engin iðrun og hún lét það hljóma þannig að þetta væri liðin tíð. Og þetta var bara svona og eins og þetta bara eigi að vera svona. Ég alla vega upp­lifði enga iðrun. En ég upp­lifði ótta,“ segir Sig­varður.

Þóra neit­aði Kveik um við­tal, að því er fram kemur í þætt­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina