Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Það er ekki gott að lenda í klónum á henni“

Friðrik Már Heim­is­son reyndi að vara við aðstæðum í Bakka­koti

„Það er ekki gott að lenda í klónum á henni“
Þóra Bern­ód­us­dóttir Þóra er borin þungum ásök­unum í Kveiks­þætt­inum Mynd: Facebook

Í RÚV var í gær sýndur Kveiks­þáttur þar sem rætt var við drengi og eina stúlku sem send voru í fóstur og sum­ar­dvöl í Bakka­koti, þar sem ofbeldi af hálfu hús­freyj­unnar Þóru Bern­ód­us­dóttur og drykkja er sögð hafa við­geng­ist. Er um að ræða fram­hald af þeirri umfjöllun sem Kveikur fjall­aði um fyrir nokkrum vikum. Í þætti gær­kvölds­ins kom meðal ann­ars fram frá­sögn Friðriks Más Heim­is­sonar, sem reyndi að segja frá aðstæðum sínum þegar hann var barn.

Friðrik fór fyrst í sum­ar­dvöl í Bakkakot árið 1999, þá 12 ára gam­all. Hann var ofvirkur og hafði orðið fyrir ein­elti í skóla. Móðir hans, Petrea Frið­riks­dóttir, sótti um að hann fengi að fara í sveit yfir sum­arið í þeirri trú að það gæti gert honum gott. Félags­þjón­usta Reykja­vík­ur­borg valdi Bakkakot sem stað­setn­ingu.

Samkvæmt gögnum sem Kveikur vitnar í varð starfs­fólk félags­þjón­ust­unnar strax fyrsta sum­arið vart við að Þóru lík­aði illa við Friðrik. Í skýrslu er haft eftir henni að henni fynd­ist eins og dreng­ur­inn hefði verið „plat­aður inn á hana“.

Í eft­ir­lits­skýrslu sum­ar­dvalar­eft­ir­lits borg­ar­innar segir orð­rétt:

„Þóra átti mjög erfitt með að finna nokkurn hlut sem væri jákvæður við Friðrik“.

Þar kemur einnig fram að hún hafi kallað hann „latan og kjaft­foran“. Sömu lýs­ingar komu aftur fram í eft­ir­lits­skýrslu árið 2001, þar sem Friðrik er sagður „latur og vit­grannur“.

Sumarið 2001 reyndi Friðrik sjálfur að segja frá stöð­unni. Samkvæmt skýrslu sagði hann orð­rétt:

„það er ekki gott að lenda í klónum á henni“.

Í við­tali við Kveik segir Friðrik að hann hafi verið skít­hræddur þegar hann reyndi að koma þessu á fram­færi:

„Ég man eftir því að ég ýjaði að þessu þarna, bara skít­hræddur,“ segir Friðrik.

„Ég von­að­ist til þess að það myndi ein­hver taka mig þaðan, spyrja mig: „Hvað, af hverju? Af hverju er hann að segja þetta? Hvað hefur hann séð?““

Móðir hans, Petrea, segir að þessi orð hefðu átt að vekja við­brögð:

„Þetta ætti að hringja bjöllum, af hverju hann noti þarna þessi orð, að það sé slæmt að lenda í klónum á Þóru.“

Í gögnum félags­þjón­ustu Reykja­vík­ur­borgar kemur fram að Friðrik ræddi aftur við félags­ráð­gjafa um aðstæður sínar í Bakka­koti haustið 2001. Þá ræddi félags­ráð­gjaf­inn einnig við Petreu um nei­kvæð við­horf Þóru í garð sonar hennar. Þrátt fyrir það var samn­ingur um að hjónin í Bakka­koti yrðu áfram stuðn­ings­fjöl­skylda hans fram­lengdur stuttu síðar.

Friðrik fór þó aðeins í örfá skipti í Bakkakot eftir það. Í febr­úar 2002 mætti hann ásamt móður sinni á fund hjá félags­þjón­ust­unni. Nokkrum vikum síðar lýsti félags­ráð­gjafi því sam­tali á fundi með kol­legum og stjórn­endum með eft­ir­far­andi orðum:

„Friðrik kom fram með ásak­anir um að á heim­ili stuðn­ings­fjöl­skyldu sé drykkja og bar­smíðar. Farið var fram á að ekki yrði gætt nafn­leyndar varð­andi þessar ásak­anir og sam­þykkti móðir það.“

Þrátt fyrir ítrekuð við­vör­un­ar­merki og frá­sagnir Friðriks hélt starf­semin í Bakka­koti leyft í nokkur ár eftir að ásak­an­irnar komu fram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina