Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Ísland tekur þátt í máli fyrir Alþjóðadómstólnum

„Með þátt­töku Íslands í máli Suður-Afríku fyrir Alþjóða­dóm­stólnum beitum við rödd okkar“

Ísland tekur þátt í máli fyrir Alþjóðadómstólnum
Þor­gerður Katrín utan­rík­is­ráð­herra Mynd: Víkingur

Íslensk stjórn­völd hafa ákveðið að taka þátt í máli Suður-Afríku gegn Ísrael fyrir Alþjóða­dóm­stólnum í Haag en stjórn­völd greina frá þessu í til­kynn­ingu.

Yfir­lýs­ing þess efnis var lögð fram fyrir dóm­stólnum í gær þar sem gerð er grein fyrir lög­fræði­legri  afstöðu Íslands. Með þess­ari ákvörðun tekur Ísland í fyrsta skipti þátt í efn­is­legu máli fyrir dóm­stólnum. 

Í mál­inu fer Suður-Afríka fram á að Ísrael verði dæmt brot­legt við skyldur sínar sam­kvæmt hóp­morðs­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna fyrir fram­göngu sína í stríð­inu á Gaza, sem hófst í kjöl­far árása hryðju­verka­sam­tak­anna Hamas í Ísrael 7. októ­ber 2023. Íslensk stjórn­völd hafa for­dæmt bæði hryðju­verka­árás Hamas og hern­að­ar­að­gerðir Ísraels, sem og hörmu­legt mann­úð­ar­á­stand á Gaza. Um leið hefur verið lögð áhersla á að það sé alþjóð­legra dóm­stóla að skera úr um hvort um hóp­morð, einnig kallað þjóð­ar­morð, sé að ræða. Í sam­ræmi við reglur dóm­stóls­ins afmarkast umfjöllun Íslands við það hvernig stjórn­völd telja rétt að túlka hóp­morðs­sátt­mál­ann.

Skylda Íslands og annarra

„Það gildir einu hvar átök geisa í heim­inum eða hver er að verki, alþjóða­sam­fé­lag­inu ber skylda til að leiða brot á alþjóða­lögum til lykta fyrir sjálf­stæðum og óháðum dóm­stólum. Með þátt­töku Íslands í máli Suður-Afríku fyrir Alþjóða­dóm­stólnum beitum við rödd okkar í þágu alþjóða­laga og mann­rétt­inda. Og af því megum við vera stolt,“ segir Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir utan­rík­is­ráð­herra.

Með ákvörðun um með­al­göngu Íslands í mál­inu er fram­fylgt stefnu sem Alþingi mark­aði í þings­á­lyktun nr. 1/154, frá 9. nóv­em­ber 2023, um afstöðu Íslands vegna átaka fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs, þar sem þess er kraf­ist að alþjóða­lögum sé fylgt í einu og öllu, og áréttað að öll brot stríð­andi aðila á alþjóða­lögum verði rann­sökuð til hlítar.

Sem fyrr segir er þetta í fyrsta skipti sem Ísland tekur þátt í efn­is­legu máli fyrir Alþjóða­dóm­stólnum en á sl. ári lagði Ísland í fyrsta sinn fram sjálf­stæða grein­ar­gerð í ráð­gef­andi álits­máli fyrir dóm­stólnum. Þetta er hluti af vax­andi áherslu á að Ísland beiti sér með virkum hætti fyrir virð­ingu fyrir reglum þjóða­réttar.

Vegna þátt­töku í dóms­mál­inu efndi utan­rík­is­ráðu­neytið til sam­starfs við dr. Þórdísi Inga­dóttur, pró­fessor við laga­deild Háskól­ans í Reykja­vík, og dr. Kára Hólmar Ragn­ars­son, dós­ent við laga­deild Háskóla Íslands, en þau eru meðal fremstu fræði­manna Íslands á sviði þjóða­réttar. 

Hóp­morðs­sátt­máli Sam­ein­uðu þjóð­anna er frá árinu 1948 og fjallar hann um skyldur ríkja til að fyr­ir­byggja hóp­morð í heim­inum. Er ríkjum sem aðild eiga að sátt­mál­anum skylt að grípa til ráð­staf­ana gegn hóp­morði sem og refsa fyrir það og tengda glæpi, t.d. hvatn­ingu til hóp­morðs. Ísland var fjórða ríkið til að full­gilda hóp­morðs­sátt­mál­ann árið 1949, en alls hafa 154 ríki gerst aðilar að honum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum