Hafnfirskur karlmaður hefur verið ákærður af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu fyrir líkamsárás.
Maðurinn er ákærður fyrir að hafa, aðfaranótt mánudagsins 5. ágúst 2024, utandyra við skemmtistaðinn Röntgen við Hverfisgötu 12 í Reykjavík, veist með ofbeldi að mann og slegið hann í andlitið með flötum lófa, með þeim afleiðingum að hann hlaut glóðarauga á báðum augum og nefbrot.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar
Málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 16. apríl.































Athugasemdir