Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Segir formann Sjálfstæðisflokksins „ösla um í drullupolli mannhaturs“

Sólveig Anna hjólar í Guðrúnu Haf­steins­dóttur

Segir formann Sjálfstæðisflokksins „ösla um í drullupolli mannhaturs“
Guðrún Haf­steins­dóttir Sólveig Anna rífur for­mann­inn í sig í nýrri Facebook-færslu Mynd: Víkingur

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, gagn­rýnir for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins harð­lega í nýrri Facebook-færslu sem hún birti í morgun. Þar sakar hún hana um veik­burða for­ystu og segir hana grípa til öfga­fullrar orð­ræðu í póli­tískri bar­áttu.

Í færsl­unni segir Sólveig Anna meðal ann­ars:

„Örvænt­ing for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins yfir því að vera algjör­lega mis­heppn­aður stjórn­mála­maður er yfir­þyrm­andi. Hún veit að hún hefur úr því sem næst engu að moða, er ekki sterkur leið­togi heldur leið­tog­inn sem eng­inn vill leiða – tími hennar er ekki lið­inn, hann kom aldrei - og grípur því til þess örþrifa­ráðs að ösla um í drullu­polli mann­hat­urs og öfga-hyggju þeirra sem kynda öll ófrið­ar­bál…“

Tilefni gagn­rýn­innar er umfjöllun í Morg­un­blað­inu þar sem fjallað er um að íslenskir rík­is­borg­arar hafi greitt landamæra­vörðum mútur til að aðstoða fólk á flótta frá Gaza. Sólveig Anna ver þá sem komu að slíkri aðstoð og segir:

„…ræðst að sam­löndum sínum sem gerðu það sem Kristur boðar, gerð­ust Sam­verjar vorra daga, meðan að hún sjálf er verri en nokkur Levíti – allt til að kreista út nokkur atkvæði frá kjós­endum sem vilja trúa því að brúnt fólk beri ábyrgð á afleið­ingum sið­blindu og sví­v­irðu útkynj­aðs kap­ít­al­isma og heims­valda­stefnu hnign­aðra vest­ur­landa. For­mað­ur­inn myndi eflaust reyna að halda því fram að Sam­verj­inn hafi mútað gisti­húsa­eig­and­anum þegar hann greiddi honum fyrir umönnun manns­ins sem hafði verið bar­inn og rændur og skil­inn eftir til að deyja.“

Hún gagn­rýnir jafn­framt harð­lega stefnu og mál­flutn­ing Sjálf­stæð­is­flokks­ins í mál­efnum Palest­ínu og flótta­fólks og segir flokks­menn hafa viljað stöðva stuðn­ing við Flótta­manna­hjálp Sam­ein­uðu þjóð­anna í Palest­ínu.

Í færsl­unni rifjar hún einnig upp mót­mæli árið 2014 við banda­ríska sendi­ráðið í Reykja­vík þar sem hún hélt ræðu. Hún segir að þar hafi hún meðal ann­ars biðlað til Barack Obama um að sýna mennsku í mál­efnum Gaza.

„Með frétt­inni um botn­hegðun íslenska hægr­is­ins, sem reynir að fela eigið getu og sjarma-leysi með röfli og ras­isma, lætur Mogginn af ein­hverjum ástæðum fylgja mynd sem tekin var árið 2014 þegar mót­mælt var við amer­íska sendi­ráðið á fögrum sum­ar­degi, vegna þess að ísra­elsku morð­in­gj­arnir voru, með stuðn­ingi Banda­ríkj­anna, enn á ný að slátra sak­lausu fólki á Gaza.“

Á öðrum stað minn­ist hún á kennslu­stund Jesú Krists: „Það eina sem ég get gert er að muna kennslu­stund Jesú sem enn lifir 2000 árum eftir að hún fór fram; mennska birt­ist í verki; hún sér þann sem þjá­ist, burt­séð frá öllu; þjóð­erni, upp­runa, kyn­þætti – og þráir að lina þján­ing­arnar.“

Í lok færsl­unnar beinir hún orðum sínum beint til for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins og segir

„Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn vill að krist­in­fræði­kennsla verði tekin upp að nýju í skólum lands­ins – ég geri ekki athuga­semdir við það. En full­orðið fólk þarf fyrst að læra það sem það vill kenna börnum – for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins ætti að nota páska-hátíð­ina til að koma sér upp úr drullu­svað­inu sem hún er sokkin í og athuga hvort að hún getur fundið pláss fyrir boð­skap Krists í hjarta sínu. Þá tæk­ist henni kannski að lina eigin van­líðan yfir því að vera svona ótrú­lega óvin­sæl og gæti þá mögu­lega snúið af vegi villu­trúar og grimmdar og byrjað að ganga veg náunga­kær­leika og sam­hyggðar með mann­fólki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum