Julierson Alves Morgado hefur verið dæmdur í fangelsi fyrir líkamsárás en málið var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur.
Hann var ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, með því að hafa að kvöldi fimmtudagsins 22. september 2022 á veitingahúsi í Reykjavík, veist með ofbeldi að manni og slegið hann að minnta kosti tvisvar í höfuðið með skiptilykli með þeim afleiðingum að maðurinn hlaut tvo stjörnulaga skurði á höfði, hvorn með um eins sentímetra löngum örmum, sem sauma þurfti með fimm sporum í hvorn skurð.
Morgado játaði árásina en við ákvörðun refsingar var litið til þess að hann gerðist sekur um sérstaklega hættulega líkamsárás sem beindist gegn höfði brotaþola.
Hann var dæmdur í átta mánaða fangelsi en dómurinn er skilorðsbundinn til tveggja ára. Þá þarf hann að greiða fórnarlambi sínu 400.000 krónur auk vaxta.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir