Sævar Þór Hallgrímsson hefur verið dæmdur í fangelsi en málið var tekið fyrir í Héraðsdómi Suðurlands.
Hann var ákærður fyrir brot gegn valdstjórninni, með því að hafa mánudaginn 14. febrúar 2025, í stigagangi í Vestmannaeyjum, ógnað lögreglumani með hnífi og hótað honum lífláti, og á lögreglustöðinni við Faxastíg 42 í Vestmannaeyjum, ítrekað hótað öðrum lögreglumanni lífláti, en lögreglumennirnir voru við skyldustörf.
Sævar játaði brot sitt en hafði ekki áður gerst sekur um refsiverða háttsemi.
Hann var því dæmdur í 30 daga fangelsi en dómur hans er skilorðsbundinn til tveggja ára.





















Athugasemdir