Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Innlent

Grun­semdir vökn­uðu þegar son­ur­inn sagð­ist fá fría ferð til Taílands

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Gagnrýnir tvískinnung Loga Einarssonar

Spyr af hverju aðeins rúss­neskum lista­mönnum sé úthýst úr Fen­eyj­artví­ær­ingnum

Logi Einarsson
Logi Ein­ars­son Kristinn spyr áleit­inna spurn­inga í færsl­unni Mynd: Víkingur

Rit­stjóri WikiLeaks, Kristinn Hrafns­son, gagn­rýnir harð­lega afstöðu íslenskra stjórn­valda til þátt­töku lista­manna á Fen­eyj­artví­ær­ing­ur­inn í nýrri Facebook-færslu.

Í færsl­unni bendir hann á að á meðan rætt sé um að úti­loka rúss­neska lista­menn vegna inn­rásar Rúss­lands í Úkraínu, sé ekki beitt sömu mælistiku gagn­vart öðrum ríkjum.

Hann nefnir að full­trúi Íslands á tví­ær­ingnum verði Ásta Fanney Sig­urð­ar­dóttir og að þátt­taka hennar sé óum­deild. Á sama tíma hafi Logi Ein­ars­son, menn­ing­ar­mála­ráð­herra, hvatt til þess að þátt­taka rúss­neskra lista­manna verði snið­gengin vegna stríðs­ins í Úkraínu. Kristinn skrifar:

„Hópur ungra rúss­neskra lista­manna mun fylla skála lands­ins af list, það er að segja ef ekki verður strækað á þát­tök­una eins og Logi Ein­ars­son, menn­ing­ar­mála­ráð­herra hefur hvatt til. Af því Pútín sendi heri sína inn í Úkraínu og hefur framið þar óhæfu­verk.“

Kristinn bendir hins vegar á að lista­menn frá Banda­ríkj­unum og Ísrael taki einnig þátt, þrátt fyrir að stjórn­völd þeirra landa hafi staðið að hern­að­ar­að­gerðum sem sætt hafa harðri gagn­rýni.

Hann nefnir sér­stak­lega mynd­höggv­ar­ann Alma Allen sem full­trúa Banda­ríkj­anna og ísra­elska lista­mann­inn Bela-Simion Fainaru, og spyr hvers vegna ekki sé kallað eftir því að þeir verði úti­lok­aðir á sama hátt.

„Nú hefur Trump, for­seti hans ráð­ist inn í Íran og drepið þar mann og annan og ekki und­an­skilið á annað hund­rað skóla­stúlkur. Þess utan hefur hann hótað að eyða allri sið­menn­ingu í Íran og vænt­an­lega mun þá öll list­sköpun hverfa. Logi ráð­herra hefur ekki lýst því yfir að hann vilji að Alma Allen sé meinað að mæta með list sína til Feneyja þrátt fyrir þetta. Á þess­ari hátíð mun Ísrael einn­ing senda list­mann­inn Belu-Simion Fainaru sem mun setja þar upp verk sem með strúkt­úrum og vatni end­ur­speglar svart tómið sem ku vera vísan í Kabbala dul­hyggju gyð­ing­dóms. Benjamin Net­anyahu for­sætiráð­herra Belu-Simion hefur verið að dunda sér við þjóð­ar­morð og slátrun á tug­þús­undum barna. Ég hef ekki séð ákall Loga ráð­herra um að list­mann­inum Belu-Simion sé úthýst frá Feneyjum vegna þess­ara gjörða póli­tískrar for­ystu í hans heima­landi.“

Í færsl­unni vitnar hann til rök­stuðn­ings hóps evr­ópskra ráð­herra, þar á meðal Loga, um að þátt­taka Rússa geti „varpað upp mynd lög­mætis og alþjóð­legrar við­ur­kenn­ingar“ sem sam­ræm­ist ekki stríðs­rekstri þeirra.

Kristinn spyr að lokum hvort sömu rök eigi ekki við um önnur ríki og hvort vænta megi frek­ari við­bragða frá ráð­herr­anum:

„Telur Logi ráð­herra þá að þát­taka lista­manna frá Ísrael og Banda­ríkj­unum „varpi upp mynd lög­mætis og alþjóð­legrar við­ur­kenn­ingar“ á árás­ar­stríði, stór­felldum stríðs­glæpum, aðskiln­að­ar­stefnu, land­ráni og þjóð­ar­morði? Eða er von á fram­haldstil­kynn­ingu frá ráð­herra?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Ísrael hefur nán­ast útrýmt ævafornum ólífutrjám Gaza

Aðeins um 150 þúsund af tveimur milljónum ólífutrjáa sem stóðu á Gaza fyrir stríðið eru enn eftir, samkvæmt gögnum landbúnaðarráðuneytisins þar.
Fólk

Átta mis­tök sem fólk ætti að forð­ast ef það flýgur um jólin

Heimur

Rússar sagðir und­ir­búa kjarn­orku­vopn á braut um jörðu

Pólitík

„Staðan á vissum tímum sól­ar­hrings­ins orðin nán­ast óbæri­leg“

Pólitík

Aðeins þrír róðrar áður en hjónin riftu kaup­unum

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Viðreisn mælist með 9,2 prósenta fylgi og Miðflokkurinn með 15,1 prósent. Atli Þór segir Miðflokkinn „hreinlegri“ kost.
  • Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

  • Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

  • Sigríður vill kanna hvort Ísland geti tekið þátt í brott­far­ar­stöð í Rúanda

  • Ást­hildur Lóa vill beita skyldu­sparn­aði gegn verð­bólgu

  • Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi