Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Innlent

Grun­semdir vökn­uðu þegar son­ur­inn sagð­ist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Jóhann Friðrik dæmdur fyrir hatursorðræðu

Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í málinu
Hér­aðs­dómur Reykja­ness dæmdi í mál­inu Mynd: Víkingur

Hér­aðs­dómur Reykja­ness hefur dæmt Jóhann Friðrik Unn­steins­son sekan um hat­ur­orð­ræðu vegna ummæla sem hann birti í athuga­semd á Facebook-síðu Vísis. Málið var höfðað af emb­ætti lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum eftir að sam­tökin Solaris lögðu fram kæru en hann lét ummælin falla 17. júní árið 2023.

„Það þarf að fara end­ur­vekja þýsku sturt­urnar aftur á þetta hel­vítis pakk. Grikkirnir kunna að fara með þessar rottur og berja þær til hlýðni svo þær hugsa ekki einu sinni um að reyna að kom­ast yfir landa­mærin þar. Þeir voru aldrei spurðir hvort þeir vildu taka á móti múss­unum og skilja að rett eins og þú býður ekki rottum að sofa inná gafli hjá þér þá viltu ekki heldur fá þessi mann­legu mein­dýr inna á golf til þín sem eru ekki að flýja neitt nema let­ina í sér og slæmt efna­hags­kerfi & hugsa bara um að leggj­ast á kerfið og láta sig svo hverfa þegar kistan er tóm hvort sem það er múss­arnir eða pakkið frá Venes­ú­ela,“ sagði Jóhann í ummæl­unum.

Samkvæmt ákæru fólust ummælin í ógnun, smánun, háði og róg­burði gagn­vart ótil­greindum hópi fólks á grund­velli þjóð­ernis, kyn­þáttar og trú­ar­bragða.

Við skýrslu­töku hjá lög­reglu við­ur­kenndi Jóhann að hafa skrifað ummælin, en hélt því fram að hann hefði ekki beint þeim að neinum sér­stökum hópi heldur ein­ungis verið að tjá skoðun sína og vísa til þess sem hann hefði lesið.

Dómurinn taldi ummælin hins vegar gróf­lega móðg­andi og alvar­leg, og til þess fallin að valda skaða þeim hópum sem þau beindust að. Ekki var fall­ist á að þau gætu talist rétt­læt­an­legt fram­lag til opin­berrar umræðu.

Með hlið­sjón af atvikum máls­ins var Jóhanni gert að greiða 100.000 króna sekt. Honum er veittur fjög­urra vikna frestur til greiðslu, en að öðrum kosti tekur við átta daga fang­els­is­vist.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Krist­ínar

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir varði samning ráðuneytisins um ráðgjöf vegna þjóðaratkvæðagreiðslu
Pólitík

Kristrún segir halla­laus fjár­lög sleggj­una sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Sam­sær­is­kenn­ingar spretta upp eftir und­ar­legt augna­blik á blaða­manna­fundi

Innlent

Sendi sak­sókn­ara falsað lækn­is­vott­orð og hlaut árs­fang­elsi

Innlent

Innkalla vin­sælt jóla­smáköku­deig vegna aðskota­hluts

Innlent

Kökuboð á Pat­reks­firði end­aði fyrir dómi

Héraðsdómur Vestfjarða sýknaði mann af ákæru um hættubrot eftir að gestur hans veiktist í kjölfar þess að hafa borðað köku sem talin var innihalda kannabis.

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafna­skrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar rík­is­stjórn­ina um að gera lítið úr vinnu lág­launa­fólks og for­eldra