Matvælastofnun varar við neyslu á Enoki sveppum frá Kína sem Fiska ehf. hefur flutt inn vegna listeríu. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnes ( HEF).
Tilkynning kom til Íslands í gegnum RASFF hraðviðvörunarkerfi Evrópu um hættuleg matvæli og fóður á markaði.
Viðskiptavinum er bent á að farga eða koma með vöruna til Fiska til að fá endurgreitt.
































Athugasemdir