Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Sigmundur dæmdur fyrir „ósiðlegt og lostugt athæfi“ utandyra

Hann játaði brot sín

Héraðsdómur Reykjavíkur sá um málið
Hér­aðs­dómur Reykja­víkur sá um málið Mynd: Víkingur

Héraðs­dómur Reykja­víkur kvað nýlega upp dóm yfir Sigmundi Þóri Jónssyni vegna tveggja kynferðis­brota en Sigmundur játaði brotin.

Í fyrri ákæru, sem gefin var út 3. mars 2026, var honum gefið að sök að hafa í september 2025 berað kynfæri sín og fróað sér utandyra í Reykjavík með þeim afleiðingum að vitni sá til hans og á þannig sýnt af sér „ósiðlegt og lostugt athæfi“ eins og það er orðað í dómnum. Var háttsemin talin brjóta gegn ákvæði almennra hegningar­laga um blygðunarsemis­brot.

Í síðari ákæru, frá 10. mars 2026, var hann sakfelldur fyrir að hafa haft í vörslum sínum mikið magn af teiknuðu myndefni sem sýnir börn á kynferðis­legan og klám­fenginn hátt. Efnið fannst við húsleit og var geymt á farsíma og tölvu­búnaði hans.

Dómurinn taldi sannað með játningu og gögnum málsins að Sigmundur væri sekur um bæði brotin. Við ákvörðun refsingar var litið til fyrri saka­ferils hans, en hann hafði áður hlotið skilorðs­bundna dóma fyrir sambærileg brot. Þá var tekið tillit til þess að hann hafði verið samvinnufús við rannsókn málsins og játað brot sín greiðlega.

Sigmundur var dæmdur í átta mánaða fangelsi, en fullnustu fimm mánaða var frestað með tveggja ára skilorði. Á skilorðs­tímanum skal hann sæta eftirliti og meðferð, meðal annars hjá úrræðinu „Taktu skrefið“. Þá var jafnframt ákveðið að gera upptækt hið ólöglega myndefni og þann búnað sem notaður var til geymslu þess.

Honum var einnig gert að greiða sakar­kostnað, þar með talið málsvarnar­þóknun verjanda síns.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim