Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Daníel endaði á sjúkrahúsi eftir hundsbit í Árbænum

„Allt við þessa uppákomu var eigandanum gjör­samlega til skammar.“

Landspítalinn
Land­spít­al­inn Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Víkingur

Daníel Freyr Sigur­bjargarson er allt annað en sáttur við hegðun hunda­eiganda við Rauðavatn en í færslu á Facebook-síðu Árbæjar greinir hann frá því að hann hafi verið bitinn í gær við vatnið.

„Ég hleyp í kringum Rauðavatn nokkrum sinnum í viku og hef gert lengi. Í dag lenti ég í ótrúlegu atviki þegar þrír hundar réðust á mig og einn þeirra beit hressilega í kálfann á mér, svo ég þurfti að eyða nokkrum tímum á slysó. Eigandinn réð ekkert við þá og stóð bara hjá aðgerðar­laus. Allt við þessa uppákomu var eigandanum gjör­samlega til skammar,“ skrifar Daníel um málið.

„Hundarnir, þá sérstak­lega þessi sem beit, héldu áfram að ógna mér þegar skógarhöggs­menn frá borginni áttu leið hjá á besta tíma og ég gat hoppað upp í bílinn þeirra og leitað skjóls.

Þetta var ofboðs­lega súrt atvik og ég hreinlega þakka fyrir að hafa ekki verið að rölta með barnið mitt. Lausir hundar eru EKKI leyfðir við vatnið. Þetta er því miður alls ekki í fyrsta sinn sem hundar koma hlaupandi og geltandi að manni við vatnið,“ skrifar hann að lokum.

Þá bætir hann við í athugasemd að eigandinn hafi gert lítið úr málinu þar sem hundurinn væri aðeins hálfs árs gamall.

Fleiri lent í svipuðu

Elísabet Helga Erlends­dóttir skrifaði svo í athugasemd að hún kannist við slíka hegðun við Rauðavatn.

„Ég lenti i svipuðu atviki um síðustu helgi þar sem hundur réðst á mig upp við vatnið og eigandinn gerði ekkert kippti sér ekki einu sinni upp við þegar við kölluðum að henni að hann hefði bitið mig. Það var svartur hundur sem ég var ekki alveg greint tegundina en hún var svo með fleiri hunda með sér,“ skrifar Elísabet og spyr svo að lokum hvað sé hægt að gera í svona aðstæðum.

Ekki er þetta í fyrsta skipti sem kvartað er undan hunda­eigendum við Rauðavatn en staðurinn hefur verið gífurlega vinsæll meðal þeirra undan­farna áratugi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim