Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Martin Short opnar sig um sjálfsvíg dóttur sinnar

„Pabbi, leyfðu mér að fara“

Martin Short opnar sig um sjálfsvíg dóttur sinnar
Martin Short Heim­ild­ar­mynd um Martin Short birt­ist von bráðar á Netflix Mynd: LISA O'CONNOR / AFP

Martin Short hefur í fyrsta sinn tjáð sig opin­ber­lega um and­lát dóttur sinnar Katherine Short, sem lést í febr­úar síð­ast­liðnum, 42 ára að aldri, eftir sjálfs­víg.

Í við­tali við CBS sagði hinn ást­sæli leik­ari að fjöl­skyldan hefði gengið í gegnum mikla sorg.

„Þetta hefur verið martröð fyrir fjöl­skyld­una,“ sagði hann í sam­tali við Tracy Smith í þætt­inum CBS Sunday Morning.

Martin sagði að dóttir hans hefði glímt lengi við alvar­leg geð­ræn veik­indi.

„Dóttir mín barð­ist lengi við mjög alvar­leg geð­ræn veik­indi,“ sagði hinn 76 ára gamli leik­ari. „Per­sónu­leika­röskun af jað­ar­gerð og fleira, og hún gerði sitt besta þar til hún gat ekki meira.“ Bætti hann við:

Hann tengdi einnig reynslu dóttur sinnar við and­lát eig­in­konu sinnar, Nancy Dolman, sem lést úr krabba­meini árið 2010 eftir þrjá­tíu ára hjóna­band þeirra.

„Síðustu orð Nan til mín voru: „Martin, leyfðu mér að fara“,“ sagði hann og bætti við um dóttur sína: „Og hún var bara að segja: „Pabbi, leyfðu mér að fara“.“

Bætti hann við:

„En skiln­ing­ur­inn á því að geð­sjúk­dómar og krabba­mein, eins og hjá eig­in­konu minni, eru hvort tveggja sjúk­dómar og stundum eru sjúk­dómar ban­vænir.“

Martin sagði að sorgin hefði verið gríð­ar­leg fyrir hann og syni hans, Oliver Short og Henry Short.

Only Murders in the Building-stjarnan rifj­aði upp að dag­inn sem dóttir hans lést hafi hann efast um til­gang lífs­ins.

„Ég var að fara inn í bíl­inn þennan dag og hugs­aði: „Ég er 75 ára. Af hverju er ég eig­in­lega að halda áfram? Hver er til­gang­ur­inn?“.“

En þegar hann kom heim til sonar síns í Newport Beach hafi barna­börn hans hjálpað honum að finna aftur til­gang.

„Þessir tveir afa­strákar mínir, fimm og fjög­urra ára, stukku á mig og sögðu: „Leikum risa!“ Og allt í einu hugs­aði ég: „Þess vegna. Þess vegna“.“

Sorg Martin Short og seigla hans verða meðal ann­ars til umfjöll­unar í vænt­an­legri Netflix-heim­ild­ar­mynd um líf hans og feril sem ber heitið Marty, Life is Short.

Í kynn­ing­ar­stiklu fyrir heim­ild­ar­mynd­ina segir Andrea Martin, leik­kona og gömul vin­kona hans, við mynda­vél­arnar um Martin: „Að vera pabbi er honum jafn eðl­is­lægt og að draga and­ann.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Hann mætti ekki við þingfestingu málsins
Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco