Biskup Íslands auglýsti nýverið sjö lausar stöður presta til umsóknar en greint er frá þessu í tilkynningu frá kirkjunni.
Störfin sem um ræðir eru sendiráðsprestur í Danmörku með aðsetur í sendiráði Íslands í Kaupmannahöfn, tvær stöður presta í Þingeyjarprestakalli, prestur í Árborgarprestakalli, tímabundin afleysing prests í Þorlákshafnarprestakalli, staða prests í Austfjarðaprestkalli með sérstakar skyldur við Norðfjarðar-, Eskifjarðar- og Reyðarfjarðarsóknir, og loks er auglýst eftir héraðspresti til þjónustu í Vestfjarðaprófastsdæmi með sérstakar skyldur við Hólssókn í Bolungarvík.
Athygli vekur að meirihluti presta sem sækja um embættin óskuðu eftir nafnleynd































Athugasemdir