Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Árni Ólason endurráðinn

Mennta­skólinn á Egils­stöðum fær að halda skóla­meistaranum

Árni Ólason
Árni Ólason Árni hefur unnið við M.E. í 34 ár Mynd: Facebook

Inga Sæland, mennta- og barnamála­ráðherra, hefur ákveðið að endur­skipa Árni Ólason sem skóla­meistara Mennta­skólans á Egils­stöðum til næstu fimm ára frá og með 1. ágúst. Frá þessu er sagt á Austur­frétt.

Fyrri ráðherra mála­flokksins, Guðmundur Ingi Kristinsson, hafði áður gefið til kynna að ekki stæði til að skipa Árna aftur í embættið þegar núverandi skipunar­tímabil rynni út á þessu ári.

Árni tók fyrst við starfi skóla­meistara haustið 2016, en embættið er skipað til fimm ára í senn. Í desember á síðasta ári sagði Guðmundur Ingi í útvarps­viðtali að fyrir­hugað væri að ráða nýjan skóla­meistara þegar tímabili Árna lyki.

Mennta- og barnamála­ráðuneytið sagði síðar að ákveðið hefði verið að auglýsa starfið á ný svo umsækjendur gætu tekið afstöðu til þess hvort þeir vildu leiða skólann í gegnum mögulegar breytingar á framhalds­skóla­kerfinu. Ráðherra hafði kynnt tillögur að breytingum á kerfinu síðasta haust, þó þær hafi lítið verið til umræðu undan­farna mánuði.

Tvær umsóknir bárust þegar staðan var auglýst í mars, þar á meðal umsókn frá Árna sjálfum, sem hefur nú verið ráðinn áfram.

Í tilkynningu ráðuneytisins kemur fram að Árni hafi starfað við Mennta­skólann á Egils­stöðum í alls 34 ár, meðal annars sem íþrótta­kennari, kennslu­stjóri, áfanga­stjóri og síðar skóla­meistari.

Hann er menntaður í heilsu- og íþrótta­lífeðlisfræði frá Norska íþrótta­háskólanum og hefur einnig kennslu­réttindi frá Íþrótta­kennara­skóla Íslands á Laugar­vatni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim