Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Kallaði til lögreglu vegna ástands hundapassara

Alvar­legt atvik í hundapössun

Kallaði til lögreglu vegna ástands hundapassara
Bono fannst laus í hverf­inu Hvetur hunda­eig­endur til fyllstu var­kárni eftir alvar­legt atvik í gær Mynd: Facebook/Birna Marín Friðriksdóttir

Hunda­eig­andi varar aðra hunda­eig­endur við í opin­berri færslu eftir að lög­reglan þurfti að grípa inn í pössun á hundi hans í gær. Hund­ur­inn Bono fannst laus í hverf­inu eftir að til­kynn­ingar bár­ust um að hundapass­ar­inn væri ófær um að sinna honum vegna ann­ar­legs ástands.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá eig­anda sást konan ganga um á sokk­unum og reyna að fara inn í rangar íbúðir. Hún fór síðar með hund­inn á hunda­svæði þar sem lög­reglan var kölluð til. Hund­ur­inn Bono var í kjöl­farið fluttur í örugga umsjá hjá Dýra­hjálp og er hann ómeiddur eftir atvik­ana.

Eig­and­inn tekur fram að konan hafi komið mjög vel fyrir á per­sónu­legum fundi fyrir pöss­un­ina, svarað öllum spurn­ingum og virst trausts­ins virði. Markmið við­vör­un­ar­innar er að hvetja aðra hunda­eig­endur til fyllstu var­kárni, sér­stak­lega þar sem við­kom­andi rekur Facebook-síðu þar sem hún aug­lýsir heimapössun á hundum.

Hægt er að fá frek­ari upp­lýs­ingar um málið með því að senda eig­and­anum einka­skila­boð.

„Mig langar að vara aðra hunda­eig­endur við reynslu sem við urðum fyrir í gær með konu sem tekur að sér hundapössun.

Við fengum sím­tal frá lög­regl­unni um að hund­ur­inn okkar hann Bono væri í þeirra umsjá eftir að þeim hafði borist til­kynn­ing um að hundapass­ar­inn væri í þannig ástandi að hún væri ekki fær um að sinna hund­inum. Hund­ur­inn okkar hafði einnig sést ganga laus um hverfið okkar yfir langan tíma, án taums eða beislis, sem hefði getað endað mjög illa ef hann hefði hlaupið út á götu.

Samkvæmt þeim upp­lýs­ingum sem við fengum sást konan einnig ganga um á sokk­unum, reyna að fara inn í rangar íbúðir og síðar fór hún með hund­inn á hunda­svæði. Þar var lög­reglan kölluð til og hund­ur­inn okkar var að lokum fluttur í örugga umsjá hjá Dýra­hjálp.

Áður en við fengum hana til að passa hund­inn okkar hittum við hana per­sónu­lega. Við ræddum við hana, hún svar­aði öllum spurn­ingum okkar og lof­aði að fara vel með hund­inn. Hún kom mjög vel fyrir og virt­ist trausts­ins verð, þannig að við höfðum enga ástæðu til að ætla að eitt­hvað svona gæti gerst.

Það sem mér finnst sér­stak­lega mik­il­vægt að láta fólk vita af er að hún rekur einnig Facebook-síðu þar sem hún aug­lýsir og býðst til að taka að sér heimapössun á hundum. Þess vegna finnst mér mik­il­vægt að aðrir hunda­eig­endur séu með­vit­aðir um þessa reynslu þegar þeir velja sér hundapass­ara.

Sem betur fer er hund­ur­inn okkar ómeiddur, en þetta hefði getað farið mun verr. Ég set þetta ekki inn til að ráð­ast á neinn heldur til að vara aðra hunda­eig­endur við og hvetja fólk til að vera mjög var­kárt þegar það velur hundapass­ara.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti