Hópurinn Hinsegin fólk fyrir Palestínu hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem fordæmd eru hernaðaraðgerðir Ísraels á Gaza og það sem hópurinn kallar bleikþvott. Þar er jafnframt lýst yfir samstöðu með palestínsku hinsegin fólki og hvatt til áframhaldandi baráttu gegn því sem hópurinn skilgreinir sem hernám og þjóðarmorð.
Í yfirlýsingunni segir að palestínskt hinsegin fólk búi við margþætta kúgun, bæði vegna kynhneigðar eða kynvitundar og vegna átakanna á Gaza.
„Palestínsk systkini okkar ganga nú í gegnum hrottalegt þjóðarmorð af hendi Ísraels, sem er fjármagnað og vopnað af vestrænum stjórnvöldum,“ segir meðal annars í yfirlýsingunni.
Þar er einnig fjallað um bleikþvott, sem hópurinn skilgreinir sem þegar réttindabarátta hinsegin fólks sé notuð til að réttlæta eða draga athygli frá mannréttindabrotum.
Meðal annars segir að það sé bleikþvottur þegar Ísrael kynni Tel Aviv sem áfangastað fyrir hinsegin ferðamenn á sama tíma og hernaðaraðgerðir standi yfir á palestínskum svæðum. Þá er einnig gagnrýnt að árásir á hinsegin fólk séu notaðar til að réttlæta ofbeldi gegn öðrum hópum.
Að lokum er kallað eftir aukinni samstöðu milli hinsegin fólks og Palestínumanna í baráttunni fyrir mannréttindum og sjálfsákvörðunarrétti.
Hinsegin fólk fyrir Palestínu gengur þriðja árið í röð í Gleðigöngunni 2026 sem fram fer næstkomandi laugardag. Öllum er boðið velkomið að ganga með þeim.































Athugasemdir