Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Það var ekki til neinn peningur“

Fram­kvæmda­stjóri ELKO opnar sig um erf­iða tíma

„Það var ekki til neinn peningur“
Óttar Örn Sig­ur­bergs­son Mynd: Golli

Nú um helg­ina birti Mannlíf ítar­legt við­tal við Óttar Örn Sig­ur­bergs­son, fram­kvæmda­stjóra ELKO

Rætt er við hann er um upp­vöxt hans, námsár, fjöl­skyldu­líf og langan starfs­feril hjá ELKO, þar sem hann hefur meðal ann­ars byggt upp afþrey­ing­ar­deild og vef­verslun fyr­ir­tæk­is­ins. Óttar lýsir einnig þróun sinni sem stjórn­anda, frá hörðum og árang­urs­drifnum stjórn­un­ar­stíl yfir í meiri áherslu á mannauð, traust og sam­vinnu. Þá ræðir hann opin­skátt um sjálfs­traust, streitu og kvíða, heilsu­fars­legar áskor­anir og mik­il­vægi þess að leita sér aðstoðar.

Óttar Örn var nítján ára þegar hann kynnt­ist eig­in­konu sinni, Kristínu Helgu Björns­dóttur, sem vinnur í dag í líf­eyr­is­þjón­ustu Arion Banka. Þau eign­uð­ust síðan sitt eldra barn saman þegar hann var tutt­ugu og tveggja ára. „Ég var að læra undir próf uppi á fæð­ing­ar­deild.“

Eig­in­konan vann á þessum tíma við afgreiðslu í sjopp­unni á BSÍ og vann hún á næt­ur­vöktum að selja meðal ann­ars sviða­kjamma á meðan Óttar Örn var í nám­inu og hitt­ust þau sjaldan að hans sögn. „Það er lífs­reynsla að hafa farið í gegnum það að eiga ekki neinn pen­ing og láta loka fyrir raf­magnið af því að það var ekki til neinn pen­ingur og að fara í spari­b­auk­inn til að geta keypt einn potta af mjólk. Við vorum alveg þar. Það er lífs­reynsla sem kennir manni og und­ir­býr fyrir lífið. Konan mín studdi mig eins og klettur í gegnum námið og hafði tekjur fyrir fjöl­skyld­una.“

Þetta var þriggja ára nám og útskrif­að­ist Óttar Örn með BS-próf í við­skipta­fræði með áherslu á alþjóða­mark­aðs­fræði. „Það var kannski svo­lítið rangt val hjá mér. Ég hefði meira átt að vinna með tölur en ég er miklu meira þar í líf­inu. Ég ætla ekki að tala mark­aðs­fræði niður en hún hent­aði mér ekki - þetta var pínu froðu­snakk. Þess vegna er ég með mjög góðan mark­aðs­stjóra í dag með mér,“ segir hann og hlær. „Ég myndi treysta mér í að gegna því starfi en ég held að ég sé alls ekki jafn­góður í því og aðrir í kringum mig.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu