Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Ef ég er að fela þetta þá væri það erfiðara“

Óttar Örn opnar sig varð­andi kvíða

„Ef ég er að fela þetta þá væri það erfiðara“
Óttar Örn Sig­ur­bergs­son Er fram­kvæmda­stjóri ELKO. Mynd: Golli

Nú um helg­ina birti Mannlíf ítar­legt við­tal við Óttar Örn Sig­ur­bergs­son, fram­kvæmda­stjóra ELKO

Rætt er við hann er um upp­vöxt hans, námsár, fjöl­skyldu­líf og langan starfs­feril hjá ELKO, þar sem hann hefur meðal ann­ars byggt upp afþrey­ing­ar­deild og vef­verslun fyr­ir­tæk­is­ins. Óttar lýsir einnig þróun sinni sem stjórn­anda, frá hörðum og árang­urs­drifnum stjórn­un­ar­stíl yfir í meiri áherslu á mannauð, traust og sam­vinnu. Þá ræðir hann opin­skátt um sjálfs­traust, streitu og kvíða, heilsu­fars­legar áskor­anir og mik­il­vægi þess að leita sér aðstoðar.

Streita og kvíði

Óttar Örn segir að Stjórn­vísis­verð­launin sem hann fékk fyrr á árinu hafi gefið sér sjálfs­traust sem hann hafi skort í gegnum tíð­ina þótt það hafi auk­ist und­an­farin ár með aðstoð.

„Ef ég er með kynn­ingar fyrir hóp af fólki sem ég þekki ekki þá finnst mér það vera gríð­ar­lega erfitt. Ég verð stress­aður, það er kvíði í ein­hverja daga á undan og ég er alveg óhræddur að við­ur­kenna það. Ég er búinn að fara til dáleið­ara og sál­fræð­ings til að hjálpa mér með þetta og sjálfs­traustið hefur auk­ist og ég er orð­inn betri í þessu. Þetta er eitt­hvað sem ég þurfti að vinna með. Ég segi oft að ég sé intró­vert­inn sem þurfti að verða extró­vert út af starf­inu. Það getur tekið á að vera fram­kvæmda­stjóri í svona fyr­ir­tæki og það þarf að læra svo­lítið inn á stressið. Og stressið getur leitt til kvíða sem er alls ekki gott og ég er búinn að þurfa að vinna með það. Ég er alveg búinn að þurfa að læra inn á and­legu hlið­ina. Við skulum bara orða það þannig.“

Óttar Örn er enn lít­ill strákur inni í sér. „Já, algjör­lega. Og ég lít ennþá á að ELKO sé bara litla fyr­ir­tækið og litla raf­tækja­versl­unin en ekki að það sé orðið svona stórt.“

Hann segir að þetta hafi verið algjört óör­yggi þegar sjálfs­traustið skorti. „Þetta stafar af því að maður var alltaf minni í grunn­skóla - ég var minnstur í ferm­ing­unni - og ég þurfti alltaf að vera harð­ari af mér, standa mig betur og gera meira í fót­bolt­anum. Og þaðan kom keppn­is­skapið. En svo hafði þetta bara áhrif á sjálfs­traustið hjá mér sem ég tók með mér inn í full­orð­ins­árin og þetta var allt í lagi þangað til ég tók við þess­ari stöðu þar sem ég þarf svo­lítið að standa fyrir mínu og svara fyrir þetta fyr­ir­tæki, vera með kynn­ingar fyrir alls kyns fólk og hitt og þetta og ég þarf að setja upp ein­hverja grímu sem er kannski ekki alveg ég. Og það er bara út af því að ég er með svo mikið keppn­is­skap að standa mig að alltaf þegar ég klúðra ein­hverju pínu­litlu ein­hvers staðar þá kemur það fram í stressi og það breyt­ist í kvíða en hefur sem betur fer ekki farið lengra en það. Ég átt­aði mig á því að þetta var farið að hafa lík­am­leg ein­kenni en það var eins og ég væri að verða veikur hálf­part­inn og kannski pínu svimi. Ég tengdi þetta ekk­ert fyrst saman við það en svo átt­aði ég mig á því að þetta væri stress og kvíði þannig að ég fór aktíft að reyna að vinna með það og byggja mig upp. Ég fékk góðan stuðn­ing frá mínum yfir­manni, Ástu Fjeld­sted, for­stjóra Festi, og tal­aði frekar opin­skátt um þetta við hana. Ég er búinn að opna mig í mínum hóp í vinn­unni og ég get alveg talað um þetta. Það eru ekki allir þannig. Ég er á miklu betri stað miðað við bara fyrir tveimur árum og þess vegna einu ári. Fólk er mis­upp­byggt fyrir ábyrgð­ar­fullt starf og ég var ekki alveg með sjálfs­traust í það og þurfti að bæta það. Ég ennþá mis­góður í þeim aðstæðum þar sem er margt fólk.“

Streitan hafði áhrif á svefn­inn en Óttar Örn lærði að taka stressið ekki með sér inn í svefn­inn eins og hann orðar það. „Ég slekk á heil­anum með rusl­bók­menntum áður en ég fer að sofa. Bara mjög ein­falt - tek upp les­brettið og les í tíu mín­útur. Ég er laus við svefn­vanda­mál í dag en ég er ennþá í því ferli að ég tel mig geta styrkt mig með aðstoð.“

Óttar Örn seg­ist hafa farið til eins sál­fræð­ings um tíma sem hjálp­aði lítið en dáleiðslan hafi frekar hjálpað „Ég var að fara út fyrir minn þæg­ind­ara­mma og hafði enga trú á þessu. Það voru pínu for­dómar í kringum þetta. Ég fór til dáleið­ara sem náði strax hvað var í gangi hjá mér áður en við fórum í ein­hverja vinnu og hún las mig 100%. Svo fór ég í sex eða sjö tíma hjá henni og mér leið alltaf eins og ég væri að sigra heim­inn eftir tím­ana. Þetta pepp­aði mig upp. Þetta var ekki endi­lega eitt­hvað sem hent­aði mér en þetta gerði mér gott þar sem ég gat aðeins sett hlut­ina í sam­hengi og aðeins áttað mig á af hverju ég væri í svona stresskasti eða með kvíða þegar ég væri með kynn­ingar og ég lærði að fyr­ir­gefa sjálfum mér sem ég hélt alla tíð að væri bara slag­orð uppi á vegg. Svo átt­aði ég mig á að ég væri allt of harður við sjálfan mig og ég mætti alveg skíta upp á bak stundum. Það væri eig­in­lega öllum drullu­sama nema mér,“ segir hann og hlær. „Ég er ennþá þar en ég veit alla­vega hvað er í gangi og get unnið með þetta.“ Margir tengja dáleiðslu við að dáleið­ar­inn heldur á pendúl fyrir framan við­kom­andi sem fellur í ein­hvers konar dá en það var alls ekki raunin. „Ég fór í algjöra slökun en var vak­andi allan tím­ann. Ég gat alltaf opnað augun og staðið upp. Þetta tengd­ist meira því að ná hug­anum í íhug­unar­á­stand; að geta horft á hlut­ina öðru­vísi með öðrum augum og virkja ein­hvern veg­inn ímynd­un­ar­aflið. Þetta er eig­in­lega hálf­gerð hug­leiðsla nema með svona aðstoð. Maður hugsar aðeins öðru­vísi og fók­userar á eitt­hvað afmarkað við­fangs­efni.“

Hann segir að á ákveðnum tíma­punkti hafi hann ákveðið að fela ekki þessa líðan. „Ef ég er að fela þetta þá væri það erf­ið­ara.“ Óttar Örn hefur ýmis­legt lært af þessu öllu. „Ég er metn­að­ar­fullur. Ég er alveg með keppn­is­skap þannig að ég hugs­aði með mér að ég ætl­aði ekki að leyfa mér að gefa mig í þessu; að leyfa þessu ekki að stjórna líf­inu heldur frekar hvað ég get gert til þess að bæta þetta og styrkja mig. Þannig að ég hef kannski lært það að þetta getur verið vanda­mál að gera það einmitt ekki og ég þarf að díla við þetta og ég díla við þetta af því að mig langar til að halda áfram að vinna í þessu frá­bæra fyr­ir­tæki. Þetta teng­ist ekki vinn­unni - þetta teng­ist því hvernig ég er að díla við ábyrgð og hvernig ég er byggður og ég þarf að styrka mig á ákveðnum sviðum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu