Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Rússi ók á ellefu manns í Frakklandi

Talið er hann hafi gert þetta vilj­andi

Frá vettvangi í Caen
Frá vett­vangi í Caen Mynd: MATTHIEU CLAVEL / AFP

Tveir menn lét­ust og níu særð­ust þegar öku­maður ók bif­reið vilj­andi á hóp fólks í borg­inni Caen í Normandí í norð­ur­hluta Frakk­lands seint á mið­viku­dags­kvöld. Franskir fjöl­miðlar greina frá því að lög­regla hafi hand­tekið 26 ára rúss­neskan rík­is­borg­ara af tsjetsjenskum upp­runa vegna máls­ins.

Atvikið átti sér stað fyrir utan bar í grennd við lest­ar­stöð­ina í Caen. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá lög­reglu hafði komið til átaka skömmu áður og er talið að hinn grun­aði hafi lent í átökum við nokkra ein­stak­linga.

Maðurinn yfir­gaf vett­vang en sneri skömmu síðar aftur á bif­reið. Hann ók inn á akrein fyrir stræt­is­vagna og síðan vilj­andi á hóp fólks sem stóð við stræt­is­vagna­skýli.

Annar þeirra sem lét­ust var 35 ára afganskur maður. Hinn var 28 ára og er einnig tal­inn hafa verið afganskur rík­is­borg­ari.

Níu menn á aldr­inum 17 til 36 ára særð­ust í ákeyrsl­unni og voru sjö þeirra sagðir í lífs­hættu. Nokkrir hinna særðu hlutu meðal ann­ars bein­brot á neðri útlimum. Meðal fórn­ar­lambanna eru menn af frönskum, egypskum, bangla­desskum og súd­önskum upp­runa.

Öku­mað­ur­inn flúði af vett­vangi eftir ákeyrsl­una og hófst umfangs­mikil leit að honum. Hann var síðar hand­tek­inn í hafn­ar­bænum Ouistreham, skammt frá Caen.

Við yfir­heyrslur sagð­ist mað­ur­inn hafa orðið fyrir ofbeldi við lest­ar­stöð­ina áður en hann ók á fólkið. Hann var ekki undir áhrifum áfengis þegar atvikið átti sér stað.

Sak­sókn­arar segja ekk­ert benda til þess að hryðju­verk hafi verið að baki árásinni. Hinn grun­aði dvelur lög­lega í Frakk­landi, var ekki á skrá hjá frönskum leyni­þjón­ustu­yf­ir­völdum og hafði ekki áður hlotið refsi­dóm.

Rannsókn máls­ins stendur yfir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

Hlýlegt heim­ili við Efri Hól bíður nýrra eig­enda

Húsið var reist árið 1916
Innlent

Ekið á mann á raf­hlaupa­hjóli

Innlent

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Upptökurnar eru frá Mið-Austurlöndum og ná yfir árin 2020 til 2026. Varnarmálaráðuneytið segir enn óljóst hvað þær sýni.

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi