Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þorgerður Katrín í greinilegu uppnámi í beinni

„Já, ég hef fengið alvar­legar hót­anir“

Þorgerður Katrín í greinilegu uppnámi í beinni
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, utan­rík­is­ráð­herra og for­maður Við­reisnar Til­finn­ing­arnar tóku völdin í Bítinu Mynd: BHJ

Lög­reglan rann­sakar nú alvar­legar hót­anir sem beinst hafa gegn Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur, utan­rík­is­ráð­herra og for­manni Við­reisnar, í tengslum við umræð­una um þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­una um Evr­ópu­sam­bands­að­ild. Þetta kom fram í til­finn­inga­þrungnu útvarps­við­tali í Bítinu á Bylgj­unni, þar sem til­finn­ing­arnar báru ráð­herr­ann ofur­liði.

Tilfinningarnar tóku völdin í beinni

Þor­gerður Katrín bar sig lengst af vel í við­tal­inu og ræddi póli­tísku hlið­arnar en þegar líða tók á spjallið og talið barst að þeirri hörðu per­sónu­legu umræðu sem herjað hefur á hana á sam­fé­lags­miðlum síð­ustu vikur, fór að hægj­ast á ráð­herr­anum.

Aðspurð hvort hún hefði hrein­lega verið hrædd eða fundið fyrir beinum ógn­unum vegna bar­áttu sinnar fyrir Já-fylk­ing­unni, stað­festi hún að veru­leik­inn hefði breyst til muna und­an­farið.

„Ef þú ert að tala um hót­anir já ég hef fengið hót­anir. [...] Já, alveg alvar­legar. Já, já ég hef fengið þær. Lög­reglan bara sér um þetta og er með grein­ingar og gerir það sem þarf,“ sagði Þor­gerður Katrín.

Þegar hún bætti við að hún reyndi að telja sig örugga brotn­aði hún niður. Ráð­herr­ann and­varp­aði mæðu­lega og virt­ist vera undir miklu álagi.

Í kjöl­farið ríkti þögn sem sýndi glögg­lega að hún átti erfitt með að ræða þetta. Heimir Karlsson, annar umsjón­ar­manna þátt­ar­ins, greip inn í og harm­aði að svona væri komið fyrir íslensku sam­fé­lagi, en sökum þess að Þor­gerður treysti sér ekki til að svara frekar var við­tal­inu slitið snögg­lega.

Gríðarlegt álag í aðdraganda kosninga

Málið varpar skugga fyrir þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­una en und­an­farnar vikur hafa per­sónu­leg skot og harð­vítug átök ein­kennt umræð­una. Ráð­herr­ann greindi frá því að hún hefði neyðst til þess að gera miklar breyt­ingar á sínu lífi og dag­legum venjum og að lög­reglan fram­kvæmdi nú sér­stök örygg­is­möt á hennar stöðu.

Þrátt fyrir erf­ið­leik­ana lagði hún þunga á mik­il­vægi þess að kjósa um samn­inga­við­ræður við ESB til að verja lífs­kjör venju­legs fólks gegn verð­trygg­ingu, verð­bólgu og „refsi­vöxtum“ krón­unnar.

Fordæmt þvert á flokka

Hót­an­irnar gegn utan­rík­is­ráð­herra hafa vakið hörð við­brögð. Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem einnig var gestur í þætt­inum, tók afger­andi afstöðu og lýsti yfir fullum stuðn­ingi við Þorgerði á per­sónu­legum nótum. Heitir hann á alla lands­menn að ræða málin á mál­efna­legum grund­velli.

„Það er ömur­legt og óaf­sak­an­legt að hafa í hót­unum við Þorgerði og alla aðra. Sam­ein­umst um að ræða saman mál­efna­lega,“ sagði Guð­laugur Þór.

Hann minnt­ist þess jafn­framt að hafa sjálfur þurft á lög­reglu­vernd að halda á sínum tíma þegar hann gegndi emb­ætti utan­rík­is­ráð­herra og inn­leið­ing þriðja orku­pakk­ans stóð yfir.

Atburðir morg­uns­ins sýna að póli­tíska lands­lagið er orðið harð­ara og per­sónu­legra en áður og ljóst er að þjóðin gengur klofin að kosn­ingu á morgun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi