Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Karlmaður ákærður fyrir hylmingu í Leifsstöð

Þess er krafist að maðurinn verði dæmdur til refsingar

Leifsstöð
Leifs­stöð Mynd: Stjórnarráðið/Birgir Ísleifur

Rúmenskur maður hefur verið ákærður af lögreglu­stjóranum á Suðurnesjum fyrir hylmingu eftir að fjöldi stolinna muna fannst í fórum hans við toll­skoðun í Flugstöð Leifs Eiríks­sonar.

Samkvæmt ákæru var maðurinn á leið úr landi laugar­daginn 9. nóvember 2024 þegar hann var stöðvaður við toll­skoðun. Þar reyndist hann hafa í fórum sínum rúmlega 20 muni sem ákæru­valdið segir að hafa verið stolið og telur að honum hafi hlotið að vera ljóst að um þýfi væri að ræða.

Meðal munanna voru fatnaður og skór, rúmföt, verkfæri og ýmis konar verkfæra­búnaður. Þar á meðal voru vörur frá Icewear, Jysk, Louis Vuitton, Milwaukee, Würth og Stanley. Um var að ræða meðal annars úlpur, jakka, peysur, skó, borvél, skrúfvél, rafhlöður, málbönd og skrúf­bitasett.

Ákæru­valdið telur að maðurinn hafi með því að hafa munina í fórum sínum haldið þeim ólöglega frá réttmætum eigendum þeirra.

Háttsemin er talin varða við ákvæði almennra hegningar­laga um hylmingu, en til vara ákvæði laganna um þjófnað. Þess er krafist að maðurinn verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakar­kostnaðar.

Málið verður tekið fyrir í Héraðs­dómi Reykjaness 8. október næst­komandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Árið 2022 sagðist hún sjá sig í háskóla og pólitík eftir fimm ár. Nú hefur hún stofnað einkahlutafélag með fjölþættan tilgang.
Innlent

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Innlent

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Lögregla stöðvaði þrjá ökumenn vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna í gærkvöldi og nótt.

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts