Húsnæðis- og mannvirkjastofnun barst tilkynning frá Bílaumboðinu Öskju um innköllun á Mercedes-Benz GLE 2024-2026.
Möguleiki er að hitahlíf sé ekki rétt uppsett sem getur valdið núningi á eldsneytisleiðslu og skemmt hana. Það getur svo valdið skyndilegu afltapi án fyrirvara.
Eigendur slíkra ökutækja eru beðnir að hafa samband við Öskju til að athuga hvort innköllunin eigi við.

Mynd: HMS































Athugasemdir