Kristrún Frostadóttir
„Það verður að virða fullveldi og alþjóðalög“
Kristrún Frostadóttir
Minning

Gunnar Þór­ar­ins­son fyrr­ver­andi bæj­ar­full­trúi lát­inn

Heimur

Nýjar nið­ur­stöður varpa ljósi á orsakir millj­óna krabba­meinstil­fella

Fólk

Hvenær verður daður að fram­hjá­haldi?

Innlent

Hekla inn­kallar til­tekna Audi-, Volkswagen- og Skoda-bíla

Heimur

Verkfall á Kanarí­eyjum getur raskað ferðum til og frá flug­völlum

Heimur

Ísra­elskir ferða­menn gagn­rýndir eftir að leið­sögu­manni var ýtt í sjó­inn

Peningar

Segir hluta­fjár­út­boð Bláa lóns­ins ótíma­bært vegna eldsum­brota

Innlent

Varað við neyslu á wasabi-hrískexi

Heimur

Katta­eig­endur sér­stak­lega varaðir við hættu­legri fuglaflensu

Heimur

David Walliams sak­aður um að hafa tælt ung­lings­stúlkur

Lagði álög og bölvun á fyrrverandi sambýliskonu

Sendi henni 90 óvel­komna tölvu­pósta, þar sem meðal ann­ars komu fram alvar­legar hót­anir

Héraðsdómur Reykjavíkur
Hér­aðs­dómur Reykja­víkur Mynd: Víkingur

Karl­maður hefur verið dæmdur í níu mán­aða fang­elsi í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur fyrir brot í nánu sam­bandi gegn fyrr­ver­andi sam­býl­is­konu sinni. Sex mán­uðir refs­ing­ar­innar eru skil­orðs­bundnir til tveggja ára. Maðurinn var jafn­framt dæmdur til að greiða kon­unni eina milljón króna í miska­bætur.

Brotin áttu sér stað frá 24. mars til 11. júní síð­ast­lið­ins. Samkvæmt dóm­inum raskaði mað­ur­inn ítrekað og með alvar­legum hætti frið­helgi einka­lífs kon­unnar og ólög­ráða barna hennar. Hátt­semin fól meðal ann­ars í sér lík­am­legt og and­legt ofbeldi, hót­anir, óvel­komin sím­töl og skila­boð auk eft­ir­farar.

Í mars réðst mað­ur­inn á kon­una, tók hana kverka­taki, hrinti henni í jörð­ina og hélt henni niðri. Hann tók hana síðan aftur kverka­taki þannig að hún átti erfitt með and­ar­drátt og beit hana í hönd.

Á næstu vikum sendi hann henni 90 óvel­komna tölvu­pósta, þar sem meðal ann­ars komu fram alvar­legar hót­anir. Hann hringdi jafn­framt 48 óvel­komin sím­töl í kon­una. Í einum tölvu­póst­anna fylgdi mynd­band þar sem ljós­mynd af kon­unni hafði verið komið fyrir á borði með kertum, haus­kúpum og dul­rænum táknum sem gáfu til kynna álaga- eða bölv­un­ar­at­höfn.

Maðurinn var settur í sex mán­aða nálg­un­ar­bann í maí en braut ítrekað gegn því. Meðal ann­ars nálg­að­ist hann kon­una á almanna­færi, fór að heim­ili hennar og barna hennar og hafði sam­band við hana með ýmsum hætti. Hann lét einnig útbúa mynd­band með ljós­mynd af henni þar sem óskað var eftir því að hún yrði fyrir langvar­andi lík­am­legum og and­legum þján­ingum og dauða.

Maðurinn ját­aði brotin ský­laust. Dómurinn taldi honum það til máls­bóta en til þyng­ingar að brotin hefðu verið alvar­leg, sam­felld og stig­vax­andi og að hann hefði ekki látið af hátt­sem­inni þrátt fyrir afskipti lög­reglu og nálg­un­ar­bann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Minning

„Og nú er hann flog­inn á braut í morg­un­birt­unni, dáinn, horf­inn, harma­fregn“

Vinir minnast Marðar Árnasonar með hlýju
Innlent

Þarf að greiða 834 þús­und eftir tap í máli gegn gisti­stað

Heimur

Bretland hvatt til að hraða und­ir­bún­ingi fyrir hugs­an­legt stríð

Heimur

Gam­an­leik­kona upp­lýsti Guardian um ásak­anir á hendur David Walliams

Heimur

Net­anyahu sak­aður um að nota kyn­þátta­hatur sem síð­asta tromp í valda­bar­átt­unn

Innlent

Innlent

Inn­köllun vegna eld­hættu í þremur teg­undum Volkswagen-raf­bíla

Eigendur hvattir til að hlaða bifreiðar sínar ekki umfram 80 prósent.
Innlent

Lang­tíma­spá bendir til þurr­ari vetrar á Íslandi

Innlent

Öskurapi í Vest­ur­bænum fannst ekki þrátt fyrir leit

Innlent

Krefjast opin­berrar afsök­un­ar­beiðni frá Morg­un­blað­inu

Innlent

Sonurinn áfram í gæslu­varð­haldi vegna mann­dráps í Breið­holti

Innlent

Mat­vöru­verð hækkar þrátt fyrir boð­aðar verð­lækk­anir