Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Gríðarlegur verðmunur á fótbolta barna

Á fót­bolti barna að ráð­ast af efna­hag for­eldra?

Gríðarlegur verðmunur á fótbolta barna
Tug­þús­unda munur á æfinga­gjöldum milli félaga Mynd: Unsplash/Baylee Gramling

Æfinga­gjöld vegna knatt­spyrnu­iðk­unar barna eru mjög mis­mun­andi eftir íþrótta­fé­lögum. Sam­an­burður á gjöldum fyrir 6–7 ára, 10–11 ára og 14–15 ára börn sýnir mik­inn mun milli félaga og kostn­að­ur­inn eykst almennt eftir því sem börnin eld­ast. Hjá nokkrum íþrótta­fé­lögum er iðkun barna í ákveðnum ald­urs­hópum gjald­frjáls. Fyrir fjöl­skyldur getur því skipt veru­legu máli hvaða félag stendur þeim til boða. 

Sam­an­burður á æfinga­gjöldum knatt­spyrnu­fé­laga víðs vegar um landið sýnir hversu ólíkum kostn­aði for­eldrar geta staðið frammi fyrir. Munur á æfinga­gjöldum fyrir knatt­spyrnu­iðkun sömu ald­urs­hópa getur verið marg­faldur og sést vel þegar þrír ald­urs­hópar eru bornir saman: 6–7 ára, 10–11 ára og 14–15 ára börn. 

Gjöldin hafa almennt til­hneig­ingu til að hækka með aldri en innan hvers ald­urs­hóps er jafn­framt mik­ill munur milli félaga. 

6–7 ára: Frítt hjá sumum en allt að 15.000 krónur annars staðar

Af þeim félögum sem inn­heimta æfinga­gjald er lægsta reikn­aða mán­að­ar­gjaldið fyrir knatt­spyrnu­iðkun 6–7 ára barna 3.125 krónur (Smári í Varma­hlíð) en það hæsta 15.000 krónur (Víkingi Reykja­vík). 

Einstaka félög inn­heimta ekk­ert æfinga­gjald af yngri iðk­endum. Hjá Hamri og ÍBV er frítt fyrir 5–7 ára börn, hjá UMF Sam­herjum fyrir 5–11 ára og hjá UMF Snæfelli fyrir 5–13 ára. 

6–7 ára börn greiða þannig engin æfinga­gjöld hjá Hamri, UMF Sam­herjum, UMF Snæfelli og ÍBV. 

Hæsta æfinga­gjaldið fyrir 6–7 ára knatt­spyrnu­iðk­endur er hjá Víkingi, 15.000 krónur á mán­uði. FH er næst­dýr­ast með 13.658 krónur á mán­uði og Þróttur Reykja­vík með 13.000 krónur. 

Munurinn á fjár­hags­legri byrði fjöl­skyldna getur því verið mik­ill strax þegar börnin hefja íþrótta­iðkun. 

10–11 ára: Frá engu gjaldi upp í 17.750 krónur

Hjá 10–11 ára börnum eru hæstu gjöldin enn hærri. Í sam­an­burð­inum er hæsta mán­að­ar­gjaldið 17.750 krónur. 

Bæði UMF Sam­herjar og UMF Snæfell eru hins vegar skráð með ókeypis iðkun fyrir börn á þessum aldri. Hjá Sam­herjum nær gjald­frjálsa ald­urs­bilið til 5–11 ára barna og hjá Snæfelli til 5–13 ára. 

Af þeim félögum sem inn­heimta gjald er UMF Katla með lægsta gjald fyrir 10–15 ára, 8.000 krónur fyrir haust­tíma­bil, sem sam­svarar 2.000 krónum á mán­uði miðað við fjög­urra mán­aða tíma­bil. 

Víkingur er með hæsta gjaldið fyrir 10–11 ára, 17.750 krónur á mán­uði. Fjölnir kemur þar á eftir með um 16.288 krónur og Þróttur Reykja­vík með 16.000 krónur. 

Þegar gjald­frjálsu félögin eru tekin með getur æfinga­gjaldið fyrir 10–11 ára barn því verið frá engu gjaldi upp í 17.750 krónur á mán­uði, eftir félagi. 

14–15 ára: Frá 2.000 upp í 19.250 krónur á mánuði

Hjá 14–15 ára börnum er kostn­að­ur­inn almennt meiri. Af þeim félögum sem sam­an­burð­ur­inn nær til eru engin félög sem bjóða upp á gjald­frjálsar æfingar fyrir þennan ald­urs­hóp. 

Lægsta gjaldið í sam­an­burð­inum er hjá UMF Kötlu, þar sem 10–15 ára börn greiða 8.000 krónur fyrir haust­tíma­bil, eða 2.000 krónur á mán­uði miðað við fjóra mán­uði. 

Þar á eftir kemur Smári Varma­hlíð, þar sem gjald fyrir 12–15 ára er 15.000 krónur fyrir haustið, sem sam­svarar 3.750 krónum á mán­uði. UMF Kormákur er með 20.000 króna haust­gjald fyrir 9–15 ára, eða 5.000 krónur á mán­uði. 

Á hinum enda skal­ans er Víkingur með hæsta gjaldið, 19.250 krónur á mán­uði. Þar á eftir kemur Fjölnir með um 18.788 krónur og Þróttur Reykja­vík með 18.000 krónur. 

Breiða­blik, Haukar og FH eru einnig meðal þeirra félaga þar sem gjöld fyrir þennan ald­urs­hóp eru há. Mán­að­ar­gjaldið sam­svarar um 17.458 krónum hjá Breiða­bliki, 17.167 krónum hjá Haukum og 17.158 krónum hjá FH. 

Munurinn á lægsta og hæsta gjaldi fyrir 14–15 ára börn er því 17.250 krónur á mán­uði hjá sam­an­burð­ar­fé­lög­unum. 

Frá engu gjaldi upp í tæplega 20 þúsund krónur

Þegar ald­urs­hóp­arnir eru skoð­aðir saman birt­ist skýr mynd. Kostn­að­ur­inn hefur almennt til­hneig­ingu til að aukast eftir því sem börnin eld­ast, en um leið er mjög mik­ill munur milli félaga. 

Fyrir yngri börnin er mun­ur­inn sér­stak­lega athygl­is­verður vegna þess að sum félög inn­heimta ekk­ert æfinga­gjald. Hamar býður 5–7 ára börnum frítt, ÍBV 5–6 ára, UMF Sam­herjar 5–11 ára og UMF Snæfell 5–13 ára. 

UMF Snæfell sker sig sér­stak­lega úr að þessu leyti, enda er iðkun sam­kvæmt gögn­unum gjald­frjáls til og með 13 ára aldri. 

Á sama tíma geta gjöld ann­ars staðar numið 15–18 þús­und krónum á mán­uði fyrir börn á grunn­skóla­aldri og farið upp í 19.250 krónur hjá 14–15 ára börnum. 

Hlekkur á töflu: Fótbolti - Infogram

Tugþúsundir á mánuði fyrir fjölskyldur

Þessar upp­hæðir geta haft veru­leg áhrif á fjár­hag fjöl­skyldna, sér­stak­lega þegar fleira en eitt barn stundar íþróttir. 

Tvenn börn í knatt­spyrnu þar sem árgjöldin sam­svara 15.000 krónum á mán­uði kosta heim­ilið sam­an­lagt sem nemur 30.000 krónum á mán­uði, eða 360.000 krónum á ári. Mik­il­vægt er að setja þann fyr­ir­vara að mörg félög bjóða systk­ina­af­slætti en hann getur verið frá 10-30%. 

Þá er annar kostn­aður ótal­inn. Fót­bolta­skór, íþróttafatn­aður, móts­gjöld, ferða­lög og annað sem fylgir íþrótta­iðkun getur bætt tals­verðu við útgjöld heim­il­is­ins. 

Fyrir heim­ili með lágar eða með­al­háar tekjur getur slíkur kostn­aður skipt veru­legu máli. Há æfinga­gjöld geta þannig orðið raun­veru­leg hindrun fyrir þátt­töku barna. 

Búseta getur skipt miklu máli

Fjöl­skyldur hafa sjaldn­ast raun­hæft val um fjölda knatt­spyrnu­fé­laga. Aðgengi ræðst meðal ann­ars af búsetu, vega­lengdum og sam­göngum. Gjald­skrá félags­ins í nærum­hverf­inu ræður þannig miklu um þann kostnað sem fjöl­skyldan stendur frammi fyrir. 

Munurinn á gjald­töku vekur jafn­framt spurn­ingar um aðgengi. Fjöl­skylda sem býr þar sem félag býður ókeypis æfingar getur staðið frammi fyrir allt öðrum fjár­hags­legum aðstæðum en jafn­gam­alt barn ann­ars staðar þar sem greiða þarf háar fjár­hæðir fyrir íþrótta­iðkun. 

Hafa verður fyr­ir­vara á sam­an­burð­inum. Félögin skil­greina gjald­töku og tíma­bil með mis­mun­andi hætti. Sum gefa upp árgjöld en önnur gjöld fyrir styttri tíma­bil. Í grein­ing­unni eru gjöld umreiknuð niður á mán­að­ar­gjald til að auð­velda sam­an­burð. Umfang æfinga og það sem inni­falið er í gjald­inu getur einnig verið mis­mun­andi. Gjald­skrárnar einar og sér segja því ekki hvort þjón­usta félag­anna sé að öllu leyti sam­bæri­leg. Mik­il­vægt er því að taka fram að ekki var skoðað sér­stak­lega magn eða gæði æfinga. 

Þátttaka barna má ekki ráðast af efnahag foreldra

Íþrótta­þátt­taka barna hefur mik­il­vægt félags­legt gildi. Þar eign­ast börn félaga, byggja upp tengsl og taka þátt í skipu­lögðu sam­fé­lags­starfi. Aðgangur að íþróttum er því ekki ein­göngu spurn­ing um tóm­stundir heldur einnig um jöfn tæki­færi barna. 

Há þátt­töku­gjöld geta aukið ójöfnuð ef börn tekju­lægri for­eldra hafa síður mögu­leika á að taka þátt. Áhrifin geta orðið sér­stak­lega mikil hjá fjöl­skyldum þar sem tvö eða fleiri börn stunda íþróttir. 

Frí­stunda­styrkir sveit­ar­fé­laga geta létt undir með fjöl­skyldum en upp­hæð þeirra og fyr­ir­komu­lag eru mis­mun­andi milli sveit­ar­fé­laga. Dæmin um gjald­frjálsa iðkun sýna jafn­framt að mjög ólíkar leiðir eru farnar við gjald­töku fyrir íþrótta­starf barna. 

Um könn­un­ina:

ASÍ tók saman birt æfinga­gjöld í knatt­spyrnu hjá félögum víða um land. Flestar verð­skrár eru sóttar af mark­aðs­torgi Abler en einnig af heima­síðum félag­anna. Í þess­ari sam­an­tekt er sér­stak­lega horft til 6–7 ára, 10–11 ára og 14–15 ára barna. Ald­urs­flokkun félaga er ekki í öllum til­vikum eins. Þar sem aðeins haust­gjald liggur fyrir hefur því verið deilt niður á 4 mán­uði en árgjaldi deilt niður á 12 mán­uði. Ekki höfðu öll félög birt upp­lýs­ingar hjá öllum ald­urs­hópum og munu taflan og myndin verða upp­færð þegar allar upp­lýs­ingar liggja fyrir. Fjöldi æfinga og hvað er inni­falið í gjöld­unum geta einnig verið mis­mun­andi milli félaga. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ