Matvælastofnun varar við neyslu á tveimur tegundum af fæðubótarefnum af vörumerkinu Guli miðinn frá Bretlandi sem Heilsa ehf. flytur inn vegna aðskotaefnisins pyrrolizidine alkalóíða sem mældist yfir mörkum. Fyrirtækið hefur innkallað vörurnar í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.
Neytendur sem hafa keypt umræddar vörur eru beðnir um að hætta notkun þeirra og farga en einnig má skila þeim í versluninni þar sem þær voru keyptar eða hjá Heilsu ehf.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Athugasemdir