Nokkur átök eru innan Framsóknarflokksins eftir formannsskiptin þar sem Lilja Alfreðsdóttir tók við lemstruðum flokknum af Sigurði Inga Jóhannssyni. Hermt er að Sigurður Ingi sé í fráhvörfum frá formennsku og ráðherradómi og sætti sig alls ekki við að vera hættur sem formaður.
Þannig er hann í virkri stjórnarandstöðu innan eigin flokks og þverfótar og grefur stöðugt undan nýjum formanni. Nánir bandamenn Lilju hafa af þessu ástandi áhyggjur og leggja að henni að þrengja að gamla formanninum og bjóða sig jafnvel fram í Suðurkjördæmi þegar sá tími kemur og gulltryggja brotthvarf hans. Lilja er aftur á móti sögð vilja vera góð við forverann og halda sig við Reykjavík ...





















Athugasemdir