Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Lögreglan fellir niður mál gegn Heiðu Ósk

„Kæran var hluti af áreit­inu“

Lögreglan fellir niður mál gegn Heiðu Ósk
Heiða Ósk í Áfram stelpur fagnar sigri Mynd: Facebook/Aðalheiður

Rannsókn á meintu æru­meið­ing­ar­máli gegn Aðal­heiði Ósk Þor­steins­dóttur hefur verið hætt. Í kjöl­farið hyggst hún breyta Facebook-hópnum „Áfram stelpur“ í form­leg félaga­sam­tök til að styðja við þolendur ofbeldis á Íslandi.

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur fellt niður rann­sókn á æru­meið­ing­ar­máli gegn Aðal­heiði Ósk Þor­steins­dóttur, stofn­anda Facebook-hóps­ins „Áfram stelpur“. Fyrr­ver­andi unnusti hennar hafði kært hana fyrir æru­meið­ingar í kjöl­far þess að hún steig fram og greindi opin­ber­lega frá ofbeldi sem hún og börn hennar sögð­ust hafa mátt þola.

Aðal­heiður, sem oft er kölluð Heiða Ósk, birti bréf lög­regl­unnar máli sínu til stuðn­ings á opin­berri síðu sinni þar sem fram kemur að ekki sé tal­inn grund­völlur til að halda rann­sókn­inni áfram. Hún telur kæruna hafa verið lið í áfram­hald­andi áreitni gegn sér.

Erfiðar minningar úr ofbeldissambandi

Mála­vextir ná aftur til hausts­ins 2025 þegar Aðal­heiður rauf þögn­ina og deildi opin­ber­lega reynslu sinni af því sem hún lýsti sem alvar­legu ofbeld­is­sam­bandi. Í skrifum sínum lýsti hún erf­iðum minn­ingum og afleið­ingum þess að búa við ógn og áreiti. Í færslum sínum greindi hún frá því að ofbeldið hefði ekki aðeins beinst gegn henni sjálfri heldur hefði það einnig haft bein áhrif á börnin hennar.

„Ég greindi frá ofbeldi sem minn fyrr­ver­andi beitti mig og börnin okkar,“ sagði Aðal­heiður þegar hún útskýrði hvers vegna hún ákvað að stíga fram. Í kjöl­far þeirra skrifa lagði fyrr­ver­andi maki hennar fram kæru vegna æru­meið­inga, sem nú hefur end­an­lega verið vísað frá.

Vildi breyta hræðilegri reynslu í eitthvað gott

Í kjöl­far þess­ara vend­inga mætti Aðal­heiður í við­tal í Bítið á Bylgj­unni þar sem hún lýsti því yfir að hún ætli nú að stíga stærra skref og stofna form­leg félaga­sam­tök utan um hóp­inn „Áfram stelpur“, sem telur mörg þús­und með­limi. Mark­miðið er að veita þolendum ofbeldis skipu­lagðan vett­vang og aðstoð, en hún segir þörf­ina gríð­ar­lega.

„Fjöldi þeirra sem orðið hafa fyrir allskyns ofbeldi á Íslandi er slá­andi,“ sagði Aðal­heiður í við­tal­inu og benti á að raun­veru­leik­inn blasi við dag­lega í starfi hennar með hópnum.

Hún gagn­rýndi jafn­framt úrræða­leysi sam­fé­lags­ins og lýsti því yfir að „dóms­kerfið hafi brugð­ist“ þolendum í mörgum til­fellum.

Hún bætti því við að reynsla margra kvenna sýndi að flestir þolendur þurfi að glíma við afleið­ingar þess að vera með fleiri en einn ger­anda á lífs­leið­inni, sem geri stuðn­ings­net enn mik­il­væg­ara.

Hefur áður gagnrýnt viðbrögð við ofbeldi

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Aðal­heiður beitir opin­berum vett­vangi sínum til þess að knýja fram breyt­ingar eða benda á brot­löm í kerf­inu. Hún vakti mikla athygli þegar hún rit­aði harð­orða pistla þar sem hún gagn­rýndi leigu­bíla­stöð­ina Hreyfil harð­lega fyrir við­bragðs­leysi og skort á stuðn­ingi eftir að hún varð fyrir árás af hálfu bíl­stjóra á vegum fyr­ir­tæk­is­ins.

Í öðrum málum, eins og þegar hún steig fram vegna umsát­ursein­eltis, hefur hún ítrekað lagt áherslu á mik­il­vægi þess að þolendur standi saman.

Aðal­heiður segir nýju félaga­sam­tökin vera rök­rétt næsta skref til að snúa erf­iðri reynslu upp í sam­fé­lags­legt gagn: „Ég vildi breyta hræði­legri ofbeld­is­reynslu í eitt­hvað gott.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð