Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Reykjavíkurborg segir upp 15 leigusamningum við listafólk á sama tíma

„Eins og borgin sé að losa sig við allt lista­líf á einu bretti“

Reykjavíkurborg segir upp 15 leigusamningum við listafólk á sama tíma
• „Grun­sam­legt“ segir gras­rótin og beinir spjótum sínum að skrif­stofu borg­ar­stjóra Mynd: BHJ

Reykja­vík­ur­borg hefur sagt upp 15 leigu­samn­ingum við lista­menn, félagsam­tök og gras­rót­ar­hópa sem starfað hafa í iðn­að­ar­hús­næðum í bið­stöðu víðs vegar um borg­ina. Hóparnir þurfa að rýma hús­næði sín í nóv­em­ber eða jan­úar nk., en ástæðan sem gefin er upp af hálfu borg­ar­innar snýr að alvar­legum ágöllum á eld­vörnum. Samkvæmt frétt menn­ing­ar­þátt­ar­ins Lestina á RÚV ríkir mikil óánægja og óvissa meðal þeirra fjöl­mörgu sem missa starfs­að­stöðu sína.

Fjölbreytt starfsemi á hrakhólum

Upp­sagn­irnar ná til mik­il­vægra sam­fé­lags- og menn­ing­ar­verk­efna á fjórum stöðum í borg­inni: Sæv­ar­höfða, Skelja­nesi í Skerja­firði, Berg­þóru­götu og í Gufunesi. Á meðal þeirra sem verða fyrir áhrifum eru:

  • Parkour-skúr­inn og Hring­leikur á Sæv­ar­höfða, sem hafa hýst frjálsa hreyf­ingu barna og fyrsta eig­in­lega sirk­úsæf­inga­rými lands­ins.
  • Reið­hjóla­bændur, sem gera upp hjól og bjóða meðal ann­ars hæl­is­leit­endum upp á virkni.
  • Snigl­arnir og fjöldi tón­list­ar­manna í Skelja­nesi.
  • Arki­tektar og hljóð­ver í gömlu áburð­ar­verk­smiðj­unni í Gufunesi.

Skortur á samráði og ósætti með röksemdir

Talsmenn gras­rót­ar­innar lýsa yfir furðu sinni á ákvörð­un­inni og gagn­rýna sam­skipta­leysi af hálfu Reykja­vík­ur­borgar. Curver Thorodd­sen tón­list­ar­maður bendir á að um atvinnu­vett­vang fólks sé að ræða og segir rým­ing­ar­frest­inn stuttan. „Það er svo­lítið grun­sam­legt að það sé verið að loka þessu öllu á sama tíma. Það er eins og það hafi verið tekin ákvörðun hjá borg­inni að losa sig við allt lista­lífið á einu bretti,“ segir Curver í sam­tali við RÚV .

Steinmar Gunn­ars­son, full­trúi Snigl­anna, bætir við að hóp­arnir hefðu verið til­búnir í sam­starf við borg­ina um að bæta bruna­varnir en það hafi ekki staðið til boða.

Kostnaðarmat og framtíðarsýn borgarinnar

Í skrif­legu svari eigna­skrif­stofu Reykja­vík­ur­borgar kemur fram að upp­sagn­irnar séu til­komnar vegna krafna eld­varn­ar­eft­ir­lits Slökkvi­liðs höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Nið­ur­staða kostn­að­ar­mats sýni að ekki sé fjár­hags­lega hag­kvæmt að leggja út í dýrar úrbætur, þar sem bygg­ing­arnar eru ýmist á nið­ur­rifs­lista eða standi til sölu vegna skipu­lags­breyt­inga.

Borgin leggur áherslu á að hún muni áfram vinna að því að nýta húsa­kost sinn undir skap­andi greinar og sam­fé­lags­þjón­ustu en minnir á að henni beri sið­ferð­is­leg og laga­leg skylda til að gæta jafn­ræðis og gagn­sæis við úthlutun á opin­beru hús­næði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi